Leit að lifendum hætt 9. október 2005 00:01
Fjórtán hundruð íbúar Maya-þorpsins Panabaj í Gvatemala eru taldir af eftir að aurskriða kaffærði þorpið í tólf metra þykkri eðju á miðvikudag. Leit að lifendum er hætt og þorpið verður líklega girt af sem einn fjöldagrafreitur. Fellibylurinn Stan skall á Mið-Ameríku og Mexíkó í síðustu viku og þótt krafturinn væri ekki í líkingu við kraft Katrínar og Ritu sem rústuðu suðurströnd Bandaríkjanna í síðasta mánuði, þá fylgdi Stan svo mikil rigning að jarðvegur mettaðist strax og byrjaði svo að skríða fram með skelfilegum afleiðingum. Gvatemala hefur orðið langverst úti, en björgunarmenn hafa reynt hvað þeir geta að grafa ofaní gríðarþykka eðjuna sem kaffærði Panabaj, með jurtir í nösunum til að reyna að útiloka lyktina sem óhjákvæmilega fylgir á annað þúsund líkum. Þorpið verður sennilega girt af og úrskurðað Mayafjöldagrafreitur, en íbúarnir voru flestir Mayaindíánar. Enn eru níutíu þorp í Gvatamala sambandslaus við umheiminn og björgunarstörf ganga hægt. Þó nokkurt manntjón hefur einnig orðið í El Salvador, Mexíkó, Níkaragva og Hondúras. Hægt gengur að koma aðstoð til bágstaddra á aurflóðasvæðunum, vegir eru lokaðir og fjarskipti liggja niðri ef þau voru nokkur fyrir. Til greina kemur að lýsa indíánabæina Panabaj og Tzanchaj í Gvatemala fjöldagröf. 1.400 eru taldir af eftir að hlíð eldfjalls í skreið fram á miðvikudag í úrhellisrigningu og þorpin grófust undir tonnum af jarðefnum. Eðjulagið er sumstaðar 12 metra þykkt. Manntjón hefur líka orðið í rigningunum í El Salvador, Mexíkó, Hondúras og Níkaragva. Hitabeltislægðin Stan hefur valdið hamförunum og enn er úrhellisrigning og stór svæði í M-Ameríku og Mexíkó undir vatni. Tugir þorpa urðu fyrir skriðum. Lítil sem engin hjálp berst til afskekktustu byggða. 200.000 hafa flúið heimili sín. Þriðjungur uppskerunnar í Gvatemala kann að vera ónýtur.
Erlent Fréttir Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Fleiri fréttir Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Sjá meira