Erlent

Berri kjörinn þingforseti

Þrátt fyrir að andstæðingar Sýrlandsstjórnar hafi unnið sigur í líbönsku þingkosningunum á dögunum var einn helsti bandamaður Sýrlendinga kjörinn forseti þingsins í gær. Nabih Berri, leiðtogi sjíahreyfingarinnar Amal, hefur gegnt embættinu um margra ára skeið og í gær var hann endurkjörinn með yfirgnæfandi meirihluta. Talið er að með kjörinu hafi andstæðingar hans viljað rétta fram sáttahönd og koma í veg fyrir að Hizbollah-hreyfingin yrði of öflug. Samkvæmt kosningakerfi Líbana er staða þingforseta eyrnamerkt sjíum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×