Geimskoti frestað 13. júlí 2005 00:01
Hætt hefur verið við að skjóta geimferjunni Discovery á loft frá Flórída en áhöfnin var komin um borð og tilbúin að leggja í hann þegar ákvörðunin var tekin nú fyrr í kvöld. Mikil spenna var við Canaveral-höfða, en þúsundir ferðamanna voru þar saman komnir til að fylgjast með atburðinum. Geimferjunni átti að skjóta á loft klukkan korter í átta í kvöld að íslenskum tíma þrátt fyrir að í gærkvöld hafi plasthlíf fallið 20 metra úr glugga geimferjunnar og skemmt hitahlíf yfir siglingatækjum ferjunnar. Verkfræðingar Nasa sögðu þó málið smávægilegt og flaugin væri tilbúin til brottfarar. Bilun í eldsneytiskerfi flaugarinnar var ástæða þess að hætt var við geimskotið en allir sjö áhafnarmeðlimir voru komnir um borð. Ekki hefur verið ákveðið hvenær flaugin fer í ferð sína út í geiminn en það verður þó fyrsta geimferjuferðin sem farin er frá Flórída frá því geimferjan Kólumbía fórst skömmu fyrir áætlaða lendingu í febrúar árið 2003. Ferð Discovery er heitið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar og er gert ráð fyrir að hún muni standi í 12 daga. Þúsundir ferðamanna höfðu safnast saman við brottfararstaðinn og komu hörðustu aðdáendurnir í gær til að fylgjast með þessum merka atburði en svo virðist sem þeir hafi farið fýluferð í þetta sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira