Erlent

Kviknaði í slökkvistöðinni

Slökkviliðsmenn á Flórída eru ekki óvanir því að eiga við elda sem kvikna í kjölfar eldinga. Þeir voru hins vegar teknir í bólinu þegar eldingu laust niður í gamla slökkvistöð í timburhúsi í dreifbýli norðarlega á Flórídaskaganum. Liðsmenn slökkviliðsins voru þegar kallaðir út og voru snöggir á staðinn. Þeir gátu hins vegar lítið annað gert en að horfa á slökkvistöðina brenna til grunna, þar sem allur útbúnaður þeirra til slökkvistarfa var þar innan dyra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×