Lífið
Missti köttinn í bruna Raunveruleikastjarnan og húðflúrlistakonan Kat von D lenti í því hörmulega atviki að missa bæði heimili sitt og gæludýr í bruna. Kat von D er fyrrverandi kærasta Jesse James, sem giftur var Söndru Bullock, og einnig Nikki Sixx, bassaleikara Mötley Crüe. Lífið 26.11.2010 05:00
Lone Ranger aftur af stað Eftir mikið volk í ólgusjó Hollywood er kvikmynd um Lone Ranger, grímuklædda kúrekann í villta vestrinu, og hestinn hans Silver loksins að verða að veruleika. Disney-fyrirtækið, í samstarfi við stórmyndakanónuna Jerry Bruckheimer, ætlar að framleiða kvikmynd um þessa frægustu persónu George W. Trendle sem varð feikilega vinsæl í amerísku útvarpi og sjónvarpi. Sjóræningjaleikstjórinn Gore Verbinski hefur verið ráðinn í leikstjórastólinn og Johnny Depp mun að öllum líkindum leika ráðagóða indíánann Tonto. Lífið 25.11.2010 22:00
Kántrí-upprisa Kid Rock Vandræðagemlingurinn Kid Rock sendi á dögunum frá sér plötuna Born Free. Ólíkt fyrstu skrefum Rocks í tónlistarbransanum er Born Free kántríplata af gamla skólanum og stefnubreytingin malar fyrir hann gull. Lífið 25.11.2010 21:00
Eftirsóttir andfætlingar Ástralskir og reyndar nýsjálenskir kvikmyndagerðarmenn hafa undanfarin ár tekið Ameríku með trompi í mörgum skilningi þess orðs. Þeir eru í fremstu röð en reyna um leið að halda tryggð við heimalandið. Lífið 25.11.2010 18:00
Einar er í góðum höndum Rithöfundurinn Árni Þórarinsson rambaði inn á tökustað Tíma nornarinnar í fyrradag en sjónvarpsþáttaröð Friðriks Þórs Friðrikssonar er einmitt byggð á samnefndri bók höfundarins um Einar blaðamann. Árni segir það hafa verið erfitt að skrifa handritið sjálfur. Lífið 25.11.2010 17:00
Elskendur og Elvis aðdáendur Í tilefni af útkomu plötu og mynddisk með Elvis-tónleikum Friðriks Ómars söngvara hélt hann tónleika í Salnum í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Meðfylgjandi má sjá myndir af Elvis aðdáendum. Lífið 25.11.2010 15:45
Ætlar ekki í fleiri lyfjameðferðir Í meðfylgjandi myndasafni má sjá þegar Helga Arnardóttir einn af stjórnendum sjónvarpsþáttarins Ísland í dag tók persónulegt og hjartnæmt viðtal við hetjuna Björk Andersen sem barist hefur við krabbamein í fimm ár. Björk ætlar ekki að fara í fleiri lyfjameðferðir en krabbameinið er komið á fjórða stig sem er lokastig sjúkdómsins en hún ætlar samt sem áður að lifa lífinu til fulls án verkja. Ísland í dag hefst strax að loknum fréttum í kvöld klukkan 18:55. Hér má lesa bloggið hennar Bjarkar. Lífið 25.11.2010 15:10
Vill aðeins stráka Söngkonan Rihanna viðurkenndi í viðtali við tímaritið Interview að hún væri aðeins farin að hugsa um barneignir og þegar sá tími kæmi langaði hana aðeins í syni. Lífið 25.11.2010 11:30
Íslenskt rokkabillí til Japans „Rokkabillíið er sko alls ekki búið,“ segir Gísli Veltan, en hljómsveit hans, The 59‘s, spilar á Rokkabillíkvöldi á Faktorý á föstudaginn. Lífið 25.11.2010 10:45
Hélt framhjá með sjö Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en hún er að komast að einhverju nýju um eiginmann sinn Tony Parker á hverjum degi. Nú á körfuboltamaðurinn að hafa haldið framhjá leikkonunni með sjö konum og meðal þeirra á að vera ein af bestu vinkonum stjörnunnar. Hjónin sóttu um skilnað á dögunum en bandarískir miðlar eru strax farnir að líkja Parker við kylfukappann Tiger Woods og hans skilnað fyrr á árinu. Lífið 25.11.2010 10:00
Á Charlie Sheen afturkvæmt til Hollywood? Líf leikarans Charlie Sheen hefur verið skrautlegt – svo vægt sé tekið til orða. Hann er reglulega kærður fyrir ofbeldisbrot, hefur farið í fjölmargar meðferðir og er nú sakaður um að reyna að kyrkja klámmyndaleikkonu. Lífið 25.11.2010 09:15
RÚV gerir þátt um Poppstjörnu Íslands „Þetta verður mjög skrautlegur og flottur þáttur,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. RÚV hóf nýlega framleiðslu á þætti um líf og starf poppstjörnunnar Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þátturinn verður á dagskrá laugardaginn 18. desember, þegar Hringekjan hefur runnið sitt skeið. Lífið 25.11.2010 08:45
Axl Rose ræðst á Guitar Hero Hinn léttgeggjaði Axl Rose, söngvari Guns N‘ Roses, hefur kært tölvuleikjaframleiðandann Activision sem framleiðir hina víðfrægu Guitar Hero leiki. Rose vill fá tuttugu milljónir dala í skaðabætur frá fyrirtækinu, en hann fullyrðir að hann hafi verið gabbaður til að leyfa því að nota smellinn Welcome to the Jungle í leiknum Guitar Hero III. Lífið 25.11.2010 08:00
Bonnie ‘Prince‘ tekur Sufjan Snillingurinn Bonnie ‘Prince‘ Billy verður á meðal flytjenda á ábreiðuplötu þar sem öll lögin verða af plötunni Seven Swans eftir Sufjan Stevens. Seven Swans kom út árið 2004 og er jafnan talin ein af betri plötum meistara Stevens. Lífið 25.11.2010 06:00
Christian Bale segir bless við Batman The Dark Knight Rises verður síðasta myndin sem Christian Bale mun klæðast skikkju Leðurblökumannsins í. Þetta kom fram í samtali Bale við fjölmiðla nýverið. Bale hefur leikið Batman og Bruce Wayne í tveimur myndum eftir Chris Nolan sem báðar hafa slegið í gegn hjá áhorfendum um allan heim. Bale kom hingað til Íslands þegar tökur á fyrri myndinni, Batman Begins, hófust en þær fór að mestu leyti fram við Svínafellsjökul. Þeirri mynd var ákaft fagnað enda hafði Leðurblökumaðurinn þá legið í dvala síðan að George Clooney og Arnold Schwarzenegger frystu þessa elskuðu myndasöguhetju. Lífið 25.11.2010 05:00
Einn frægasti kvenhugsuður sögunnar Kvikmyndin Agora eftir Óskarsverðlaunahafann Alejandro Amenábar er frumsýnd á Íslandi um helgina. Hún fjallar um síðustu daga Rómaveldis og hetjulega baráttu heimspekingsins, stærðfræðingsins og konunnar Hypatiu fyrir því að mikilvægri þekkingu Forn-Grkkja sé bjargað frá glötun. Lífið 25.11.2010 00:01
Hrefna Rósa landsliðskokkur: Við erum stolt Íslenska kokkalandsliðið hlaut í dag gullverðlaun í flokknum „Heitir réttir" á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Við heyrðum í Hrefnu Rósu Sætran landsliðskokki sem er stödd í Luxembourg. Þetta er frábær árangur og við erum stolt. Það er mikið keppnisfólk í liðinu. Kokkar eru oft eins og kvikmyndastjörnur í útlöndum og það er rosalega mikil virðing borin fyrir þeim svo maður gekk með nefið upp í loftið í höllinni. Mjög góð tilfinning," segir Hrefna sem er líka sjónvarpsstjarna með meiru en hún er með vinsælu Matarklúbbsþættina á Skjá einum. Núna höfum við lokið keppni og erum að ganga frá öllu dótinu okkar. Það er svo mikið af pottum og pönnum sem fylgir landsliðinu og við þurfum að pakka því vel svo að það komist heilt til Íslands með skipi. Annars erum við að fara út að borða öll saman í kvöld á stað sem heitir The Last Supper eða Síðasta kvöldmáltíðin og þar munum við skála í kampavín til að fagna. Tveggja ára vinna að baki, allir sáttir og strax byrjaðir að huga að því hvernig við getum náð því að verða Ólympíumeistarar," segir Hrefna himinlifandi yfir frábærum árangri. Lífið 24.11.2010 14:31
John Travolta eignast son John Travolta og eiginkona hans Kelly Preston eignuðust dreng í gær, sem hefur verið nefndur Benjamin. Benjamin er þriðja barn hjónanna en talsmaður þeirra sendi tilkynningu frá sér svohljóðandi: John, Kelly og dóttir þeirra Ella Bleu, eru himinlifandi yfir nýja fjölskyldumeðliminum. Bæði móður og barni heilsast vel." Frumburður þeirra, Jett, féll frá í janúar 2009. Lífið 24.11.2010 12:16
Barnabókahöfundur náði mynd af Lagarfljótsorminum Barnabókahöfundurinn Huginn Þór Grétarsson ætlar sennilega að verða afkastamesti rithöfundurinn í ár en hann hefur gefið út fjórar barnabækur. Þar af var ein bókin prentuð í tíu þúsund eintökum. Lífið 24.11.2010 11:10
Sóli Hólm á leið í sjónvarp Rithöfundurinn og skemmtikrafturinn Sólmundur Hólm Sólmundarson hefur verið ráðinn á Skjá einn og verður hann liðsmaður í nýjum skemmtiþætti sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni á næsta ári. Lífið 24.11.2010 10:00
Greinilega staður fallega fólksins „Það var brjálað stuð á opnuninni og virkilega gaman. Við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur um helgina. Það var æðislegt hversu margir mættu og stemningin þvílíkt góð til klukkan fjögur bæði kvöldin og allir svo ánægðir og kátir," svarar Draupnir Rúnar Draupnisson fyrrum Eurovision stjarna, kennari, flugþjónn, fararstjóri, mastersnemi og sérlegur áhugamaður um skemmtanalíf. Lífið 24.11.2010 09:42
Get vonandi boðið konunni upp í dans hér eftir Átta íþróttamenn ætla að læra að dansa undir styrkri handleiðslu Peters Anderson fyrir dag Rauða nefsins sem haldinn verður hátíðlegur 3. desember. Íþróttamenn eru taktlausir, segir einn þátttakenda. Lífið 24.11.2010 09:00
Þakkar Hrafni fyrir ferilinn Hin sænska Noomi Rapace er stolt af þeim tíma sem hún eyddi á Íslandi. Hún er þakklát Hrafni Gunnlaugssyni fyrir að kveikt í sér draum um að gerast leikkona. Lífið 24.11.2010 07:30
Alba vill fleiri börn Leikkonan Jessica Alba vill eignast fleiri börn á næstunni með eiginmanninum Cash Warren. Alba og bóndi hennar eiga tveggja ára dóttur, Honor Marie, og leikkonan vill gjarnan að dóttirin fái systkini til að leika sér við. Lífið 24.11.2010 06:00
Var fyrirsætan ekki að gera neitt fyrir þig? Leikkonan Kate Winslet er hætt með fyrirsætunni Louis Dowler en meðfylgjandi myndir voru teknar af þeim þegar allt lék í lyndi í september síðastliðnum. Eftir að Kate skildi við barnsföður sinn og eiginmann, leikstjórann Sam Mendes, fyrr á þessu ári, byrjaði hún fljótlega með fyrirsætunni en nú, aðeins fjórum mánuðum síðar hefur hún fengið nóg. Náinn vinur Kate sagði við tímaritið MailOnline: Louis var hækjan hennar eftir erfið sambandsslit við Sam og hún naut sín virkilega vel með honum en núna þarf Kate tíma út af fyrir sig. Hún vill einbeita sér að ferlinum og börnunum. Kate á sex ára son, Joe, með Sam og tíu ára gamla stúlku, Miu, með Jim Threapleton. Lífið 23.11.2010 10:12
Þýsk mynd um landkönnuði tekin upp á Langjökli „Þetta hljóta að vera einhverjar lengstu kvikmyndatökur sem hafa farið fram uppi á jökli hér á Íslandi,“ segir Kristinn Þórðarson hjá Saga Film. Um helgina lauk fjórtán daga tökumaraþoni fjörutíu manna tökuliðs frá Þýskalandi og Íslandi uppi á Langjökli. Jökullinn leikur stórt hlutverk í nýrri þýskri sjónvarpsmynd sem fjallar um frægt kapphlaup Roalds Amundsen og Roberts Scott á Suðurskautslandinu árið 1911 en hún verður frumsýnd í mars á næsta ári á þýsku stöðinni ZDF. Lífið 23.11.2010 09:00
Lítt reyndir nemar tóku upp myndband „Þetta gekk ótrúlega vel og tók enga stund,“ segir Garðar Örn Arnarson, 22 ára nemi við Kvikmyndaskóla Íslands. Lífið 23.11.2010 08:00
Hógvær Paul Potts vill íslenskan bjór Breski tenórinn Paul Potts treður upp með Björgvini Halldórssyni í Laugardalshöll nú í byrjun desember ásamt aragrúa söngvara, meðal annars norsku Eurovision-stjörnunni Alexander Rybak. Potts, sem er fyrrverandi símasölumaður í Bridgend, er greinilega ekki þjakaður af stjörnustælum því hann gerir ekki miklar kröfur um aðbúnað baksviðs – og þó. Lífið 23.11.2010 06:00
Fékk ráð hjá Downey Jr. Gwyneth Paltrow deyr ekki ráðalaus ef hana vantar ráð. Hún upplýsti í kanadísku útgáfunni af Hello! að hún hefði þegið góð ráð hjá Robert Downey Jr. hvað varðar ávanabindandi vímuefni. Eins og flestum ætti að vera kunnugt kom Downey sér reglulega í klandur út af slíkum málum á sínum yngri árum. Lífið 23.11.2010 06:00
Klippa fyrir Krabbameinsfélagið „Við erum búin að spara daginn og reyndum að bóka ekki mikið svo hægt væri að fá sem flesta í heimsókn,“ segir Kristján Aage Hilmarsson, hárgreiðslumaður á Sjoppunni. Á morgun stendur stofan fyrir góðgerðadegi til styrktar Krabbameinsfélaginu þar sem starfsmenn Sjoppunnar bjóða upp á klippingu allan daginn, gegn frjálsu framlagi. „Fólk kemur í klippingu, borgar það sem það vill og allur peningurinn fer beint í Krabbameinsfélagið,“ segir Kristján. Lífið 23.11.2010 06:00