Schröder og Merkel mætast í kvöld 4. september 2005 00:01
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og leiðtogi jafnaðarmannaflokksins, og Angela Merkel, kanslaraefni Kristilegra demókrata, mætast í kvöld í kappræðum í sjónvarpi. Þetta verða þeirra einu kappræður fyrir kosningarnar sem fram fara 18. september og eru taldar geta haft þó nokkur áhrif á hvor flokkurinn beri sigur úr býtum. Búist er við að fylgst verði með kappræðunum á fimmtán milljónum þýskra heimila. Það er þó á brattann að sækja fyrir Schröder, en flokkur Merkel nýtur núna um ellefu prósentustiga meira fylgis samkvæmt skoðanakönnunum. Fyrirfram er reiknað með að Schröder komi betur út úr kappræðunum, hann þykir snillingur í að skrúfa frá sjarmanum fyrir framan tökuvélarnar þegar mikið liggur við auk þess sem hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á málefnunum sem til umræðu eru eftir sjö ár í kanslarastól. Frammistaða hans í sjónvarpskappræðunum við Edmund Stoiber árið 2002 er talin hafa átt stóran hluta í kosningasigri jafnaðarmannaflokksins það ár. Merkel hefur þótt stíf og þurr og ef til vill dálítið óheppin í orðavali í fjölmiðlum. Það kann þó að vera að þessi framkoma Merkel komi henni á endanum alls ekki illa - sumir stjórnmálaskýrendur segja þýska kjósendur orðna leiða á ljúfu mali Schröders og kjósi heldur þurrar staðreyndir úr munni Merkel. Kappræðunum verður sjónvarpað beint á fjórum stærstu sjónvarpsstöðvum landsins klukkan hálfsjö í kvöld.
Erlent Fréttir Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira