Bandarískir háskólar bestir 5. október 2004 00:01
Átta af tíu bestu háskólum heims eru í Bandaríkjunum og besti háskólinn í Evrópu, fyrir utan Bretland, er í 39. sæti yfir bestu háskóla heims samkvæmt nýrri rannsókn. Forkólfar Evrópusambandsins vilja að Evrópa sé leiðandi afl í þekkingariðnaði í heiminum en þeim gengur illa að fá ríksstjórnir í lið með sér. Bandaríkskir háskólar bera höfuð og herðar yfir aðra háskóla samkvæmt árlegri rannsókn Jiao Tong háskólans í Singapúr á gæðum háskóla víðs vegar um heim. Aðeins tveir skólar utan Bandaríkjanna komast inn á listann yfir 10 bestu háskólana: háskólinn í Oxford og háskólinn í Cambridge. Besti háskólinn í Evrópu utan Bretlands er hins vegar ekki að finna fyrr en í 39. sæti listans og er það háskólinn í Utrecht í Hollandi. Niðurstöðurnar stinga nokkuð í stúf við háleit áform Evrópusambandsins sem sett voru fram á ráðstefnu sambandsins í Lissabon árið 2000 þar sem sett var fram ítarleg áætlun um hvernig Evrópa ætti að verða orðin leiðandi afl í þekkingariðnaði í heiminum á næstu áratugum. Illa hefur hins vegar gengið að fá stjórnvöld einstakra ríkja til að fylgja áætluninni eftir og enn eru fjárútlát til menntunar í flestum Evrópulöndum í kringum 1% af vergri landsframleiðslu. Sama hlutfall er hartnær 3% í Bandaríkjunum og því ekki nema von að gæði skólanna séu þar meiri og laun háskólakennara ríflega helmingi meiri að jafnaði. Í rannsókninni kemur einnig fram að 400 þúsund efnilegir námsmenn frá Evrópu stunda rannsóknir í Bandaríkjunum og þrír af hverjum fjórum þeirra hafa engin áform um að snúa aftur heim. Þessari þróun hafa forkólfar Evrópusambandsins miklar áhyggjur af og vonast til þess að Bandaríkjamenn sjálfir færi þeim tækifærið til að snúa henni við á silfurfati, með þeim gríðarlega ströngu skilyrðum sem sett hafa verið fyrir vegabréfsáritunum erlendra nema í landinu eftir 11. september árið 2001. Síðan þá hefur erlendum nemendum í Bandaríkjunum fækkað verulega og að sama skapi fjölgað í Evrópu. Þannig hefur til að mynda nemendum frá Kína fjölgað um 60% í háskólum í Bretlandi undanfarin sjö ár.
Erlent Fréttir Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Sjá meira