Blair var varaður við vanda í Írak 18. september 2004 00:01
Tony Blair var varaður við því fyrir stríðið í Írak, að hersveitir yrðu að vera þar árum saman til að tryggja einhverskonar stöðugleika. Sérfræðingar breskra stjórnvalda töldu engar líkur á gereyðingarvopnum í Írak, og að ástæða stríðsáhuga Bandaríkjamanna væri vilji Bush forseta til að ljúka verki föður síns. Þetta kemur fram í skýrslu sem bresk stjórnvöld fengu í hendur árið 2002, en Daily Telegraph hefur nú komið höndum yfir. Þykir skýrslan sýna vel, hversu miklar efasemdir Jack Straw, utanríkisráðherra, og embættismenn hans höfðu um stríðið í Írak. Ári fyrir upphaf stríðsins í Írak vöruðu þeir Blair við því, að hætta væri á því að annar einræðisherra tæki við völdum í Írak eftir að Saddam yrði komið frá, og að sá einræðisherra gæti haldið áfram þar sem Saddam hætti með þróun gereyðingarvopna. Skýrsluhöfundar sögðu engan vita hvað tæki við að lokinni innrás, en ljóst væri að stórt hersetulið þyrfti í landinu um árabil til að tryggja einhverskonar stöðugleika. Um ástæður stríðsins segir, að gabba verði Saddam til að gefa alþjóðasamfélaginu ástæðu til að ráðast inn í landið. Fram kemur að bresku embættismennirnir í utanríkisráðuneytinu telja ástæðu stríðsáhuga Bush Bandaríkjaforseta einkum vera óuppgerðar sakir Bush eldri við Saddam og vilji Bush yngri til að ljúka verði föður síns. Velheppnaðar aðgerðir í Afganistan sem og tortryggni gagnvart Sameinuðu þjóðunum og úrræðum þeirra eru einnig sagðir þættir í stríðsáhuganum. Í skýrslunni segir ennfremur, að nákvæmar rannsóknir á gereyðingavopnaeign Íraka sýni glögglega, að litlar sem engar framfarir hafi orðið hjá Írökum árin á undan.
Erlent Fréttir Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Sjá meira