Erlent

Feðgar grunaðir um hryðjuverkaáætlanir

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Dómstóllinn í Caswell-sýslu í Norður-Karólínu.
Dómstóllinn í Caswell-sýslu í Norður-Karólínu.

Lögregla í Norður-Karólínu hefur handtekið og ákært sjö manns vegna gruns um að þeir hafi lagt á ráðin um að fremja hryðjuverk. Á meðal hinna handteknu eru faðir og tveir synir hans. Faðirinn var búsettur í Afganistan og Pakistan árum saman og hlaut þar þjálfun í hryðjuverkabúðum. Hann barðist við Sovétmenn í Afganistan frá 1982 en sneri aftur til Bandaríkjanna árið 1992. Hinir handteknu játa allir íslamstrú og segja vitni þá hafa hvatt samferðarmenn sína til að fylgja sér í heilögu stríði, eða jihad, gegn Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×