Athugasemdir við flest skólaeldhús 6. desember 2004 00:01
Athugasemdir voru gerðar við tuttugu og þrjú eldhús af þrjátíu og fjórum í grunnskólum Reykjavíkur. Þetta kemur fram í úttekt á starfsemi eldhúsa í grunnskólum Reykjavíkur sem unnin var fyrir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fræðsluráði, segist telja nauðsynlegt að ráðist verði í úrbætur á starfsemi eldhúsanna sem allra fyrst þar sem ljóst sé að staða þessara mála sé ekki nægilega góð í borginni. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, segir að langflest börn fái heitan mat í grunnskólum borgarinnar og að Reykjavíkurlistinn hafi viljað drífa af uppbyggingu skólaeldhúsa. "Okkur grunaði að það mætti bæta margt í rekstri þeirra og þess vegna létum við gera skýrsluna og nú vitum við hvaða skref þarf að stíga næst." Í engu eldhúsanna reyndist hægt að rekja uppruna matvara á pappír eða í tölvum heldur eingöngu eftir minni starfsmanna. Það er ófullnægjandi og óæskilegt. Þá segir að mikilvægt sé að mynda pólitíska stefnu um manneldismál í eldhúsunum því annars sé erfitt að uppfylla ströngustu kröfur um hollustu og heilbrigði. Koma þurfi á faglegum vinnubrögðum í eldhúsunum með innra eftirliti, gæðahandbók, hitastigsmælingum og næringarútreikningum. Þetta þurfi að koma til framkvæmda svo tryggja megi öryggi þeirra sex þúsund og fimm hundruð nemenda og starfsmanna sem borði hádegismat í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Stefán segir að nú verði gerðir staðlar fyrir öll eldhúsin með gátlistum um búnað og eldunaraðferðir. Þá verði tryggt að rekja megi uppruna vörunnar ef veikindi koma upp og í framhaldinu verði gerðir viðmiðunarmatseðlar sem mötuneytin geti nýtt sér til að hollustu- og kostnaðargreina máltíðir. Auk þess verður hagkvæmni leitað í innkaupum með útboðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Klara Baldursdóttir er látin Innlent Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Innlent Erlendur ferðamaður féll í Brúará Innlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns Innlent „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Innlent Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Erlent „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ Innlent Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Fleiri fréttir Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Sjá meira