Enski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Højbjerg hafnaði Newcastle

Fyrirliði danska landsliðsins í fótbolta, Pierre-Emile Højbjerg, hefur hafnað samningi sem Newcastle bauð honum. Hann er búinn að vera hjá Marseille síðan 2024.

Enski boltinn
Fréttamynd

Eng­lands­meistararnir ekki sann­færandi

Ensku liðin áttu misjöfnu gengi að fagna í æfinga­leikjum dagsins í fót­boltanum. Eng­lands­meistarar Arsenal töpuðu öðrum leik sínum í röð á undir­búningstíma­bilinu og Liver­pool missti niður tveggja marka for­ystu yfir í tapaðan leik.

Enski boltinn
Fréttamynd

Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool

Allt stefnir í að Ronald Araújo, fyrirliði Barcelona, sé á leið til Liverpool á láni með möguleika á því að Rauði herinn kaupi Úrúgvæjann að samningnum loknum. Lánsmenn hjá Liverpool hafa sögulega séð ekki slegið í gegn.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga á­sakana

David Sullivan, meðeigandi West Ham United, var á meðal áhorfenda þegar liðið vann 3-1 sigur á Portsmouth í enska deildabikarnum í dag. Hann hafði verið opinberlega beðinn um að mæta ekki á leiki liðsins vegna ásakana kvenna um ósæmilega hegðun af hans hálfu.

Enski boltinn
Fréttamynd

Aston Villa hyggst fylla í götin

Aston Villa hyggst styrkja leikmannahóp liðsins fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið seldi nýverið lykilmann í Morgan Rogers fyrir háa fjárhæð til Chelsea og sækist eftir tveimur öflugum leikmönnum.

Enski boltinn
Fréttamynd

Grípa í taumana eftir bana­slys

Enska knattspyrnusambandið hefur lagt blátt bann við því að steinsteyptir veggir umkringi velli á Englandi eftir dauðsfall Billy Vigar, fyrrverandi leikmanns í akademíu Arsenal. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald

Undrabarnið JJ Gabriel hjá Manchester United hefur þegar skapað sér nafn og meðbyr á fótboltaferlinum þrátt fyrir að vera enn bara fimmtán ára gamall. Gott dæmi um það er að strákurinn hefur fengið safnspjald úr 24 karata gulli, nokkrum dögum eftir að hann lék sinn fyrsta óopinbera leik með aðalliði félagsins.

Enski boltinn