Erlent
Listaverk þekktasta fanga Bretlands vekja reiði Listaverk eftir einn þekktasta fanga Bretlands sem nú eru til sýnis í neyðarjarðarlestarstöðvum í London hafa vakið mikla reiði stuðningshópa fórnarlamba ofbeldis. Erlent 29.4.2010 08:20
Alexander McQueen innbyrti eiturlyf fyrir sjálfsmorðið Breski tískuhönnuðurinn Alexander McQueen framdi sjálfsmorð eftir að hafa innbyrt mikið magn eiturlyfja. Þetta hefur rannsókn dánarstjóra í London leitt í ljós. McQueen sem var bugaður af sorg og undir miklu álagi í vinnunni fannst látinn á heimili sínu í London í febrúar. Í líkama hans fundust meðal annars kókaín, svefnlyf og róandi lyf. Erlent 29.4.2010 08:10
Fimm sinnum meiri olía lekur Bandaríska strandgæslan segir að olíulekinn á Mexíkóflóa sé fimm sinnum meiri en talið var í fyrstu. Hingað til hefur verið talið að um 160 þúsund lítrar af olíu hafi lekið í hafið á degi hverjum en hið rétta er að um rúmlega 750 lítrar af olíu koma úr borholunni. Erlent 29.4.2010 08:03
Mótmælendur handteknir í Bangkok Tugir mótmælenda hafa verið handteknir í Bangkok, höfuðborg Tælands, eftir að hörð átök brutust út í gær milli hermanna og mótmælenda sem kalla sig rauðu skyrturnar. Hermaður lést í átökunum og á þriðja tug særðust. Herinn skaut bæði gúmmíkúlum og venjulegum byssukúlum á mótmælendur. Erlent 29.4.2010 07:59
Hvetur Grikki til bjartsýni „Kreppa er tækifæri,“ sagði George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, og reynir að hvetja til bjartsýni þrátt fyrir verðfall á hlutabréfamörkuðum og vantrú matsfyrirtækisins Standard & Poor‘s á fjárhagsstöðu gríska ríkisins. Erlent 29.4.2010 02:30
Herinn skaut á mótmælendur Taíland, AP Til átaka kom milli hers og mótmælenda rétt fyrir utan Bangkok í gær. Herinn skaut bæði gúmmíkúlum og venjulegum byssukúlum á mótmælendur. Að minnsta kosti átján manns særðust og einn hermaður lést, varð að því er virðist fyrir skoti úr byssu félaga síns. Erlent 29.4.2010 02:00
Bart finnur til með Southpark höfundum Höfundar Simpsons þáttanna hafa nú sýnt höfundum Southpark teiknimyndaþáttanna samhug í verki með því að víkja að þeim vandræðum sem þeir síðarnefndu eru nú í. Höfundar Southpark, þeir Trey Parker og Matt Stone hafa fengið líflátshótanir frá öfgasinnuðum múslímum eftir að Múhameð spámanni brá fyrir í einum þættinum íklæddur bjarnarbúningi. Erlent 28.4.2010 21:44
Leiðtogar Evrópu hittast á neyðarfundi vegna Grikklands Í ljósi þess að Grikkland rambar á barmi gjaldþrots ákváðu leiðtogar þeirra sextán ríkja sem notast við evruna í dag að boða til neyðarfundar. Á fundinum ætla menn að reyna að koma í veg fyrir að vandræði Grikkja smiti út frá sér en krísan sem nú er uppi er sú versta sem evran hefur gengið í gegnum á ellefu ára ferli sínum. Erlent 28.4.2010 21:30
Fjórir létust í göngum á Gaza Fjórir Palestínumenn létust í dag þegar þeir voru að fara í gegnum göng sem grafin höfðu verið frá Gazasvæðinu og til Egyptalands. Óljósar fregnir eru af atvikinu en sumir segja að göngin hafi fallið saman eftir sprengingu við gangnaopið Egyptalandsmegin. Erlent 28.4.2010 21:14
Barn lifði í tvo daga eftir fóstureyðingu Deilur um fóstureyðingar hafa sprottið upp að nýju á Ítalíu eftir að mistök voru gerð við slíka aðgerð á dögunum. Erlent 28.4.2010 21:00
Strauss-Kahn: Hver dagur skiptir máli Framkvæmdastjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins segir að hver dagur sem vandi Grikklands sé óleystur auki hættuna á að vandinn breiðist út. Erlent 28.4.2010 19:17
Talibaninn og Gyðingarnir Öryggisráðgjafi Baracks Obama Bandaríkjaforseta hefur beðið Gyðinga afsökunar á brandara sem hann sagði í ræðu sem hann flutti í Washington Instutute for Near East Policy. Erlent 28.4.2010 15:43
Stakk 15 börn með hnífi Maður vopnaður hnífi réðst inn í leikskóla í Kína í dag og stakk fimmtán börn og einn kennara. Erlent 28.4.2010 15:22
Þingmaður tók sér barnabrúður Mannréttindasamtök í Nígeríu hafa mótmælt því að fimmtugur þingmaður þar í landi hefur kvænst þrettán ára gamalli egypskri telpu. Erlent 28.4.2010 14:39
Er þetta innan úr Örkinni hans Nóa? Fornleifafræðingar í leiðangri evangelista frá Kína og Tyrklandi telja sig hafa fundið flakið af Örkinni hans Nóa í tólfþúsund feta hæð á fjallinu Ararat. Erlent 28.4.2010 13:15
