Erlent
Harðbannað að taka ljósmyndir Ferðamenn í Bretlandi þurfa að gæta sín sérstaklega framvegis að taka ekki ljósmyndir af lögregluþjónum, sem þeir kynnu að rekast á á förnum vegi. Erlent 23.2.2009 05:00
Í það minnsta 74 taldir af Að minnsta kosti 74 námaverkamenn voru í gær taldir af eftir að gassprenging varð í kolanámu í borginni Gujiao í norðurhluta Kína í gær. Öryggismál höfðu fram að slysinu verið í góðu lagi hjá námunni. Talið er að 436 námaverkamenn hafi verið í námunni þegar sprengingin varð. Í það minnsta 114 slösuðust í sprengingunni. Einhverjir lokuðust inni í námunni, en þeim hafði öllum verið bjargað í gærkvöldi. Ástand öryggismála í kínverskum námum hefur sætt harðri gagnrýni undanfarið og hafa kínversk stjórnvöld ítrekað lofað úrbótum.- bj Erlent 23.2.2009 03:00
Vilja refsiaðgerðir fyrir skattaskjólin Herða þarf reglur og eftirlit með fjármálakerfi heimsins, þar með talið vogunarsjóðum, og með þeim fjárfestum sem þar starfa, að mati leiðtoga nokkurra helstu Evrópuríkja, sem funduðu í Berlín í gær. Erlent 23.2.2009 03:00
Von úr ösku örvæntingar „Við rísum saman með von úr ösku örvæntingarinnar,“ sagði Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, þegar hann minntist fórnarlamba gríðarlegra skógarelda í landinu undanfarið. Erlent 23.2.2009 02:00
Þingmenn evrópráðsins geta fengið eina milljón punda fyrir störf sín Þingmenn Evrópuráðsins þéna allt að eina milljón punda, sem þeir fá greitt frá skattgreiðendum í formi aukakostnaðar, yfir eitt kjörtímabil sem eru fimm ár. Þetta kemur fram á vef Telegraph í kvöld. Þetta kom í ljós eftir að 92 blaðsíðna skýrslu var lekið í fjölmiðla. Efni hennar fer vandlega yfir aukakostnað þingmannanna. Erlent 22.2.2009 20:10
Vísir sýnir beint frá rauða dreglinum í nótt Vísir sýnir beint frá rauða dreglinum fyrir framan Kodak leikhúsið í Hollywood í kvöld þar sem allar helstu kvikmyndastjörnur samtíðarinnar koma saman í tilefni Óskarsverðlaunanna. Hver stjarnan á fætur annari mætir á svæðið til þess að sýna sig og sjá aðra. Útsending hefst á miðnætti og henni lýkur klukkutíma síðar. Erlent 22.2.2009 15:28
Sómalskir sjóræningjar ræna grísku flutningaskipi Fréttamaður BBC, Jonah Fisher, sem er staddur í herskipi undan ströndum Sómalíu, segir á vef breska ríkisútvarpsins að sómalskir sjóræningjar hafi rænt enn einu skipinu. Um er að ræða flutningaskip í eigu Grikkja. Sjóræningjarnir eiga að hafa haft samband við breska herskipið þar sem þeir sögðu þeim að halda sig í burtu. Erlent 22.2.2009 10:57
Tugir fastir í brennandi námugöngum Yfir 70 kolanámumenn fórust í sprengingu í Sjangsi héraði í Kína í morgun. Níutíu og sex til viðbótar eru í námunni. Erlent 22.2.2009 09:54
Brown heimsækir Barack Forsætiráðherra Bretlands, Gordon Brown, mun heimsækja forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, þann þriðja mars. Það er þá í fyrsta sinn sem þeir tveir hittast eftir að Obama var kosinn forseti Bandaríkjanna á síðasta ári. Erlent 21.2.2009 23:30
Seldi sjö bækur og var fangelsaður í þrjú ár Ástralski rithöfundurinn Harry Nicolaides var sleppt lausum úr Taílensku fangelsi í gær eftir að hafa setið þar í þrjú ár vegna skrifa sinna samkvæmt fréttastofu BBC. Erlent 21.2.2009 22:00
Svisslendingar vilja hefna sín á Bandaríkjamönnum Svissneski þjóðarflokkurinn vill hefna sín á Bandaríkjamönnum fyrir að ógna bankaleynd stærsta banka landsins, UBS. Erlent 21.2.2009 18:23
Tamil tígrar ráðast á Colombo Tvær flugvélar Tamíl tígra gerðu loftárás á Colombo höfuðborg Sri Lanka seint í gærkvöldi. Þær voru báðar skotnar niður. Önnur lenti í mýrlendi við flugvöll borgarinnar en hin steyptist á skrifstofu rikisskattstjórans. Hún stendur stendur skammt frá höfuðstövum flughersins og er talið að höfuðstöðvarnar hafi verið skotmarkið. Erlent 21.2.2009 11:33
Herða eftirlit með flugfélögum í kreppunni Danska flugmálastjórnin herðir eftirlit með flugfélögum af ótta við að slakað verði á öryggiskröfum til þess að bregðast við verri rekstraraðstæðum sem framundan eru. Erlent 20.2.2009 23:50
Skókastarinn iðrast einskis Íraski blaðamaðurinn sem kastaði skónum sínum að George Bush fyrrverandi bandaríkjaforseta iðraðist einskis þegar réttarhöldin yfir honum hófust í dag. Erlent 20.2.2009 12:25
Biskup gerður landrækur Kaþólski biskupinn sem neitaði að helförin hefði átt sér stað hefur verið gerður landrækur frá Argentínu. Erlent 20.2.2009 12:22
Flett ofan af ökuþórnum Prawo Jazdy í Dublin Írska lögreglan hefur loksins leyst gátuna um síbrotamanninn Prawo Jazdy. Prawo þessi var lengi talinn vera pólskur umferðarníðingur en hann var búinn að næla sér í 50 skráningar í tölvukerfi lögreglunnar í Dublin og aldrei fannst hann þegar átti að fara að rukka sektarféð. Erlent 20.2.2009 09:02
Google Earth afhjúpar leyndarmál Bandaríkjamanna í Pakistan Netforritið Google Earth, þar sem hægt er að fylgjast með lífinu á jörðinni í gegnum gervihnetti, hefur afhjúpað eitt af leyndarmálum bandaríska hersins í Pakistan. Erlent 20.2.2009 07:30
Hildarleikur mexíkóskra fíkniefnabaróna í algleymingi Styrjöld fíkniefnabaróna í Mexíkó hefur náð hæðum sem engan óraði fyrir. Þetta segir Monte Alejandro Garcia hjá mexíkósku almannaöryggisstofnuninni. Erlent 20.2.2009 07:06
Japönsk útgáfa af Jesus Christ Superstar sett upp í Tókýó Japanar hafa sett upp sína uppfærslu af söngleiknum Jesus Christ Superstar í hinu nafntogaða Gekidan Shiki-leikhúsi í Tókýó. Erlent 20.2.2009 07:02
FBI hafði hendur í hári Allen Stanford Bandaríska Alríkislögreglan (FBI) fann í kvöld milljarðamæringinn Allen Stanford í Virginíu í Bandaríkjunum. Stanfords hefur verið leitað vegna meintra fjársvika og peningaþvættis. Það var talsmaður Alríkislögreglunnar sem tilkynnti þetta fyrir stundu. Erlent 19.2.2009 21:54
Þrýsti ekki á forsætisráðherra Kanada Barack Obama bandaríkjaforseti segist ekki hafa þrýst á Stephen Harper forsætisráðherra Kanada um stuðning við herlið í Afganistan. Hann þakkaði þó fyrir framlag kandamanna. Erlent 19.2.2009 21:19
Kirgisar reka Bandaríkjamenn úr landi Þing Kirgistans samþykkti í dag tillögu ríkisstjórnar landsins um að Bandaríkjamönnum yrði gert að loka herstöð sinni í landinu. Þeir hafa 180 daga frest til að gera það. Herstöðin er sögð mikilvæg vegna birgðaflutninga til hermanna Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Erlent 19.2.2009 17:54
Sýknaðir af ákæru um að myrða Önnu Politkovskayu Mennirnir þrír sem ákærðir voru fyrir morðið á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskayu hafa allir verið sýknaðir. Fjórir menn voru sakaðir um aðild að morðinu, en Anna var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í október árið 2007. Einn þeirra er fyrrverandi yfirmaður í lögreglunni. Aðeins þrír menn voru þó færðir fyrir dóm. Sá fjórði sem var sakaður um að hafa skotið hana er enn á flótta undan réttvísinni. Erlent 19.2.2009 13:22
Efnahagshrun blasir við eyjunni Atígva vegna bandarísks auðjöfurs Algjört hrun blasir við efnahagslífi á karabísku eyjunni Atígva vegna meintra fjársvika og peningaþvættis bandaríska auðjöfursins Allen Stanford. Bandarísk yfirvöld leita hans, en Stanford fór í felur eftir að ákæra var lögð fram gegn honum. Erlent 19.2.2009 12:26
Netanyahu verður líklegast forsætisráðherra Auknar líkur eru á því að hægrimaðurinn Benjamín Netanyahu, leiðtogi Líkúd-bandalagsins, verði næsti forsætisráðherra Ísraels. Avigdor Lieberman, leiðtogi öfgahægrisinnaða Ísrael Beiteinu flokksins, hvatti í morgun Shimon Peres, forseta Ísraels, til að veita Netanyahu stjórnarmyndunarumboð. Erlent 19.2.2009 09:11
Netverslun vex fiskur um hrygg í Asíu Verslun á Netinu hefur margfaldast í Asíu með stórbættum nettengingum og aðgangi að Netinu. Erlent 19.2.2009 08:13
Enginn krepputónn í Óskarnum Þrátt fyrir að menn hafi fundið rækilega fyrir efnahagsástandinu á Wall Street og í atvinnulífinu fær það ekki að teygja anga sína inn í Óskarsverðlaunahátíðina um helgina. Erlent 19.2.2009 07:27
Lögregla í vanda vegna múslimareglna Reglur múslima, um að ekki megi snerta einstakling af gagnstæðu kyni utan þeirra fjölskyldu, hafa vakið töluverðar umræður innan norsku lögreglunnar en þar starfa nú orðið nokkrar lögreglukonur sem játa múhameðstrú. Erlent 19.2.2009 07:23
Netbankaþjófar gripnir í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur haft hendur í hári bíræfinna netbankaþjófa og samverkamanns þeirra. Þjófnaðurinn fór þannig fram að samverkamaðurinn leyfði þjófunum, nokkrum útlendingum, að nota íbúð sína og tölvu. Erlent 19.2.2009 07:21
Bresk lestarfargjöld hæst í Evrópu Lestarfargjöld í Bretlandi eru þau langhæstu í Evrópu og eru sumar ferðir þar allt að fjórum sinnum dýrari en sambærilegar ferðir á meginlandinu. Stéttarfélög og farþegar almennt hafa lýst megnri óánægju sinni með að fargjöld í Bretlandi hafi hækkað langt umfram verðlag í landinu síðan rekstur lestanna var einkavæddur árið 1990 og ekki dregur það úr gremjunni að félögin sem reka lestirnar græða á tá og fingri. Erlent 19.2.2009 07:16