Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Aron Guðmundsson skrifar 3. mars 2026 17:47 Lewis Hamilton átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Formúlu 1 liði Ferrari en nær hann að slá frá sér á komandi tímabili? Vísir/Getty Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 heldur nú inn í sitt tuttugasta tímabil í mótaröðinni og í færslu á samfélagsmiðlum í dag lítur hann yfir farinn veg og þakkar þeim sem efuðust um hann og reyndu að slá niður. „
Tuttugu ár af ótrúlegum hæðum og hrottalegum lægðum. Fleiri mistök en ég get talið en þessi mistök gerðu þessa vegferð enn sætari. Þú heldur á lyklinum að örlögum þínum. Allt sem þú þarft til þess að skara fram úr býr innra með þér,“ skrifar Hamilton í færslu á samfélagsmiðlum. Hann er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil í Formúlu 1 sem hefst um komandi helgi í Albert Park í Melbourne þegar að tímabilið 2026 í Formúlu 1 hefst. Hamilton er á sínu öðru tímabili sem ökuþór Ferrari og eftir fremur erfitt fyrsta tímabil hjá liðinu goðsagnakennda vonast hann til þess að gera mun betur í ár. Hamilton er sá ökuþór, ásamt Michael Schumacher, sem hefur unnið felsta heimsmeistaratitla ökuþóra í mótaröðinni. Alls eru heimsmeistaratitlarnir sjö talsins. Bretinn varð fjörutíu og eins árs fyrr á árinu og er stóra spurningin sú hvort hann hafi það enn í sér að berjast um heimsmeistaratitil og hvort hann fái í því verkefni bíl sem getur keppt um sigur. Hamilton er þakklátur fyrir allar lexíurnar sem hann hefur lært á þessum tuttugu árum sínum í Formúlu 1. Þakklátur fyrir rólegum tímana en einnig þá viðburðaríku sem og fólkið sem hefur hjálpað honum á leiðinni. „Ég er þakklátur fyrir efasemdamennina og þá sem reyndu að slá mig niður. Ég er enn hér. Tuttugu árum síðar. Enn standandi. Enn hungraður og einbeittur á draum minn. Ég held ekki aftur að mér.“ Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi. Bein útsending frá öllum keppnishelgum tímabilsins fer fram á stöðinni og eru það Pittsbræðurnir Bragi Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson sem lýsa herlegheitunum.
Akstursíþróttir Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Handbolti Fleiri fréttir Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Sjá meira