Barn lifði í tvo daga eftir fóstureyðingu Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. apríl 2010 21:00 Prestur mótmælir fóstureyðingum. Mynd/ AFP.
Deilur um fóstureyðingar hafa sprottið upp að nýju á Ítalíu eftir að mistök voru gerð við slíka aðgerð á dögunum. Kona gekkst undir fóstureyðingu á laugardaginn, í bænum Rossano á suðurhluta Ítalíu. Þar með gekk hún út frá því að hið 22 vikna gamla fóstur væri látið. Það sama héldu læknarnir sem gerðu fóstureyðinguna og skildu þeir því fóstrið eftir á spítalanum. Daginn eftir uppgötvaði prestur sem hugðist biðja fyrir fóstrinu að það dró ennþá andann. Fóstrið var vafið inn í lak og naflastrengurinn hafði ekki verið klipptur af. Þá voru liðnir um það bil 20 klukkustundir frá því að aðgerðin var gerð. Presturinn hafði strax samband við starfsfólk spítalans sem fór umsvifalaust með fóstrið á sérstaka deild fyrir fyrirbura. Þar lést barnið á mánudagsmorgun, næstum tveimur dögum eftir að það var fjarlægt úr móðurkviði, eftir því sem fram kemur í Daily Telegraph. Samkvæmt ítölskum lögum er læknum skylt að sjá til þess að börn lifi, ef fóstureyðing mislukkast með þessum hætti. Lögreglan á Ítalíu rannsakar því málið sem kom upp um helgina sem manndráp. Ítölsk stjórnvöld hafa líka ákveðið að rannsaka hvaða þátt starfsfólk spítalans lék í atburðarásinni. Málið hefur valdið töluverðum deilum á Ítalíu, ekki síst vegna þess að þetta er í annað sinn á fáeinum árum að fóstur lifir í nokkra daga eftir að það er fjarlægt úr móðurkviði. Síðast gerðist það árið 2007, en þá lifði 480 gramma drengur í þrjá daga eftir fóstureyðingu.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira