Erlent

Ekki lengur velkominn í Palestínu

Æðsti sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna, í Miðausturlöndum, er ekki lengur velkominn á sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna, eftir að hann gagnrýndi Yasser Arafat harkalega. Terje Roed-Larsen, sagði á mánaðarlegum upplýsingafundi sínum, í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að Yasser Arafat hefði dregið lappirnar í tilraunum Egypta til þess að endurbæta öryggissveitir Palestínumanna, til samræmis við kröfur alþjóðasamfélagsins. Arafat er því sem næst í stofufangelsi í höfuðstöðvum sínum, á Vesturbakkanum, umkringdur ísraelskum hermönnum. Terje Roed Larsen sagði að það væri engin afsökun fyrir aðgerðarleysi hans. Ráðgjafi Arafats sagði, eftir þessa ádrepu, að Terje Roed-Larsen væri ekki lengur velkominn, á sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×