

Guðný Árnadóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð og íslenska landsliðsins í fótbolta, er á leið í aðgerð vegna meiðsla á fæti. Hún verður því ekki með liðinu í komandi verkefni en Ísland mætir Danmörku þann 2. desember næstkomandi.
Jón Daði Böðvarsson byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Hollywood-lið Wrexham þegar liðið mætti Port Vale í EFL-bikarnum í fótbolta. Kom hann að eina marki Wrexham í leiknum.
Glódís Perla Viggósdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru báðar í byrjunarliðum sinna liða þegar Bayern München tók á móti Vålerenga í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta í kvöld. Bayern gerði út um leikinn snemma leiks.
Axel Óskar Andrésson mun ekki leika áfram með KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann hefur nú formlega kvatt liðið á samfélagsmiðlum, ber hann félaginu og KR-ingum í heild sinni söguna vel.
Bruno Fernandes, fyrirliði enska knattspyrnufélagsins Manchester United og landsliðsmaður Portúgal, var meðal þeirra sem komu farþega um borð í flugvél easyJet frá Manchester til Lissabon til bjargar.
Arsenal vann öruggan 4-0 sigur á Juventus í Meistaradeild Evrópu kvenna. Þá skoraði Barcelona sex mörk gegn St. Pölten frá Austurríki.
Kristófer Ingi Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Breiðabliks í knattspyrnu út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans átti að renna út nú um áramótin og var áhugi á leikmanninum bæði hér á landi sem og erlendis.
Fyrrum knattspyrnumaðurinn og núverandi knattspyrnusérfræðingurinn Danny Murphy telur að dómarinn David Coote munu aldrei aftur dæma í ensku úrvalsdeildinni.
Hollenski knattspyrnustjórinn Erik ten Hag gæti tekið við öðru stórliði í Evrópu.
Annað árið í röð hlýtur Höttur á Egilsstöðum langmest úr Mannvirkjasjóði Knattspyrnusambands Íslands, eða rúmlega helming af þeim 30 milljónum sem útdeilt er í ár. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Fellavelli Hattarmanna.
Fyrirliðinn Martin Ödegaard verður ekki með norska landsliðinu í leikjunum við Slóveníu og Kasakstan, í Þjóðadeildinni í fótbolta á næstu dögum.
Frank Lampard kemur til greina sem næsti knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Coventry City.
Damir Muminovic, miðvörður Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, hefur komist að samkomulagi við félagið um að yfirgefa það tímabundið til þess að spila í úrvalsdeild í Singapúr.
Til stóð að að Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta myndi tilkynna EM hóp Íslands í höfuðstöðvum Icelandair núna klukkan tvö. Blaðamannafundinum var hins vegar aflýst á síðustu stundu.
Craig Pedersen hefur valið sextán leikmenn í íslenska landsliðið í körfubolta fyrir leikina tvo við Ítalíu í undankeppni EM, 22. og 25. nóvember. Liðið þarf að spjara sig án Martins Hermannssonar sem er meiddur.
Katrín Ásbjörnsdóttir bíður þess enn að ganga frá nýjum samningi við Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta. Hún hefur æfingar með liðinu í vikunni en samningur hennar er runninn út.
Marco Angulo, leikmaður MLS liðsins FC Cincinnati og landsliðsmaður Ekvador, er látinn aðeins 22 ára að aldri.
Formaður Körfuknattleikssambands Íslands óttast ekki fjölgun mála á borð við það sem körfuknattleiksdeild Grindavíkur var dæmd fyrir, vegna hegðunar DeAndre Kane í hálfleik gegn Hetti í Bónus-deildinni, þrátt fyrir lága sekt.
Samkvæmt útreikningum ofurtölvu Opta er langlíklegast að Liverpool verði Englandsmeistari.
Ferill fótboltamannsins Arnórs Smárasonar dró hann víða um heim og það gekk á ýmsu. Atvik frá leik í Svíþjóð 10 árum síðan situr enn í honum.
Hlín Eiríksdóttir átti skínandi tímabil með Kristianstad í Svíþjóð og er tilnefnd sem sóknarmaður ársins í sænsku deildinni. Hún finnur fyrir áhuga frá öðrum liðum á kröftum sínum en gæti vel hugsað sér að vera hjá Íslendingaliðinu lengur.
Bandaríkjamaðurinn Courvoisier McCauley hefur leikið sinn síðasta leik fyrir lið Hattar í Bónus deildinni í körfubolta og er á heimleið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Hetti núna í morgun.
Fyrstu þjálfarabreytingarnar hafa orðið í Bónus deild karla í körfubolta því Ísak Máni Wium er hættur með ÍR.
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að Martin Ødegaard, fyrirliði Arsenal og norska landsliðsins, sé í erfiðri stöðu.
Eftir að myndband af dómaranum David Coote þar sem hann kallar Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins tussu, fór í dreifingu hafa stuðningsmenn Rauða hersins rifjað upp gömul atvik tengd dómaranum.
Mikil gleði var í Kópavogi í sumar þar sem bæði karla- og kvennalið Breiðabliks urðu Íslandsmeistarar. Gleðin var ekki síst á heimili parsins Damirs Muminovic og Katrínar Ásbjörnsdóttur sem unnu hvor sinn titilinn.
Eftir að hafa stýrt Match of the Day á BBC frá 1999 hættir Gary Lineker með þáttinn vinsæla eftir tímabilið.
Anthony Elanga, leikmaður spútnikliðs Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni, er ekki í landsliðshópi Svíþjóðar fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni. Landsliðsþjálfarinn Jon Dahl Tomasson hefur reynt að ná í vængmanninn sem svarar ekki símanum og virðist ekki hafa neinn áhuga á að hringja til baka.
Enska knattspyrnufélagið Chelsea ku vera tilbúið að hlusta á tilboð í framherjann Christopher Nkunku þrátt fyrir að hann sé markahæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni.
Árni Þór Hilmarsson hefur ákveðið að segja starfi sínu sem þjálfari Selfoss í 1. deildar karla í körfubolta lausu vegna heilsufarsástæðna. Hann greindi frá ákvörðuninni á Facebook-síðu sinni.