Erlent

Hlutleysið rannsakað

Danska ríkisstjórnin ætlar að verja rúmum fimmtíu milljónum íslenskra króna í að rannsaka hvort fréttastofur danska ríkisútvarpsins rísi undir ábyrgð sinni að flytja "fjölbreyttar, hlutlausar og óháðar fréttir."

Erlent

Segjast vita hvar bin Laden er

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir að nokkurn veginn sé vitað hvar Osama bin Laden haldi sig en ekki verði látið til skarar skríða gegn honum strax. Þetta kemur fram í tímaritinu <em>Time</em>. Þar segir Porter Goss, yfirmaður CIA, að sökum ákveðinna veikleika, sem enn séu fyrir hendi í sameiginlegri baráttu gegn hryðjuverkum, þurfi að bíða með að ráðast til atlögu gegn bin Laden.

Erlent

Sagðir ætla myrða sendiherra

Yfirvöld í Afganistan greindu frá því í dag að þau hefðu handtekið þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa skipulagt tilræði við Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í landinu. Mennirnir eru allir Pakistanar og sagði tengjast íslömskum andspyrnuhópi, en þeir voru handteknir í Laghman-héraði í Austur-Afganistan daginn áður en sendiherrann kom þangað í heimsókn.

Erlent

Hermaður drepinn í fyrirsát

Ísraelskur hermaður lést og tveir særðust þegar palestínskir uppreisnarmenn sátu fyrir þeim og gerðu á þá árás nærri landamærum Egyptalands í gær. Óþekktur hópur uppreisnarmanna segist hafa náð atburðinum á myndband en ekki hefur verið staðfest að myndirnar séu ósviknar. Einn árásarmannanna lést í átökunum.

Erlent

Náðu ekki yfirhöndinni á fundi

Hvalveiðisinnum mistókst í morgun að ná yfirhöndinni á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Suður-Kóreu. Veiðisinnar urðu undir í atkvæðagreiðslu um breytingar á starfsemi Alþjóðahvalveiðiráðsins en japanska sendinefndin lagði til að atkvæðagreiðslur um tillögur yrðu framvegis leynilegar. Aðeins þremur atkvæðum munaði.

Erlent

CIA segist vita um bin Laden

Porter Goss, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, kvaðst í viðtali við tímaritið Time hafa "prýðilega hugmynd" um hvar Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída, felur sig.

Erlent

Lúxemborgarar kjósa

Þrátt fyrir óvissuna sem ríkir um þessar mundir í Evrópusambandinu ætla Lúxemborgarar að halda sínu striki og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrársáttmála ESB 10. júlí næstkomandi.

Erlent

Manntjón í óveðri í Afganistan

Neyðarástand ríkir í norðausturhluta Afganistans í kjölfar óveðurs og flóða sem gengu yfir Badakhshan-hérað í síðustu viku. Talið er að 29 hafi látist í hamförunum og 40 slasast en auk þess eyðilögðust ríflega þúsund heimili. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í dag að hún myndi dreifa 88 tonnum af mat og ýmsum öðrum hjálpargögnum á svæðinu, þar á meðal teppum og tjöldum til heimilislausra.

Erlent

Bandalag Hariris með meirihluta

Bandalag Saads Hariris virðist hafa náð hreinum meirihluta á þinginu í Líbanon eftir fjórða og síðasta hluta kosninga í landinu sem fram fór var í gær. Saad er sonur Rafiqs Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, sem var myrtur fyrr á þessu ári og flokkur hans er andsnúinn Sýrlendingum.

Erlent

Hafa nær jafnað Qaim við jörðu

Bandarískar og írakskar hersveitir hafa nær jafnað íröksku borgina Qaim við jörðu. Aðgerðirnar, sem beinast gegn uppreisnarmönnum, hafa skelfilegar afleiðingar fyrir íbúana.

Erlent

Blóðugur morgunn í Írak

Að minnsta kosti 25 Írakar féllu í árásum uppreisnarmanna í nótt og í morgun. Um klukkan tvö sprakk bílsprengja utan við lögreglustöð í Bagdad og í kjölfarið upphófst skothríð. Þar létust fimm lögregluþjónar og meira en tuttugu særðust. Snemma í morgun var svo gerð sjálfsmorðsárás við ráðningarstöð írakska hersins í borginni Arbil í norðurhluta Íraks.

Erlent

Stjórnarandstaðan sigraði

Stórtíðindi urðu í líbanskri stjórnmálasögu á sunnudaginn þegar andsýrlensku flokkarnir sigruðu í þingkosningunum. Allt útlit er fyrir að Saad Hariri fylgi í fótspor föður síns og verði forsætisráðherra landsins.

Erlent

Bondevik óvinsæll

Ný skoðanakönnun Aftenposten sýnir að vinsældir kristilegra demókrata, flokks forsætisráðherrans Kjell Magne Bondevik fara mjög þverrandi.

Erlent

Banatilræði afstýrt

Afgönskum leyniþjónustumönnum tókst í gær að afstýra banatilræði við Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í landinu.

Erlent

Búist við átakafundi í Ulsan

Búist er við átökum á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hófst í Ulsan í Suður-Kóreu í morgun. Hvalveiðisinnar gerðu sér vonir um að ná í gegn breytingum sem gerðu það að verkum að takmarkaðar hvalveiðar yrðu aftur leyfðar en slegið var á þær væntingar strax í upphafi fundar.

Erlent

Bandalag Hariris sigurvegari

Kosningayfirvöld í Líbanon voru rétt í þessu að staðfesta að bandalag Saads Hariris hefði hlotið meirihluta þingsæta í þingskosningum í landinu sem lauk í gær. Bandalagið hlaut öll 28 sætin í fjórða og síðasta hluta kosninganna í gær en það er andvígt afskiptum Sýrlendinga af stjórn landsins.

Erlent

Handtók grunaða mafíósa á Spáni

Lögregla á Spáni handtók á dögunum 28 menn sem taldir eru félagar í rússnesku mafíunni en þeir sakaðir um að hafa staðið fyrir umfangsmiklu peningaþvætti á Spáni. Að sögn talsmanns innanríkisráðuneytis Spánar veittu lögregluyfirvöld í Þýskalandi, Frakkland, Belgíu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Ísrael aðstoð við handtöku mannanna í einni mestu aðgerð gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu.

Erlent

Kosið um stjórnarskrá í Lúxemborg

Yfirvöld í Lúxemborg ákváðu í dag að hverfa ekki frá þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá Evrópusambandsins þann 10. júlí næstkomandi þrátt fyrir þá óvissu sem ríkir um hana í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar felldu hana.

Erlent

36 ár að greiða fyrir veitingar

Skuld kínverskra sveitarstjórnarmanna við veitingastað í Shaanxi-héraði er svo há að það tekur fjárvana sveitarfélagið 36 ár að greiða hana niður. Í <em>Beijing Evening News</em> kemur fram að síðustu fjögur ár hafi ráðamennirnir látið skrifa hjá sér veigar fyrir um eina og hálfa milljón íslenskra króna. Bæjarstjórnin hefur einungis heimild til að greiða brotabrot af skuldinni ár hvert og veitingastaðurinn er því gjaldþrota.

Erlent

Ók á áhorfendur í ralli

Rall í Rúmeníu fékk skelfilegan endi þegar einn ökumannanna missti stjórn á bílnum. Hann þeyttist niður brekku og að áhorfendum sem fylgdust með rallinu aðeins nokkra metra frá akstursbrautinni. Einn maður höfuðkúpubrotnaði og sjö aðrir slösuðust. Meiðsl þeirra voru sem betur fer ekki alvarleg.

Erlent

Endurtelja hluta atkvæða í Íran

Kjörstjórn í Íran hefur fyrirskipað að hluti atkvæða í forsetakosningunum í landinu á föstudag verði endurtalinn vegna ásakana umbótasinna um kosningasvik. Harðlínumaðurinn Mahmoud Ahmadinejad, borgarstjóri í Teheran, varð nokkuð óvænt í öðru sæti í kosningunum á eftir Akbar Rafsanjani, fyrrverandi forseta landsins, og verður að öllu óbreyttu kosið á milli þeirra í annarri umferð kosninganna á föstudaginn kemur.

Erlent

Olíuverð hækkar enn

Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að stíga í gær og fór fatið hæst upp í tæpa sextíu dali.

Erlent

Kvenráðherra sver embættiseið

Fyrsti kvenráðherra Kúveits sór í dag embættiseið á kúveiska þinginu við hávær mótmæli íslamskra harðlínumanna. Massouma al-Moubarak, fyrrverandi háskólaprófessor og baráttukona fyrir réttindum kvenna, var í síðustu viku skipuð skipulags- og stjórnsýsluráðherra í Persaflóaríkinu og tekur sæti á kúveiska þinginu sem slík. Moubarak sagði við athöfnina að dagurinn í dag markaði þáttaskil fyrir kúveiskar konur sem lengi hefðu barist fyrir því að fá að taka þátt í stjórnmálum í landinu.

Erlent

Skyndiflóð á Englandi

Eftir miklar rigningar hafa orðið skyndiflóð í norðurhluta Yorkshire á Englandi. Rafmagnslaust varð á svæðinu eftir óveður í nótt, vegasamgöngur lágu niðri í tveimur þorpum og mikið tjón hefur orðið á mannvirkjum. Hjálparsveitir hafa unnið hörðum höndum við að bjarga fólki úr bifreiðum, trjám og ofan af húsþökum. Líkur eru taldar á að flytja þurfi fólk af flóðasvæðinu því að spáð er áframhaldandi votviðri.

Erlent

Hyggjast innleiða reykingabann

Breska stjórnin mun í dag greina frá því að hún hyggist setja lög um algjört reykingabann á opinberum stöðum í Bretlandi. Upphaflega var talið að staðir sem ekki seldu mat yrðu undanskildir banninu en breska blaðið <em>Observer</em> hefur eftir heimildarmönnum innan Verkamannaflokksins að bannið muni ná til allra opinberra staða, líka hefðbundinna öldurhúsa.

Erlent

Zuma ákærður fyrir spillingu

Ríkissaksóknari Suður-Afríku greindi frá því í dag að Jacob Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku, yrði ákærður fyrir spillingu. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar þess að fjármálaráðgjafi Zuma var dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa haft millgöngu um mútur fyrir varaforsetann frá frönskum vopnaframleiðanda.

Erlent

Vargöldin heldur áfram

Þrátt fyrir hertar aðgerðir bandarískra og íraskra hermanna gegn uppreisnarmönnum síðustu daga héldu þeir síðarnefndu uppteknum hætti í gær. Þá féllu í það minnsta 28 manns í árásum víða um landið.

Erlent

Ísraelar og Palestínumenn sammála

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, segir að Ísraelar og Palestínumenn séu sammála um hvernig skuli staðið að brottflutningi gyðinga frá Gaza-svæðinu.

Erlent

Bandarísk þota nauðlenti í Íran

Bandarísk farþegaþota nauðlenti í Íran í dag vegna bilunar í farangursrými. Bandarískar flugvélar lenda ekki í Íran vegna viðskiptabanns Sameinuðu þjóðanna en þegar bilun varð í DC-10 þotu frá Northwest Airlines, á leið frá Indlandi til Hollands, bað flugstjórinn um heimild til þess að nauðlenda í Tehran. Það leyfi var þegar veitt.

Erlent