Erlent

Ó­vænt á­kvörðun þing­for­setans reitir vinstri­menn til reiði

Smári Jökull Jónsson skrifar
Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, og Andreas Norlén þingforseti.
Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, og Andreas Norlén þingforseti. Vísir/EPA

Tillaga um Elisabeth Thand Ringqvist, formann Miðflokksins, sem forsætisráðherra Svíþjóðar verður lögð fram í sænska þinginu á þriðjudag. Allar líkur eru á að henni verði hafnað og sjálf virðist hún ekki hafa mikinn áhuga á því að hljóta kosningu í embættið.

Þingforsetinn Andreas Norlén tilkynnti um ákvörðun sína fyrr í dag. Atkvæðagreiðslan mun fara fram á þriðjudag en ákvörðun Norlén kom sérfræðingum á óvart þar sem nokkuð ljóst er að ekki liggur fyrir stuðningur meirihluta þingmanna við ríkisstjórn undir stjórn Ringqvist.

„Hugtökin að kanna og kjósa svo snúast um, að í fyrsta lagi halda uppi ákveðnu tempói og smám saman auka þrýstinginn á flokkana að finna lausn á stöðunni þar sem mögulegar nýjar kosningar nálgast, og í öðru lagi að ljúka þessum hluta ferlisins til að geta haldið áfram í þann næsta,“ sagði Norlén á blaðamannafundi í dag.

Amanda Lind

Talsmaður Græningja.


Daniel Helldén

Talsmaður Græningja.


Ebba Busch

Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.


Elisabeth Thand Ringqvist

Formaður Miðflokksins.


Jimmie Åkesson

Formaður Svíþjóðardemókrata.


Magdalena Andersson

Formaður Sósíaldemókrata.


Nooshi Dadgostar

Formaður Vinstriflokksins.


Simona Mohamsson

Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.


Ulf Kristersson

Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.

Atkvæðagreiðslan á þriðjudag verður önnur tilraunin til að kjósa forsætisráðherra en Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmannaflokksins, var felld í kosningu fyrr í mánuðinum. Alls getur þingforseti lagt fram fjórar tillögur um forsætisráðherra en verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga.

Hefur lítinn áhuga á að verða forsætisráðherra

Eins og áður segir er fastlega búist við því að tillaga um Ringqvist sem forsætisráðherra verði felld. Sjálf sagði Ringqvist í dag að þó að hún hafi samþykkt að kosið yrði um hana sem forsætisráðherra hafi hún bent þingforsetanum Norlén á að það væru aðrir möguleikar í stöðunni.

„Miðflokkurinn mun áfram sýna ábyrgð og leggja sitt af mörkum svo hægt verði að mynda ríkisstjórn. Þess vegna hef ég samþykkt að kosið verði um mig sem forsætisráðherra miðjustjórnar sem Miðflokkurinn, Jafnaðarmenn, Kristilegir demókratar, Græningjar og Frjálslyndir myndu mynda,“ sagði Ringqvist við sænska ríkismiðilinn SVT.

Niðurstöður þingkosninga
þegar 100% atkvæða hafa verið talin

Í kjölfar kosninganna hefur Ringqvist talað fyrir myndun miðjustjórnar undir stjórn Magdalenu Andersson formanns Jafnaðarmannaflokksins, en hugmyndir hennar hlotið lítinn hljómgrunn. Formenn Kristilegra demókrata og Frjálslyndra hafa til að mynda sagt skýrt að þeir hafi engan áhuga á að hjálpa vinstri flokkunum að komast til valda. Myndun miðjustjórn ar hefði þýtt að hægri og vinstri blokkarnir svokölluðu myndu splundrast.

Sýnir hver ræður

Fulltrúar annarra flokka hafa tjáð sig um ákvörðun Norlén í dag og má greina nokkura gremju hjá forystumönnum vinstriflokkanna vegna hennar. Magdalena Andersson sagði það athyglisvert að Norlén vilji setja af stað kosningu um aðila sem hafi reynt að mynda stjórn án þess að ætla sjálf að verða forsætisráðherra og þar að auki með ríkisstjórn í huga sem ljóst væri að sumir flokkanna vildu ekki vera hluti af.

Pólitískur sérfræðingur SVT, Erik Nilsson, segir að með ákvörðun sinni í dag hafi þingforsetinn Norlén sýnt hver það er sem ræður.

„Hann hefur hingað til passað sig á að taka ekki of umdeildar ákvarðanir og reynt að halda fulltrúum flokkanna góðum. Nú hefur hann hins vegar reitt forystumenn flokkanna í vinstri blokkinni til reiði,“ sagði Nilsson.

„Formaður Miðflokksins hefur sagt að hún sjálf vilji sjá aðra lausn á málunum. Talsmaður Græningja kallar ákvörðunina athyglisverða og formaður Jafnaðarmanna hefur talað á sömu nótum.“

Kristersson fær umboðið næst

Verði tillagan um Ringqvist sem forsætisráðherra felld á þriðjudag mun Ulf Kristersson, formaður Moderaterna og starfandi forsætisráðherra, fá stjórnarmyndunarumboðið en þetta tilkynnti Norlén á blaðamannafundinum í dag. Kristersson mun þá væntanlega kanna möguleika á áframhaldandi samstarfi hægri flokkanna sem mynduðu stjórn á síðasta kjörtímabili.

Sú stjórn missti meirihluta sinn á þingi í kosningunum þann 12. september og þarf því að treysta á aðkomu Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur hins vegar gefið skýrt út að hann muni ekki sitja í ríkisstjórn með fjarhægriflokki Svíþjóðardemókrata.

Svíþjóðardemókratar eru þriðji stærsti flokkurinn á þingi og gerði kröfu um ráðherrastóla fyrir kosningar, yrði hann hluti af meirihlutasamtarfi, en ýmsir hátt settir innan flokksins hafa þó að undanförnu opnað á möguleikann á að koma að meirihlutasamstarfi án þess að eiga sæti við ríkisstjórnarborðið.

Hvort það dugi til að lokka Miðflokkinn yfir í hægri blokkanna á eftir að koma í ljós en pólitískir sérfræðingar telja það þó afar ólíklegt og að verkefni Kristersson sé nánast óvinnandi.


Tengdar fréttir

Andersson hafnað í sænska þinginu

Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins.

Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga

Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×