Innlent

Sólbakur á leið í land

Talið er að Sólbakur, skip Brims, komi í höfn á morgun. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segist ekkert gefa upp um það hvort sjómenn ætli aftur að reyna að stöðva löndun úr skipinu. "Það þarf að reka Guðmund Kristjánsson til hlýðni með einhverjum ráðum. Það mun taka tíma en við verðum að taka þetta á seiglunni," segir Jónas. Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri hjá Brimi, segir að það verði ákveðið í dag hvar og hvenær skipið komi í land.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×