Erlent

Sameinast gegn Google

Yahoo og Microsoft hafa hafið samstarf sem mun fela í sér að fyrirtækin muni vinna saman í samkeppni gegn Google í leitarvélum á internetinu. Google er með um 65 prósenta markaðshlutdeild meðal netnotenda en Yahoo og Microsoft eru samanlagt með um 30 prósent.

Erlent

Skattsvik eru dauðasök í Kína

Engin þjóð tekur fleiri af lífi árlega en Kínverjar, en nú vilja þeir fækka aftökum með því að veita fleiri skilorðsbundna dauðadóma, að því er Zhang Jun, varaformaður kínverska hæstaréttarins, segir í samtali við ríkisfjölmiðil þar í landi.

Erlent

Einhleypum best borgið í New York

New York er heppilegasta borg Bandaríkjanna fyrir einhleypa. Þar með hefur Atlanta verið rutt úr toppsætinu en hún hreppti hnossið í síðustu athugun á því hvar einhleypum liði best.

Erlent

Helfararstofnun nær aflögð

Minnstu munaði að ekkert yrði af fyrirhugaðri stofnun Wiesenthal-rannsóknarmiðstöðvarinnar í helfararfræðum í Vín vegna harðvítugra deilna milli fræðimanna stofnunarinnar og hóps gyðinga.

Erlent

Baskar gerast vígreifir í Burgos

Tæplega 50 manns særðust þegar bílsprengja sprakk í borginni Burgos á Norður-Spáni snemma í morgun. Sprengjan sprakk nálægt höfuðstöðvum borgaralögreglunnar Guardia Civil og er talið nær öruggt að ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, hafi staðið að baki henni.

Erlent

Árás á búðir Mujahedeen-samtakanna

Fjórir eru látnir og tæplega 400 særðir eftir að íraskir hermenn réðust á búðir íranskra hryðjuverkasamtaka í Írak í gærkvöldi. Það voru búðir Mujahedeen-samtakanna sem urðu fyrir árásinni en Mujahedeen eru íranskir stjórnarandstæðingar sem tengjast hryðjuverkastarfsemi.

Erlent

Húsleit hjá lækni Jacksons

Lögreglan í Las Vegas gerði í gær húsleit á heimili Conrads Murray, læknis Michaels Jackson heitins, en grunur leikur á að hann hafi gefið poppgoðinu sterkt svæfingarlyf rétt áður en dauða Jacksons bar að höndum í júní.

Erlent

Forseti FIFA í Hvíta húsinu: Obama vill HM vestur um haf

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fundaði í gær með Sepp Blatter, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA), í Hvíta húsinu í Washington. Á fundinum hvatti Obama Blatter til að beita sér fyrir því að heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu (HM) árið 2018 verði haldin í Bandaríkjunum.

Erlent

Leitað á heimili læknis Jackson

Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum leituðu á heimili læknisins Conrad Murray í Las vegas í dag vegna rannsóknar á láti poppstjörnunnar Michael Jackson.

Erlent

Ekkert umburðarlyndi á Íslendingahátíð

Það verður ekkert umburðarlyndi sýnt af hálfu lögreglunnar á Íslendingahátíðinni í Gimli um næstu helgi. Lögreglan mun koma í veg fyrir neyslu áfengis á almannafæri, drykkju ungmenna og almennar óspektir hvar sem slík athæfi sjást.

Erlent

Símahrekkir óvinsælir í Hvíta húsinu

Tæplega tvítugur Breti, sem hringdi dauðadrukkinn í Hvíta húsið í maí í fyrra og tilkynnti um sprengju í miðborg New York, slapp naumlega við að sitja inni en hlaut í gær sex mánaða skilorðsdóm og var gert að vinna 250 klukkustundir í samfélagsþjónustu.

Erlent

Obama er víst Bandaríkjamaður

Hvíta húsið gaf í gær út yfirlýsingu um að Barack Obama væri bandarískur ríkisborgari. Það var gert vegna þrálátra yfirlýsinga þrýstihóps, sem ekki er þeirrar skoðunar.

Erlent

Gagnrýnir lúxus í unglingafangelsi

Unglingafangelsið Warren Hill í Suffolk í Bretlandi sætir gagnrýni félagsmálayfirvalda þar eftir að fyrrverandi starfsmaður ljóstraði því upp að fangelsið minnti í besta falli á þægilegar sumarbúðir.

Erlent

Bandaríkjamenn reyna að þrýsta á Ísraelsstjórn

George Mitchell, sendifulltrúi Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, og Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, leggja nú hart að Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Ehud Barak varnarmálaráðherra um að hefja á ný samningaviðræður við Palestínumenn.

Erlent

Segja Biden fallinn í sama far og Bush

Ummæli Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, þess efnis að efnahagserfiðleikar Rússa geri þá eftirgefanlegri í samningum við Bandaríkin um ýmis öryggismál, virðast hafa farið fyrir brjóstið á Rússum.

Erlent

Kanadamenn æfir vegna selveiðibanns ESB

Kanadamenn munu gera athugasemdir við selveiðibann Evrópusambandsins frammi fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO að því er haft er eftir milliríkjaviðskiptaráðherra landsins.

Erlent