Erlent

Klóna stofnfrumur í lækningaskyni

Vísindamenn í Newcastle-háskóla í Bretlandi ætla að klóna stofnfrumur úr mönnum til að finna lækningu við sykursýki. Bresk stjórnvöld hafa veitt mönnunum leyfi til að klóna stofnfrumurnar í þágu læknavísinda. Einræktun stofnfruma í lækningaskyni hefur verið lögleg í Bretlandi um nokkurt skeið en sækja þarf um leyfi til þess hjá sérstakri nefnd. Klónun á stofnfrumum í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum er hins vegar bönnuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×