Þónokkrir Íslendingar á svæðinu 29. ágúst 2005 00:01
Á þessu svæði, þar sem Katrín veldur usla, búa þónokkrir Íslendingar. Flestir sem búa í New Orleans eru flúnir en aðrir halda kyrru fyrir þó að Katrín sé á leiðinni til þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu amar ekkert að Íslendingum í þeim ríkjum þar sem Katrín hefur látið til sín taka, í það minnsta var ræðismönnum Íslands þar ekki kunnugt um neitt. Allmargir Íslendingar hafa þó þurft að yfirgefa heimili sín í nánd við New Orleans, eins og aðrir þar. Þeirra á meðal er Linda Garðarsdóttir. Hún segir aðspurð að fólk hafi verið nokkuð áhyggjufullt vegna fellibylsins. Margir fellibyljir hafi farið um á þessum slóðum undanfarin ár og New Orleans ávallt sloppið við það versta en nú hafi fólk vitað að svo yrði ekki í þetta skiptið. Aðspurð hvort hún geri sér grein fyrir hvernig farið geti fyrir heimili hennar segir Linda að það fari eftir því hvort varnargarðar hafi haldið eða ekki. Það komi ekki í ljós fyrr en í kvöld. Hún búi í tveggja hæða húsi og að Mississippi-áin sé í sömu hæð og svefnherbergi hennar á annarri hæð. Ef varnargarðarnir hafi haldið sé allt í lagi en ef ekki hverfi allt hennar dót. Linda var í dag í Monroe í Louisiana, í fimm tíma fjarlægð frá New Orleans. Þar leitaði hún skjóls hjá vinkonu sinni. Fréttastofan reyndi að ná sambandi við fleiri Íslendinga en vonlaust er að ná sambandi við þau svæði þar sem veðrið er hvað verst; þar er raunar víðast hvar hvorki símsamband né rafmagn.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira