Óttaðist að deyja í kynlífi með manninum Kona, sem fór á Tinder-stefnumót með manninum sem ákærður er fyrir að myrða breska bakpokaferðalanginn Grace Millane, segist hafa óttast að hann myndi kæfa hana þegar þau stunduðu kynlíf. Erlent 11. nóvember 2019 10:29
„Einhver með blóð á iljunum“ gekk um herbergið Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt breska bakpokaferðalanginn Grace Millane reyndi að þrífa blóð af gólfi íbúðarinnar, þar sem Millane var myrt. Erlent 8. nóvember 2019 08:26
Myndbönd varpa ljósi á stefnumótið í aðdraganda morðsins Nýbirtar upptökur úr öryggismyndavélum sýna síðustu klukkustundirnar í lífi breska bakpokaferðalangsins Grace Millane. Erlent 7. nóvember 2019 11:00
Skildi líkið eftir í ferðatösku og fór á annað Tinder-stefnumót Karlmaður sem grunaður er um morð á breska bakpokaferðalangnum Grace Millane skildi lík Millane eftir í ferðatösku í íbúð sinni, eftir að hann framdi morðið á henni, og fór á Tinder-stefnumót. Erlent 6. nóvember 2019 09:02
„Trufluðu“ Haka-dansinn fyrir leik og fengu sekt Rúgbý er ein af örfáum íþróttagreinum í heiminum þar sem eitt landsliðanna býður upp á dans eða í raun hálfgerðan gjörning rétt fyrir leik. Mótherjarnir verða líka að passa sig á meðan dansinn stendur yfir. Sport 30. október 2019 11:00
Nýsjálendingar kjósa um lögleiðingu líknardráps Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin samhliða þingkosningum á næsta ári. Á sama tíma verður kosið um hvort að lögleiða eigi kannabis í landinu. Erlent 23. október 2019 14:38
Hundruð loftslagsaðgerðasinna handteknir um allan heim Hundruð aðgerðarsinna, sem eru meðlimir í Extinction Rebellion hreyfingunni, voru handteknir á mótmælum sem fóru fram úti um allan heim. Erlent 7. október 2019 19:12
Margt sem Íslendingar geti lært af Nýsjálendingum í ferðaþjónustu Ferðaþjónustudagurinn fer fram í Silfurbergi í Hörpu og hefst klukkan tvö. Jóhannes Þór Skúlason, formaður samtaka ferðaþjónustunnar, segir að aðalmarkmiðið í dag sé að finna praktískar leiðir til að ná settum markmiðum. Viðskipti innlent 2. október 2019 13:28
Maoríar loka á kaftein Cook Bæjaryfirvöld í Mangonui hafa bannað endurgerð skipsins Endeavour að koma í höfn í tilefni þess að 250 ár eru síðan skipherrann James Cook sigldi fyrstur Evrópumanna í kringum Nýja-Sjáland. Erlent 18. september 2019 07:30
Hafði trúð með í för þegar hann var rekinn úr vinnunni Nýsjálenski auglýsingahöfundurinn Josh Thompson lenti á dögunum í því að vera sagt upp störfum, eins og kemur jú fyrir æði marga. Hann tók þó heldur öðruvísi á málunum en margir aðrir myndu gera þegar hann var boðaðu á fund yfirmanna sinna. Hann tók trúð með sér á fundin þar sem hann var látinn fara. Lífið 15. september 2019 18:44
Kveðst vera með mögulega skýringu á Loch Ness skrímslinu Vísindamenn við Otago-háskóla á Nýja-Sjálandi segjast hafa komist að mögulegri niðurstöðu sem kunni að skýra sögusagnir um að skrímsli sé að finna í skoska stöðuvatninu Loch Ness. Erlent 5. september 2019 12:10
Fimm látnir eftir rútuslys á Nýja-Sjálandi Meirihluti farþega voru kínverskir ferðamenn. Erlent 4. september 2019 08:54
Fundu leifar forsögulegrar risamörgæsar á stærð við mann Risamörgæsin er talin hafa synt um hafið á suðurhveli jarðar fyrir um 66 til 56 milljónum ára. Erlent 14. ágúst 2019 12:42
Nýsjálendingar taka skref í átt að því að heimila þungunarrof Dómsmálaráðherra Nýja Sjálands, Andrew Little, lagði í dag fram frumvarp fyrir nýsjálenska þingið sem snýr að því þungunarrof verði heimilt í landinu Erlent 5. ágúst 2019 19:00
Ríkisstjórn Nýja-Sjálands leggur til breytingar á þungunarrofslöggjöf Ríkisstjörn Jacindu Ardern hefur lagt til að réttur kvenna til þungunarrofs verði rýmkaður töluvert. Erlent 5. ágúst 2019 14:26
Umtöluðustu grínistar heims snúa aftur Nýsjálenska gamansveitin Flight of the Conchords er komin aftur með ný lög, nýja plötu og tónleikamyndband. Óljóst er hvað þetta þýðir fyrir framtíðina en á undanförnum árum hefur verið rætt um nýja leikna kvikmynd frá tvíeykinu. Lífið 3. ágúst 2019 04:00
Nýsjálendingar afhentu 10 þúsund skotvopn eftir hryðjuverkaárás Nýsjálendingar hafa afhent meira en 10 þúsund byssur, vopn og aukahluti í skiptum fyrir fjármuni fyrstu viku aðgerða stjórnvalda til að gera hálf-sjálfvirk skotvopn upptæk. Erlent 21. júlí 2019 13:32
Sushistaður vaktaður eftir að lögregla var kölluð út vegna mörgæsa Eigendur staðarins lýstu því að parið hafi þurft að fara yfir miklar umferðargötur á leið sinni frá höfninni að lestarstöðinni þar sem sushistaðurinn er staðsettur. Lífið 16. júlí 2019 11:05
Ólögleg skotvopn keypt upp á Nýja-Sjálandi Tugir byssueigenda í Christchurch á Nýja-Sjálandi hafa afhent skotvopn sín í skiptum fyrir fjármuni í fyrstu aðgerð stjórnvalda við að gera hálf sjálfvirk skotvopn upptæk þar í landi. Alls eru 250 slíkar aðgerðir fyrirhugaðar. Erlent 13. júlí 2019 11:03
Vaknaði með spúandi hver í garðinum Íbúi í nýsjálenska bænum Rotorua vaknaði aðfaranótt miðvikudags við dynki og ókyrrð – og gerði strax ráð fyrir að jarðskjálfti stæði yfir. Erlent 28. júní 2019 07:44
Eiturlyfjaneysla Ástrala og Nýsjálendinga hefur áhrif á lífið á Kyrrahafseyjunum Eiturlyfjaneysla Ástrala og Nýsjálendinga hefur gríðarleg og neikvæð áhrif á samfélög eyríkjanna smáu í Kyrrahafinu. Flutningur á eiturlyfjum á borð við kókaín og metamfetamín til Ástralíu og Nýja Sjálands fer frá Bandaríkjunum eða rómönsku Ameríku og fer í gegnum eyríkin á leiðinni. Erlent 26. júní 2019 00:05
Árásarmaðurinn í Christchurch segist saklaus Maðurinn er ákærður fyrir 51 morð, 40 morðtilraunir og hryðjuverk. Erlent 13. júní 2019 22:45
Stjórnarandstaðan neitar því að hafa stolið fjárlögum Fjármálaráðuneyti Nýja-Sjálands segir að skipulögð tölvuárás hafi verið gerð á tölvukerfi þess. Erlent 29. maí 2019 07:42
Kynferðisbrot og níð á þingi Nýja-Sjálands Starfsmenn þings Nýja-Sjálands hafa orðið fyrir alvarlegum kynferðisbrotum, áreiti og níði. Erlent 22. maí 2019 15:33
Árásarmaðurinn í Christchurch ákærður fyrir hryðjuverk Maðurinn sem sakaður er um að hafa orðið 51 að bana í árás á bænahús múslima í Christchurch á Nýja-Sjálandi í mars hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk. Erlent 21. maí 2019 06:25
Macron og Ardern taka höndum saman í baráttunni gegn öfgamönnum Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hyggjast taka höndum saman í baráttunni gegn útbreiðslu myndefnis sem sýnir ofbeldi og ógnanir á netinu í tengslum við hryðjuverk og öfgar. Erlent 13. maí 2019 08:28
Hryðjuverkamaðurinn í Christchurch dvaldi á Íslandi í tíu daga Brenton Tarrant var einn á ferð hér á landi. Innlent 8. maí 2019 10:31
Annað fórnarlamb Christchurch-hryðjuverkanna látið Tyrkneskur karlmaður lést af sárum sínum fimmtíu dögum eftir hryðjuverkin á Nýja-Sjálandi. Erlent 2. maí 2019 14:53
Sjónarhorn Christchurch útsendingarinnar plataði ritskoðunarkerfi Facebook Sjálfvirkt ritstjórnarkerfi Facebook átti erfitt með að skilgreina beinu útsendinguna af fjöldamorðinu í Christchurch í Nýja-Sjálandi vegna fyrstu persónu sjónarhorns myndbandsins. Erlent 24. apríl 2019 14:00
Segir of snemmt að álykta um tengsl Christchurch og Sri Lanka Utanríkisráðherra Nýja Sjálands segir að hann þurfi að sjá sönnunargögn áður en hægt sé að fullyrða um hvort að hryðjuverkaárásirnar á Sri Lanka á páskadag hafi veri svar við hryðjuverkaárásunum í Christchurch á Nýja Sjálandi í mars. Erlent 23. apríl 2019 18:30