Kerry leitar í smiðju Clintons 6. september 2004 00:01
John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, virðist hafa svarað efasemdum margra flokksbræðra sinna um kosningabaráttu sína með því að leita í smiðju síðasta demókrata á forsetastóli, Bills Clinton. Kerry ræddi við Clinton í á annan tíma áður en hann gekkst undir hjartaaðgerð og er tekinn til við að ráða gömlu ráðgjafa forsetans til starfa við kosningabaráttu sína í stórum stíl. Að sögn bandaríska dagblaðsins New York Times ráðlagði Clinton Kerry að hætta að tala jafnmikið um tíma sinn í Víetnam og Kerry hefur gert til þessa. Þess í stað ráðlagði Clinton honum að draga fram andstæður í málflutningi sínum og George W. Bush Bandaríkjaforseta um hvernig ætti að skapa ný störf og haga stefnunni í heilbrigðismálum. Það er ekki aðeins forsetinn fyrrverandi sem kemur að kosningabaráttu Kerrys því síðustu daga hefur hann ráðið marga fyrrum aðstoðarmenn Clintons til starfa í kosningabaráttu sinni, reyndar svo marga að farið er að tala um tvær kosningastjórnir þótt Kerry og hans menn neiti því. Meðal þeirra sem hafa verið ráðnir til starfa eru Joe Lockhart, fyrrum blaðafulltrúi Clintons, Joel Johnson og Doug Sousnik. Þá er gert ráð fyrir því að nokkrir helstu stjórnenda kosningabaráttu Clintons 1992, James Carville og Paul Begala auk Stanleys Greenberg komi til með að hafa mikil áhrif í kosningabaráttu Kerrys.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Innlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Erlent Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Erlent Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu Innlent Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Innlent Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Innlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Fleiri fréttir Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki Sjá meira