Helgidómurinn yfirgefinn 20. ágúst 2004 00:01
Vopnaðir fylgismenn sjíaklerksins Muqtada al-Sadr fjarlægðu í gær vopn sín úr mosku Imam Ali í Najaf þar sem þeir hafa hafst við meðan á tveggja vikna uppreisn þeirra hefur staðið. al-Sadr hafði þá fyrirskipað þeim að láta moskuna af hendi við trúarleiðtoga sjíamúslima og hafði Ali al-Sistani, helsti trúarleiðtogi sjíamúslima, samþykkt að taka ábyrgð á moskunni. Blaðamenn á vettvangi sögðu að þegar komið var fram á kvöld hafi engin vopn verið eftir í moskunni. Þar hafi aðeins verið óvopnaðir meðlimir Mahdisveita al-Sadrs og óbreyttir borgarar. Af og til mátti þó heyra skotbardaga geysa í nágrenni moskunnar. Innanríkisráðherrann Sabah Kadhim sagði lögreglu hafa haldið inn í moskuna og handtekið 400 vopnaða vígamenn. Þetta sögðu blaðamenn að stæðist ekki. Enginn lögreglumaður hefði stigið fæti inn í moskuna og þaðan af síður hefðu handtökur átt sér stað í henni. Talsmaður al-Sadr sagði að vopnaðir vígamenn Mahdisveitanna hefðu tekið sér stöður í gömlu borginni í Najaf og að þar myndu þeir halda áfram baráttu sinni gegn Bandaríkjaher og íröskum samverkamönnum þeirra. Harðir bardagar áttu sér stað í Najaf í fyrradag og frameftir morgni í gær. Um hádegisbilið sögðu írösk yfirvöld að 77 manns hefðu látist og 70 slasast í átökunum á þessum tíma. Aðstoðarmaður al-Sadrs fluttu ræðu hans við messu í Kufamoskunni, nærri Najaf. Þar réttlætti al-Sadr að vígamenn sínir hefðu leitað sér skjóls í helgidómi Imam Ali. Margir hafa orðið til að gagnrýna það framferði vígamannanna þar sem með því hafi þeir aukið hættuna á að moskan yrði fyrir skemmdum. "Eru þeir sem finna sér skjól í helgidómnum sekir og þeir sem varpa sprengjum á hann heiðvirðir?" spurði al-Sadr í gegnum aðstoðarmann sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Svandís segir nei Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Fleiri fréttir Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sjá meira