Viðhorf múslima jákvæðara en áður 15. júlí 2005 00:01
Hryðjuverk gagnvart bandarískum hermönnum í Írak eru réttlætanleg að mati helmings múslima í Jórdaníu og Líbanon. Þrátt fyrir það er viðhorf þeirra til vestrænna þjóða mun jákvæðara í dag en áður. Mun fleiri múslimar hafa jákvætt viðhorf gagnvart vestrænum löndum í dag en fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir rannsóknarfyrirtækið Pew Center, fyrir sprengingarnar í London í síðustu viku. Rannsóknin var gerð í 17 löndum þar sem meirihluti íbúa eru múslimar. Í rannsókninni kemur fram að múslimar hafi í sífellt auknum mæli áhyggjur af hryðjuverkum, bæði í heimalöndum og annars staðar, og hafa múslimar jafnframt áhyggjur af ímynd sinni í vestrænum löndum, þó síst í Bretlandi, Bandaríkjunum og í Kanada. Sú afstaða gæti þó hafa breyst. Viðhorf múslima til vestrænna landa og gilda eru jákvæðust í Marokkó, Tyrklandi og Indónesíu. Í þessum löndum sagði meirihluti fólks að hryðjuverk væru í engum tilfellum réttlætanlegt. Helmingur múslima sem tók þátt í könnuninni í Jórdaníu og í Líbanon sagði þó að sjálfsmorðssprengjuárásir gagnvart bandarískum hermönnum í Írak gætu í sumum tilfellum verið réttlætanlegar. Ekki virðist sem mönnum komi saman um ástæður hryðjuverka en í Líbanon og Jórdaníu segir fólk ástæðurnar vegna stefnu Bandaríkjanna í utanríkismálum. Íbúar Marokkó og Pakistans segja fátækt ástæðuna, menntunarleysi og vonleysi. Tyrkir kenna fáfræði um á meðan aðrir aðrir segja hreina illsku líklega helstu ástæðuna. Múslimar viðurkenna almennt að þeir eigi erfitt með að aðlaga sig þeim vestrænu þjóðfélögum sem þeir flytjast til. Múslimar eru á einu máli um að ríki þeirra eigi að ráða meiru í alþjóðasamfélaginu, íslam sé ein útbreiddasta trú veraldar og því eðlilegt að hún hafi meira vægi. Fordómar gagnvart múslimum eru miklir í Evrópu að þeim finnst og vilja þeir bæta ímynd sína. Ekki er laust við að múslimar hafi þó sjálfir fordóma en nánast 100 prósent aðspurðra í Líbanon og í Jórdaníu kváðust ekki líka við gyðinga. Það er vandlifað í þessum heimi og ljóst að mikið verk er framundan; að eyða, eða í það minnsta minnka, fordóma ólíkra hópa gegn hver öðrum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira