Innlent

Ráðningin gagnrýnd

Það þýðir ekkert fyrir konur að sækja um stöðu hæstaréttardómara, því strákarnir sjá um sína, sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingunni á Alþingi í dag í umræðu um skipan í dómaraembætti. Settur dómsmálaráðherra var sakaður um geðþóttaákvörðun þegar Jón Steinar Gunnlaugsson var skipaður. Lúðvík Bergvinsson fór fram á utandagskrárumræðu vegna skipana í embætti hæstaréttardómara. Hann gagnrýndi harðlega síðustu tvær skipanir við réttinn og sagði að ekki hefði verið farið eftir áliti hæstaréttar eða umboðsmanns Alþingis. Það hafi verið óskráð regla hingað til að fara eftir meðmælum Hæstaréttar. Ákvörðun ráðherra að leggja áherslu á einn þátt umfram annan eftir á, bendi til þess að valið hafi verið byggt á ómálefnalegum grunni. Settur dómsmálaráðherra, Geir H. Haarde, sagði að áður hefði verið bent á að leitað væri að dómara með reynslu af sjálfstæðum lögmannsstörfum. Geir sagðist vegna þessa hafa gefið því sérstakt vægi að sá sem ráðinn yrði nú hefði mikla reynslu. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingar sagði að ráðningin fæli í sér skýr skilaboð til kvenna þess efnis að það þyrfti að þekkja réttu kallana og vera með flokksskírteini. Jafnvel þótt konur væru hæfar yrði reglunum bara breytt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×