Tinni fyrir rétti í Belgíu -sakaður um kynþáttafordóma Blaðamaðurinn Tinni er nú fyrir rétti í Belgíu. Áttatíu árum eftir að bókin Tinni í Kongó kom út hefur kongóskur maður krafist þess að hún verði tekin úr verslunum í Belgíu. Erlent 28.4.2010 09:42
Hörð átök í Bangkok Hörð átök brutust út í Bangkok, höfuðborg Tælands, í morgun milli hermanna og mótmælenda sem krefjast þess að þing landsins verði leyst upp, boðað verði til kosninga og að forsætisráðherrann fari úr landi. Erlent 28.4.2010 09:07
Pabbi Madeleine: Yfirvöld brugðust dóttur minni Gerry McCann, faðir Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007, segir að bresk yfirvöld hafi brugðist dóttur hans. Erlent 28.4.2010 08:15
Ræningi huldi andlitið með klósettpappír Lögregla leitar manns sem rændi verslun vopnaður hnífi í borginni Lincoln í Nebreska í Bandaríkjunum um helgina. Það væri ekki frásögu færandi enda vopnuð rán algeng vestanhafs. Það sem vekur hins vegar athygli er að ræninginn huldi andlit sitt með klósettpappír. Erlent 28.4.2010 08:02
Eitt mesta umhverfisslys Bandaríkjanna í uppsiglingu Nái olía sem lekur úr frá sokknum olíuborpalli á Mexíkóflóa til bandarískrar strandar verður eitt mesta umhverfisslys í sögu Bandaríkjanna. Erlent 28.4.2010 07:53
HIV-smitaðir geta heimsótt Kína Kínversk yfirvöld hafa aflétt ferðatakmörkunum sem komu í veg fyrir að HIV-smitaðir útlendingar ferðuðust til landsins. Ákvörðunin er tekin í tengslum við heimssýninguna í Shanghai sem hefst formlega á laugardaginn. Búist er við að yfir milljón erlendir gestir leggi leið sína til borgarinnar á meðan sýningin stendur yfir næsta hálfa árið. Erlent 28.4.2010 07:50
Ákærður fyrir fjöldamorð Kurmanbek Bakijev, útlægur forseti Kirgistan, hefur verið ákærður fyrir að skipuleggja fjöldamorð. Forsetanum og ríkisstjórn hans var bolað í burtu fyrr í mánuðinum þegar óeirðir brutust út í landinu eftir að tilkynnt var um gríðarmikla hækkun á rafmagnsverði. Ríkisstjórnin hafði jafnframt verið sökuð um langvarandi spillingu. Erlent 28.4.2010 07:47
Morðingi Malcolms X á reynslulausn Thomas Hagan sem sakfelldur var fyrir morðið á blökkumannaleiðtoganum Malcolm X var látinn laus til reynslu í dag 45 árum eftir morðið. Hagan, sem nú er 69 ára gamall, var sá eini sem játaði aðild sína að morðinu en tveir aðrir voru einnig sakfelldir og voru þremenningarnir dæmdir í fangelsi í 20 ár hið minnsta. Hagan hefur fengið að stunda vinnu utan fangelsisins frá árinu 1988 en í dag er hann laus allra mála, haldi hann skilorðið. Erlent 27.4.2010 23:20
Vara við stríði vegna Scud eldflauga Egyptar hafa varað við stóraukinni spennu milli Ísraels og Líbanons vegna fullyrðinga um að Sýrlendingar hafi látið Hizbolla samtökunum í té langdrægar Scud eldflaugar. Erlent 27.4.2010 16:06
Upphlaup vegna innflytjendalaga Mikil geðshræring er í Bandaríkjunum vegna nýrra laga um ólöglega innflytjendur sem hafa verið samþykkt í Arizona. Erlent 27.4.2010 14:15
Húgó sakar Bandaríkin um rafeindastríð Hugo Chavez forseti Venesúela sakaði í dag Bandaríkin um að reka rafeindastríð gegn landi sínu. Erlent 27.4.2010 12:44
Rússar og Norðmenn skipta Barentshafi á milli sín Norðmenn og Rússar hafa náð samkomulagi eftir fjörutíu ára deilur um yfirráð yfir Barentshafi. Erlent 27.4.2010 11:15
Ísraelar frysta framkvæmdir í Jerúsalem Tilkynnt var um byggingu 1600 íbúða í þessum borgarhluta í síðasta mánuði einmitt þegar Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna var í heimsókn í Ísrael. Erlent 27.4.2010 10:26
Vopnaður maður handtekinn í grennd við forsetaflugvélina Vopnaður karlmaður var handtekinn á flugvellinum í Norður-Karólínu skömmu áður en flugvél Barack Obama, Bandaríkjaforseta, hélt á brott í gær. Maðurinn var stöðvaður áður en komst í tæri við forsetann. Erlent 27.4.2010 08:38
Höfuðkúpubraut 14 ára nemanda „Drepstu, drepstu, drepstu,“ hrópaði breskur náttúrufræðikennari áður en hann sló 14 ára gamlan dreng í höfuðið með lóði í kennslustund á síðasta ári. Réttarhöld í málinu hófust í gær en kennarinn á yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. Erlent 27.4.2010 08:29