Svíþjóð

Svíþjóð

Höfuðborg: Stokkhólmur. Mannfjöldi: 10,6 milljónir (2025). Flatarmál: 450.295 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Stað­festing úr­slita dönsku kosninganna í upp­námi

Efasemdir um hvort að nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins búi raunverulega í Danmörku hafa sett staðfestingu á úrslitum þingkosninganna þar í uppnám. Atkvæðagreiðsla um málið á að fara fram í danska þinginu í dag en hún átti aðeins að vera formsatriði.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Telur að múslimar geti ekki verið Svíar

Leiðtogi sænska fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata segir að trúaðir múslimar geti ekki talist sænskir. Nýkjörinn þingmaður í Danmörku sætir harðri gagnrýni fyrir að efast um þjóðerni talskonu annars flokks.

Erlent
Fréttamynd

Säpo varar við aukinni ógn frá Rúss­landi

Forsvarsmenn sænsku öryggislögreglunnar Säpo vara við því að ógn Rússa gagnvart Svíþjóð gæti aukist. Rússar eru sagðir beita fjölþátta ógnum í meiri mæli en áður en hundruð grunsamlegra atvika hafa verið til rannsóknar í Svíþjóð sem grunur leikur á að rekja megi til Rússlands, án þess þó að tekist hafi að sanna tengingu þar á milli.

Erlent
Fréttamynd

Frost í kolefnisföngun í Sví­þjóð

Hætt hefur verið við eða hlé gert á rúmum helmingi af stærstu kolefnisföngunarverkefnum sem áformuð voru í Svíþjóð. Stefna sænskra stjórnvalda um kolefnishlutleysi á næstu tuttugu árum byggir að hluta til á að kolefni verði fangað í auknum mæli.

Erlent
Fréttamynd

„Við erum ekki hrædd“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.

Innlent
Fréttamynd

Svíar stöðvuðu annað skuggaskip

Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) og sænskir sérvseitarmenn gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

„Skelfi­leg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra á­hrifa­ríkasta“

Myndlistarmaðurinn Jón Óskar vakti athygli á „Söng villiandarinnar“ á Fésbókinni í gær og sagðist alltaf jafn hissa á því hvað lagið sé fallegt. Ekki deildu allir vinir Jóns ást hans á laginu og skiptist fólk í fylkingar á þræðinum. Þar er lagið ýmist sagt „eitt fallegasta dægurlag íslenskrar tónlistarsögu“ eða það „hræðilegasta í samanlagðri íslenskri tónlist“.

Lífið
Fréttamynd

Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni

Sænsk-bandarísk kaupsýslukona sendi Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninum, myndir af ungum og efnilegum konum sem hún var með í læri. Epstein valdi sér svo konur sem hann vildi hitta.

Erlent
Fréttamynd

Rétta yfir fjór­tán ára gömlum leigu­morðingja

Saksóknari ætlar að láta rétta yfir fjórtán ára gömlum pilti í Norrköping í Svíþjóð fyrir morð, tilraun til manndráps og fleiri brot. Pilturinn er talinn hafa drepið mann á þrítugsaldri gegn greiðslu og reynt að myrða annan.

Erlent
Fréttamynd

Sagði já og baðst í leiðinni af­sökunar

„Greyið Ásgeir stakk upp á því að við myndum horfa á sólsetrið niðri á strönd en ég var svo ólétt að ég nennti því ekki. Að lokum náði hann þó að draga mig út að borða,“ segir hin nýgifta Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir um eftirminnilega trúlofun. Sigurlaug Sara er búsett í Stokkhólmi ásamt eiginmanni sínum Ásgeiri Pétri, barni og hundi sem fer í hundaleikskóla.

Lífið
Fréttamynd

Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“

Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni.

Sport