Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild kvenna í fótbolta var opinberuð við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Breiðabliki er spáð titilvörn. Íslenski boltinn 21.4.2026 13:09
Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Sjálfstæðisflokkur fær lang flest atkvæði í komandi sveitarstjórnarkosningum á meðal leikmanna í Bestu deild kvenna ef marka má leikmannakönnun ÍTF á meðal leikmanna. Íslenski boltinn 21.4.2026 12:54
Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara í Bestu deild kvenna var opinberuð við hátíðlega athöfn í híbýli Deloitte í dag. Fundurinn var sýndur beint á Vísi. Íslenski boltinn 21.4.2026 12:02
Kynjakvóti FIFA: „Átt bara að fá starfið á eigin verðleikum“ Nýjar reglur settar af Alþjóða knattspyrnusambandinu eiga að fjölga kvenkyns þjálfurum. Reynslubolti hér heima vonar að þær skili tilætluðum árangri en segir einnig þurfa að huga að öðrum þáttum í leiðinni í annars karllægu umhverfi. Fótbolti 24. mars 2026 08:01
Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu „Þetta er búin að vera mjög tilfinningarík vika,“ segir Sólveig Jóhannesdóttir Larsen sem tilkynnti í vikunni að hún væri hætt í fótbolta 25 ára gömul eftir þriggja ára baráttu við meiðsli sem há henni mikið í daglegu lífi. Hún einblínir á litla sigra og vonast til að geta hlaupið aftur. Íslenski boltinn 14. mars 2026 08:00
„Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára gömul hefur Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ekki getað spilað fótbolta síðustu þrjú ár og neyðst til að leggja skóna á hilluna. Þessi fyrrverandi Íslands- og bikarmeistari vinnur nú að því að verða verkjalaus og geta hreinlega stundað almenna hreyfingu. Fótbolti 9. mars 2026 10:43
Kani í mark Víkinga Víkingur hefur samið við bandaríska markvörðinn Grace McClellan um að standa milli stanga liðsins í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 5. mars 2026 15:43
Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sýn hlaut fjölmiðlaverðlaun Knattspyrnusambands Íslands árið 2025 fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi. Íslenski boltinn 26. febrúar 2026 16:02
Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Knattspyrnukonan Jasmín Erla Ingadóttir er búin að finna sér nýtt félag fyrir sumarið en hún samdi um að spila með Víkingum í Bestu deild kvenna sumarið 2016. Íslenski boltinn 20. febrúar 2026 16:29
Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Katie Cousins hefur spilað við afar góðan orðstír á Íslandi síðustu ár en nú hefur hún ákveðið að prófa annað land, þó hjá íslenskum þjálfara. Íslenski boltinn 9. febrúar 2026 14:58
„Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Elísa Viðarsdóttir íhugaði að hætta í fótbolta eftir síðasta tímabil en ákvað að láta slag standa og samdi við Breiðablik. Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í gærkvöld, gegn fyrrum félagi sínu Val. Íslenski boltinn 6. febrúar 2026 11:02
Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Vinna er hafin við stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti og niðurlagningu knattspyrnudeilda ÍR og Leiknis. Stefnt er að því að kynna hugmyndina á aðalfundum félaganna í apríl en núverandi aðalstjórn ÍR er ekki hlynnt breytingunni. Íslenski boltinn 5. febrúar 2026 14:03
Víkingar keyptu Helenu af Val Sóknarmaðurinn Helena Ósk Hálfdánardóttir var í dag kynnt sem nýr leikmaður Víkings og klæðist því nýjum búningi í Bestu deildinni í sumar. Íslenski boltinn 3. febrúar 2026 18:02
„Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Eftir meiðslum hrjáð ár úti í atvinnumennskunni er Bryndís Arna Níelsdóttir komin aftur heim og gengin í raðir ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks. Hvalreki fyrir Blika komist hún aftur á beinu brautina eins og hún stefnir á að gera. Íslenski boltinn 1. febrúar 2026 23:03
Berglind Björg ólétt Markadrottning síðasta tímabils í Bestu deild kvenna, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, er ólétt og á von á sínu öðru barni. Íslenski boltinn 26. janúar 2026 21:20
Heiðdís leggur skóna á hilluna Heiðdís Lillýardóttir, Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Íslenski boltinn 25. janúar 2026 15:32
Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Þór/KA kynnti fimm nýja leikmenn í gær en félagið þurfti að senda frá sér leiðréttingu daginn eftir. Íslenski boltinn 23. janúar 2026 13:02
Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Þór/KA fékk mikinn liðstyrk í dag fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 21. janúar 2026 21:44
Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Þróttarar fengu flottan liðsstyrk í dag en félagið hefur sótt annan leikmann til FHL, sem féll úr Bestu deild kvenna í fótbolta síðasta haust. Íslenski boltinn 20. janúar 2026 17:35
Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Tvítuga fótboltakonan Telma Steindórsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar frá Fram og fylgir þar með á eftir þjálfaranum Óskari Smára Haraldssyni sem fór sömu leið eftir síðasta tímabil. Íslenski boltinn 20. janúar 2026 13:30
Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Íslandsmeistarar Breiðabliks í kvennafótboltanum hafa misst marga sóknarmenn í vetur en þær fengu góðan liðstyrk í kvöld. Íslenski boltinn 19. janúar 2026 20:46
Breytingar hjá Breiðabliki Atvinnumaðurinn fyrrverandi Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki. Hann tekur við starfinu nú þegar Alfreð Finnbogason, sem var titlaður tæknilegur ráðgjafi hjá Breiðabliki, er orðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg. Íslenski boltinn 16. janúar 2026 13:03
„Á eftir bolta kemur barn“ Landsliðsgoðsögnin Fanndís Friðriksdóttir lagði knattspyrnuskóna á hilluna eftir síðasta tímabil og nú hefur hún opinberað að hún og Eyjólfur Héðinsson eigi von á barni. Íslenski boltinn 16. janúar 2026 08:00
Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Nýliðarnir í Bestu deild kvenna í fótbolta, sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur, hafa tryggt sér „frábæran varnarmann“ fyrir átökin í sumar. Íslenski boltinn 14. janúar 2026 17:32