Sagður hafa stytt sér aldur 12. október 2005 00:01
Ghazi Kanaan, innanríkisráðherra Sýrlands og yfirmaður leyniþjónustu landsins í Líbanon, fannst látinn á skrifstofu sinni í gær, að sögn sýrlenskra stjórnvalda. Tvær vikur eru þangað til skýrsla rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, liggur fyrir og því leikur grunur á að valdamenn í Damaskus hafi látið ráða hann af dögum til að forða sjálfum sér frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. „Ghazi Kanaan, liðsforingi og innanríkisráðherra framdi sjálfsmorð á skrifstofu sinni nú laust fyrir hádegi. Yfirvöld rannsaka málið," var texti fréttatilkynningar sem stjórnvöld í Damaskus sendu frá sér í gær. Kanaan var yfirmaður sýrlensku leyniþjónustunnar í Líbanon til ársins 2003 en sú staða jafngilti í raun landsstjóraembætti þar sem sá sem henni gegndi réði í raun hverjir skipuðu áhrifastöður í landinu. Nokkrum klukkustundum áður en Kanaan dó hringdi hann í líbanska útvarpsstöð og neitaði allri hlutdeild í morðinu á Rafik Hariri. Hann staðhæfði að auki að Sýrlendingar hefðu alltaf borið hagsmuni Líbana fyrir brjósti. „Þetta er líklega síðasta yfirlýsingin sem ég get flutt," sagði hann að lokum. Tvær vikur eru þangað til að rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna skilar skýrslu sinni um morðið á Hariri en í síðasta mánuði var skýrt frá því að líbanskir leyniþjónustumenn með sterk tengsl við sýrlensku stjórnina hefðu skipulagt tilræðið. Kanaan var á dögunum yfirheyrður um málið og er talið líklegt að vitnisburður hans gefi vísbendingar um hlutdeild Sýrlendinga í morðinu. Þann vitnisburð gæti hins vegar reynst erfitt að sannreyna fyrst vitnið er ekki lengur í tölu lifenda. Fjölmiðlar í Mið-Austurlöndum taka því fregnum af sjálfsmorði Kanaan með fyrirvara. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera setti orðið sjálfsmorð innan gæsalappa í fyrirsögn í frétt á vefútgáfu sinni þar sem rætt var við félaga í Bræðralagi múslima, stjórnarandstöðuhreyfingu sem bönnuð hefur verið í Sýrlandi. Sá taldi líklegt að Assad Sýrlandsforseti hefði látið ráða hann af dögum til að bjarga stjórninni frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. Al-Arabiya birti viðtal við líbanskan blaðamann sem taldi líkur á að um pólitískt morð væri að ræða. „Ómögulegt er að segja hvort hann framdi sjálfsmorð eða var gert að binda enda á líf sitt. Margir í Sýrlandi vilja stinga staðreyndum um afskipti stjórnarinnar af Líbanon undir stól." >
Erlent Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira