75% Dana telja árás líklega 12. júlí 2005 00:01
Fleiri Danir óttast að hryðjuverkaárás verði gerð í Danmörku en áður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þrír af hverjum fjórum telja líklegt að Danmörk verði fyrir árás á næstu árum. Helmingur þjóðarinnar styður enn stríðið í Írak. Gallup gerði skoðanakönnun fyrir dagblaðið Berlingske Tidende og var úrtakið þúsund manns. 75% telja líklegt eða mjög líklegt að öfgafullir múslimar framkvæmi hryðjuverk í Danmörku á næstu árum. Það eru mun fleiri en í sams konar könnun fyrir tæpu ári þegar 52% Dana óttuðust hryðjuverk. Meirihluti nefnir London sem ástæðu fyrir auknum ótta. Helmingur þjóðarinnar telur hættuna hafa aukist eftir opinbera heimsókn George Bush, forseta Bandaríkjanna, í síðustu viku. Stuðningur við Íraksstríðið er hins vegar næstum óbreyttur en um annar hver Dani telur það hafa verið rétta ákvörðun að hafa sent danska hermenn í stríð til Íraks. Fræðimaður við danska stofnun í alþjóðamálum segir við Berlingske Tidende í dag að könnunin sýni þrjósku dönsku þjóðarinnar og að niðurstaðan sé endurómun orða stjórnmálamanna í Danmörku sem hafi sagt aftur og aftur að ef danskir hermenn hverfi frá Írak sigri hryðjuverkamennirnir. Peter Viggo Jakobsen metur það þannig að raunveruleg ógn sé ekki meiri nú en áður, þrátt fyrir að Dönum hafi verið hótað í bréfi Evrópudeildar Al-Qaida sem birt var eftir árásirnar í London. Eftir að Nörreport-lestarstöðin var rýmd á dögunum vegna grunsamlegs bakpoka, sem reyndist bara innihalda dagblöð, var torgið við Amalíuborgarhöll girt af um stund í gær meðan sprengjusérfræðingar könnuðu yfirgefna svarta ferðatösku. Taskan, sem var sundurskotin eftir aðgerðirnar, reyndist hins vegar aðeins innihalda nauðsynlegan útbúnað ferðamanns; föt, greiðu, tannbursta og tannkrem.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira