Erlent

Sneru aftur og stálu rifflum

Tveir ísraelskir landnemar, sem fluttir höfðu verið á brott frá Shirat Hayam landnemabyggðinni á Gaza-svæðinu, sneru þangað aftur í dag, stálu rifflum af ísraelskum hermönnum og hafa nú lokað sig af inni í byggingu í landnemabyggðinni. Samkvæmt ísraelsku sjónvarpi höfðu mennirnir fengið leyfi hjá hernum til að snúa aftur til heimilis síns til að sækja föggur sínar en gripu þá tækifærið og rændu rifflunum.

Erlent

Saka BBC um nornaveiðar

Múslímaráð Bretlands, stærstu samtök múlíma í Bretlandi, saka breska ríkissjónvarpið um að standa fyrir nornaveiðum gegn múlímum í fréttaskýringarþættinum <em>Panorama</em> sem sýna á í kvöld. Þar er vilji Múslímaráðsins til að takast á við öfgasinna í samfélögum múslíma dreginn í efa.

Erlent

Hátt í milljón við messu páfa

Allt að ein milljón ungmenna frá tæplega tvö hundruð löndum hlýddi á útimessu Benedikts sextánda páfa í Marienfeld í Þýskalandi í dag. Messan var lokapunktur fyrstu heimsóknar Benedikts til annars lands og brýndi hann fyrir ungdómnum að í trúnni sé ekki hægt að velja og hafna.

Erlent

Vioxx tekið af markaði hér í fyrra

Kviðdómur í Texas dæmdi í gær ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx, 253 milljónir Bandaríkjadala í bætur. Það jafngildir 16,5 milljörðum króna. Vioxx var mikið notað hérlendis þar til í fyrra.

Erlent

Spánverjar syrgja hermenn

Sautján spænskir hermenn sem létust í þyrluslysi í Afganistan á þriðjudag voru jarðsettir í dag með mikilli viðhöfn. Meðal þeirra sem sóttu athöfnina, sem fram fór í höfuðstöðvum hersins í Madríd, voru spænsku konungshjónin og Jose Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar. Lýst hefur verið yfir tveggja daga þjóðarsorg á Spáni vegna atburðanna, en ekki er enn ljóst hvað olli því að þyrlan hrapaði til jarðar.

Erlent

Náðu 276 kg af afmetamíni

Búlgarska lögreglan lagði á dögunum hald á 276 kíló af amfetamínpillum í áhlaupi á rannsóknarstofu þar sem eiturlyf voru framleidd í suðurhluta Búlgaríu. Tveir menn voru handteknir í áhlaupinu en talið er að það hafi átta að senda amfetamínið til Miðausturlanda. Samkvæmt innanríkisráðuneyti Búlgaríu er götuverðmæti efnanna talið 40 milljónir dollara, en það samsvarar ríflega 2,5 milljörðum íslenskra króna.

Erlent

Alvarlegt slys í Afganistan

Óttast er að allt að 20 manns hafi látist, þar á meðal konur og börn, þegar tvær rútur rákust saman í Zabul-héraði í Afganistan. Rúturnar komu hvor úr sinni áttinni en þær rákust saman á hraðbraut milli höfuðborgarinnar Kabúl og borgarinnar Kandahar í suðurhluta landsins. Um 30 manns slösuðust í árekstrinum.

Erlent

Sprengjutilræði í Dagestan

Þrír lögreglumenn biðu bana og fjöldi særðist í sprengjutilræði í Makhachkala, höfuðborg rússneska sjálfstjórnarhéraðsins Dagestan í Kákasusfjöllum.

Erlent

HM í tangó í Argentínu

Heimsmeistaramótið í tangódansi fer fram þessa dagana í Búenos Aíres í Argentínu. Á annað hundrað pör hófu keppni en nú eru þrjátíu eftir. Flest eru þau argentínsk, en tangóinn á rætur sínar þar. Hann varð til úr blöndu ýmissa dansa og alls konar tónlistar sem evrópskir innflytjendur fluttu með sér til Argentínu í byrjun síðustu aldar.

Erlent

85% landnema farin frá Gasa

Áttatíu og fimm prósent íbúanna í landnemabyggðunum á Gasaströndinni hafa nú yfirgefið heimili sín. Herinn getur ekkert gert í dag til að flytja þá sem eftir eru á brott vegna sabbatsins, hvíldardags gyðinga. Lögreglan telur þó að allar byggðirnar sem á að rýma verði orðnar auðar á mánudag.

Erlent

Sniglaplága í Danmörku

Garðeigendur í Danmörku keppast nú við að drepa Spánarsnigla í tugþúsundatali. Sniglarnir eru orðnir alger plága og virðist fjölga með hverju árinu.

Erlent

Munu áfram skjóta til að drepa

Lögregla í Lundúnum mun ekki hverfa frá þeirri stefnu að skjóta til drepa menn sem hún telur að ætli að fremja hryðjuverk. Að þessari niðurstöðu komust lögregluyfirvöld eftir endurskoðun á stefnunni í kjölfar þess að Brasilíumaðurinn Jean Charles de Menezers var skotinn fyrir mistök á Stockwell-lestarstöðinni í Lundúnum 22. júlí síðastliðinn.

Erlent

Hirtu þrjú tonn af kókaíni af báti

Sjóherinn á Frönsku Gvæjana lagði á sunnudaginn hald á þrjú tonn af kókaíni af fiskibáti frá Venesúela. Frá þessu greindu yfirvöld á staðnum í dag. Eftir ábendingu frá bandarísku strandgæslunni fylgdust frönsk yfirvöld með bátnum og létu loks til skarar skríða á fransk-gvæjönsku hafsvæði.

Erlent

Batt, pyntaði og myrti

Dómstóll í Sedgwick-sýslu í Kansas dæmdi á fimmtudaginn Dennis Rader, betur þekktan sem BTK, í tífalt lífstíðarfangelsi. Þar með er endi bundinn á harmleik sem rekur sig þrjátíu ár aftur í tímann.

Erlent

Handrit Einsteins fundið

Handrit að ritgerð sem Albert Einstein birti árið 1925 fannst í skjalasafni Leiden-háskóla í Hollandi á dögunum.

Erlent

Lögreglumenn vegnir í Dagestan

Að minnsta kosti þrír lögreglumenn létust og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk í Dagestan í Rússlandi í dag. Interfax-fréttastofan greinir frá því að bíll, sem var hlaðinn sprengiefni, hafi sprungið við eina aðalumferðaræðina í Makhachkala, höfuðborg Dagestans, í þann mund sem lögregla ók þar fram hjá í eftirlitsferð.

Erlent

Dæmdar bætur vegna áhrifa lyfs

Kviðdómur í Texas dæmdi í gær ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx 253 milljónir bandaríkjadala í bætur. Það jafngildir 16,5 milljörðum króna. Búist er við að þessi upphæð lækki verulega við áfrýjun en hlutabréf í Merck's, sem framleiðir Vioxx, féllu skarpt þegar fréttirnar bárust.

Erlent

Ráðist á flokksskrifstofur í Írak

Byssumenn réðust á skrifstofur Lýðræðisflokks Kúrdistans í Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag og særðu þrjá menn sem stóðu vörð um skrifstofurnar. Árásin kom í kjölfar mótmæla í borginni á vegum arabískra stjórnmálamanna sem eru andvígir því að Írak verði sambandsríki. Þeir telja að með því muni Kúrdar ná völdum í borginni.

Erlent

Flugvél brotlenti í Frakklandi

Flugmaður slökkviliðsflugvélar lést þegar vélin brotlenti í Ardeche-héraði í Suðaustur-Frakklandi í dag. Að sögn flugmálayfirvalda tók vélin þátt í slökkvistarfi á svæðinu en þar loga nú skógareldar. Yfirvöld segja annan mann hafa verið í flugvélinni en hann er ófundinn. Orsök slyssins er ókunn.

Erlent

Kosningadagur ákveðinn

Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar gaf út tilskipun í gær sem kveður á um að landið þar sem byggðir Ísraela á Gaza stóðu áður yrðu almenningseign. Auk þess tilkynnti hann að þingkosningar yrðu haldnar 25. janúar næstkomandi.

Erlent

Þúsundir Breta í mál við Merck

Búast má við því þúsundir Breta leiti réttar síns gagnvart lyfjafyrirtækinu Merck eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði í gær að ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx skyldu dæmdar bætur. Merck er gefið að sök að hafa leynt vitneskju um hættuleg aukaáhrif lyfsins, sem notað var gegn gigt, en rannsóknir sýndu að sá sem tók það í meira en átján mánuði var í tvöfalt meiri hættu að fá hjartaáfall.

Erlent

Mugabe með „hreinsunarátak“

Ríkisstjórn Roberts Mugabes heldur áfram svokölluðu „hreinsunarátaki" í kringum borgir landsins með því að sópa þúsundum manna sem búa í neyðarbúðum upp í bíla í skjóli myrkurs og skilja þær eftir vítt og breitt upp til sveita án nokkurrar aðstoðar. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa smyglað út myndum af ástandinu og segja það skelfilegt.

Erlent

Nýnasistar marséra í Kolding

Um eitt hundrað danskir, sænskir og þýskir nýnasistar gengu um bæinn Kolding í Danmörku í dag til þess að minnast dánardægurs Rudolfs Hess. Þá mótmæltu nýnasistarnir því að þýsk stjórnvöld hefðu bannað samsvarandi göngu þar í landi í síðasta mánuði. Lögregla í Kolding fylgdist vel með hópnum og lagði hald á nokkur barefli sem fundust á mönnunum en hópurinn fékk ganga um höfn bæjarins.

Erlent

Áhrif Vioxx rannsökuð hérlendis

Ekki er vitað um nein dauðsföll hér á landi af völdum gigtarlyfsins Vioxx en það á þó að rannsaka betur. Merck & co. ætlar að áfrýja dómi um skaðabætur sem fyrirtækið var dæmt til að greiða.

Erlent

Páfi ræðir við leiðtoga múslíma

Benedikt sextándi páfi er nú í fjögurra daga heimsókn í föðurlandi sínu, Þýskalandi. Í gær ræddi hann við leiðtoga gyðinga í sýnagógu í Köln og varaði við vaxandi gyðingahatri. Í dag hyggst páfinn ræða við leiðtoga múslíma, en um þrjár milljónir manna í Þýskalandi eru múslímar, flestir af tyrkneskum uppruna.

Erlent

Íslam verði meginuppspretta laga

Íslam verður „meginuppspretta“ íraskra laga og þingið mun starfa eftir reglum trúarinnar. Þetta eru nýjustu boð samningamanna sem sitja við gerð írösku stjórnarskrárinnar. Þeir eru nú þegar komnir fram yfir þann frest sem þeir gáfu sér í upphafi til að ljúka við fyrstu drög og ef þetta gengur í gegn er greinilegt að sjítar eru farnir að gefa eftir, en þeir hafa verið sammála megináherslu Bandaríkjastjórnar um að aðalatriði stjórnarskrárinnar eigi að snúast um lýðræði og mannréttindi.

Erlent

Skorar á múslima að sýna samstöðu

Á fundi með múslimaleiðtogum í Köln í Þýskalandi í gær fordæmdi Benedikt páfi XVI "grimma öfgahyggju" hryðjuverkamanna og skoraði á múslima að taka höndum saman með kristnum mönum í baráttunni gegn þeim.

Erlent