„Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hætti störfum eftir sextán ára starf sem slíkur á mánudag eftir að kvörtun hans til umboðsmanns Alþingis var til lykta leidd. Slökkviliðsstjóri segir starfslokin sameiginlega ákvörðun sem hafi verið tekin í „sátt og samlyndi“. Innlent 11.2.2026 13:13
Skjálftahrina við Eldey Skjálftahrina er í gangi við Eldey á Reykjaneshrygg. Tugir skjálfta hafa mælst þar í dag, sá stærsti 2,8 að stærð. Innlent 8.2.2026 14:20
Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí. Innlent 1.2.2026 14:53
Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026 hefur verið samþykktur. Fundur félgasmanna fór fram í gærkvöldi. Innlent 28. janúar 2026 10:08
Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Tímabundið getur verið meiri hveralykt af vatni en venjulega í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum vegna íblöndunar súlfíts í heita vatnið. Íblöndunin er vegna viðhalds og viðgerðar HS Orku á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Fólk sem viðkvæmt er fyrir súlfíti í matvælum er bent á að heita vatnið sé ekki ætlað til neyslu eða til matreiðslu. Innlent 27. janúar 2026 12:35
„Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Kona liggur þungt haldin á gjörgæsludeild eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í Reykjanesbæ seint í gærkvöldi. Sjö hundar voru í íbúðinni og drápust en slökkviliðsstjóri segir konuna hafa verið komna í sjúkrabíl innan við tíu mínútum eftir að útkallið barst. Innlent 26. janúar 2026 19:35
Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sextán manns leituðu aðstoðar Rauða krossins í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna eldsvoðans í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í bænum í nótt. Ein fjölskylda var aðstoðuð með gistingu vegna brunans. Innlent 26. janúar 2026 15:29
Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Íbúa í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans eftir eldsvoða sem kom upp í íbúð í húsinu í gærkvöldi. Sjö hundar drápust í eldsvoðanum. Innlent 26. janúar 2026 10:23
Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja luku störfum rétt rúmlega eitt í nótt eftir eld sem kom upp í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ. Innlent 26. janúar 2026 06:48
Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ í kvöld. Einn var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang og var fluttur með sjúkrabíl til Reykavíkur. Fimmtán aðrir íbúar komust út og er búið að slökkva eldinn. Innlent 25. janúar 2026 23:57
Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Farið var með ungmenni á kjörstað eftir vísindaferð í gær á vegum Vilhjálms Árnasonar, ritara Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í Reykjanesbæ, þar sem boðið var upp á áfengi. Skipuleggjandi segir fólk hafa verið með lögaldur „eftir [sinni] bestu vitund.“ Innlent 25. janúar 2026 20:57
Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar og aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, ætlar í framboð með Samfylkingunni í Reykjanesbæ. Innlent 25. janúar 2026 12:15
Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Sverrir Bergmann Magnússon, tónlistarmaður, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur ráðið sig í starf samfélags- og sjálfbærnisstjóra hjá Kadeco, þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þar sem fyrirtækið starfar bæði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ hefur hann ákveðið að hætta í bæjarstjórn og kveðst ekki bjóða sig fram aftur. Innlent 20. janúar 2026 22:21
Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Ómögulegt er að segja til um það hvað varð ketti sem fannst í poka í hrauninu í Helguvík í Reykjanesbæ að aldurtila. Að sögn starfsmanns Dýralæknastofu Suðurnesja er allt eins líklegt að honum hafi verið komið þar fyrir af eigendum sínum. Innlent 19. janúar 2026 06:17
Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, hefur sagt af sér þingmennsku vegna tilraunar til að kaupa vændi árið 2012. Hann var yfirheyrður af lögreglu á sínum tíma en segist ekki hafa verið ákærður. Hann tók ákvörðun um afsögn þegar Vísir ætlaði að fjalla um málið. Hann segist hafa gert stór mistök sem hann harmi mjög. Innlent 16. janúar 2026 06:00
Kviknaði í ruslagámi í Keflavík Eldur kviknaði í stórum opnum ruslagámi hjá grenndargámnum fyrir utan gömlu slökkvistöðina í Keflavík í kvöld. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá flugeldatertu en ekki er hægt að slá neinu á föstu í þeim efnum. Innlent 10. janúar 2026 00:14
Villi er allt sem þarf Fram undan er mikilvægt prófkjör í Reykjanesbæ þar sem Sjálfstæðisflokkurinn velur sér nýjan oddvita, leiðtoga sem á að leiða flokkinn og bæinn inn í framtíðina. Fyrir mig sem ungan mann í Reykjanesbæ er valið skýrt: Ég kýs Vilhjálm Árnason til að leiða okkur sem bæjarstjóri inn í nýja tíma. Skoðun 8. janúar 2026 21:00
Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili mun taka við rekstri Lindex á Íslandi. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður tilkynnt um nýjan rekstraraðila á morgun. Viðskipti innlent 8. janúar 2026 14:44
Lindex lokað á Íslandi Öllum verslunum Lindex verður lokað í síðasta lagi 28. febrúar. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eigandi Lindex, segir engan missa vinnuna við þessi tímamót og að það séu í gangi viðræður um þau verslunarrými sem Lindex hefur verið rekið í. Viðskipti innlent 8. janúar 2026 12:54
Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Ung kona sem sætt hefur einangrun nær óslitið frá því í september hefur meðal annars verið ákærð fyrir að ráðast á níu lögreglumenn og sjúkraflutningamann. Hún er einnig sögð hafa rispað bíl lögreglumanns. Innlent 7. janúar 2026 17:06
Mannleg mistök þegar starfsmenn Reykjanesbæjar tæmdu geymslur íbúa Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir það hafa verið mannleg mistök þegar starfsmenn bæjarins tæmdu tvær geymslur í fjölbýlishúsi á Ásbrú og hentu eða gáfu búslóð tveggja íbúa bæjarins. Fyrst var fjallað um málið á vef RÚV í gær en þar var rætt við stjúpmóður konu sem hafði geymt dótið sitt í annarri geymslunni. Innlent 6. janúar 2026 11:23
Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í oddvitasætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Prófkjör fer fram 31. janúar. Innlent 3. janúar 2026 10:15
Samherji gæti tvöfaldast Samherji gæti tvöfaldast að stærð nái áform í landeldi fram að ganga að sögn forstjóra félagsins. Félagið hyggist ráðast í þrjátíu milljarða króna fjárfestingu í greininni á næstu misserum með innlendum og erlendum fjárfestum. Viðskipti innlent 27. desember 2025 12:10
Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, mun ekki sækjast eftir bæjarstjórasætinu eftir sveitarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Hann ræddi bæjarstjórastarfið og krabbameinsgreininguna í Einmitt. Innlent 27. desember 2025 11:58