Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn E. coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Í ljósi þessa er íbúum ráðlagt að sjóða vatnið fyrir neyslu. Ákvörðunin var tekin í samráði við Matvælastofnun. Innlent 21.10.2026 22:41
Sigurvin kallaður út vegna Hildar Björgunarskipið Sigurvin var kallað út í morgun vegna 475 tonna fiskiskips að nafni Hildur sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og varð í kjölfarið aflvana. Skipið var statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Innlent 20.10.2026 17:00
Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu „Veðurstofan þarf að brjóta odd af oflæti sínu og fara að gefa staðbundnari litakvarðaðar viðvaranir. Í dag er þeim „smurt út“ yfir heil spásvæði. Í gær var þannig allt Suðurland á appelsínugulu vegna hávaðaroks og sviptivinda í Eyjum og undir Eyjafjöllum. Einu staðbundnu viðvaranirnar eru fyrir höfuðborgarsvæðið!“ Innlent 16.10.2026 09:08
„Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Þrír voru um borð í skútu sem dregin var til hafnar á Siglufirði af björgunarskipinu Sigurvini á sjöunda tímanum í dag. Fyrstu samskipti viðbragðsaðila við skipverja fóru fram í morgun þegar þeir síðarnefndu höfðu samband og óskuðu eftir aðstoð vegna þess að skútan væri vélarvana og það væri ekki nægur byr í seglin og því kæmust þeir hvorki lönd né strönd. Svo bætti í vindinn um stund og var þá hætt við að sækja skútuna en á þriðja tímanum reyndist það svo nauðsynlegt á ný. Innlent 18. september 2026 21:00
Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Fjallabyggð hefur tekið ákvörðun um að hafna öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal og ætla að reka skíðasvæðið sjálf. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu mótmælir ákvörðuninni en fulltrúar meirihlutans vísa gagnrýni hans frá og biðja hann að vera samkvæmur sjálfum sér. Innlent 10. september 2026 06:47
Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Tveir karlmenn á sextugsaldri hafa verið dæmdir í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að búa til og sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum í mars 2021. Tveir aðrir voru ákærðir í málinu en þeir létust á meðan málsfrelið stóð yfir. Innlent 9. september 2026 18:30
Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. Innlent 31. ágúst 2026 13:16
Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Fjallabyggðar greiddu atkvæði gegn ráðningu Hafdísar Huldar Björnsdóttur sem bæjarstjóri. Þeir töldu sig hvorki hafa fullnægjandi gögn um valið né breytingar á ráðningarsamningi bæjarstjóra. Innlent 13. ágúst 2026 14:19
Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Níu skipsflök fundust við könnun á hafsvæði við Siglufjörð auk ummerkja um snjóflóð sem féll á svæðinu árið 1919. Fornleifafræðingur sem kannaði svæðið segir varðveislu neðansjávar mun betri en menn hafi ímyndað sér. Innlent 9. ágúst 2026 21:00
Siggi stormur sár en dregur ekki í land Siggi stormur segir að veðurspár fyrir verslunarmannahelgina hafi í megindráttum gengið eftir og Akureyringar geti vel við unað. Skipuleggjendur á Norðurlandi eru ósáttir og vilja meina að ótímabærar yfirlýsingar hafi fælt gesti frá. Lögreglan telur að fleiri séu á Akureyri nú en í fyrra. Innlent 2. ágúst 2026 12:32
Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Skipuleggjendur útihátiða á Norðurlandi eru búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan. Sérstaklega þykir þeim veðurspá Sigurðar Ragnarssonar, Sigga Storms, súr í brotið. Tap vegna veðurspárinnar hlaupi á milljónum fyrir sveitarfélögin þrátt fyrir blankalogn og heiðan himinn. Innlent 1. ágúst 2026 20:09
Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Hafdís Huld Björnsdóttir hefur verið valin til að taka við starfi bæjarstjóra Fjallabyggðar. Alls sóttu 22 um starfið. Innlent 29. júlí 2026 14:03
Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag. Innlent 17. júlí 2026 12:49
Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Alls sóttu 22 um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar en umsóknarfrestur rann út þann 28. júlí síðastliðinn. Einn dró umsókn sína til baka. Innlent 9. júlí 2026 15:34
Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Heildarupphæð bættra brunatjóna nam rúmum þremur milljörðum í fyrra en fjöldi bættra tjóna var lægri en undanfarin ár og stórbrunar færri. Bruni í atvinnuhúsnæði fyrirtækisins Primex á Siglufirði nam þriðjungi þeirra bættra tjóna. Innlent 8. júlí 2026 14:26
Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði í kvöld götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um mann með skotvopn. Innlent 1. júlí 2026 20:06
Aflvana togari hættulega nálægt landi Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins á Siglufirði var kölluð út á mesta forgangi þegar togarinn Ottó N. Þorláksson varð aflvana og hættulega nálægt landi. Mikill reykur fylgdi. Innlent 30. júní 2026 21:33
Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tilboð ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Heliskiing í fasteignir sveitarfélagsins á flugvallarsvæðinu á Siglufirði. Tilboðið hljóðar upp á tólf milljónir króna en um er að ræða tækjahús og gömlu flugstöðina. Innlent 28. júní 2026 20:31
Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Klukkan tíu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum kölluð út vegna aflvana fiskibáts. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að einn skipverji hafi verið um borð og taldi hann enga yfirvofandi hættu á ferðum fyrir utan aflleysið. Innlent 24. júní 2026 15:18
Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Lögreglan á Norðurlandi vestra segir aukna hættu á skriðum og grjóthruni, meðal annars í Almenningum, vegna mikillar úrkomu síðustu daga. Innlent 20. júní 2026 14:16
Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Ný bæjarstjórn í Fjallabyggð fundaði í fyrsta sinn í gær. S-listi Jafnaðarfólks og H-listi Fyrir heildina í Fjallabyggð mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Innlent 5. júní 2026 14:19
Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Tilkynning um mikinn eld fyrir utan hús á Siglufirði barst til slökkviliðs Fjallabyggðar í dag. Þegar slökkvilið bar að garði hafði eldurinn náð í klæðingu, verönd og svalir hússins og höfðu rúður brotnað vegna hita. Innlent 21. maí 2026 23:13
Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu. Innlent 17. maí 2026 03:11
„Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Ástvaldur Einar Steinsson, sjómaður og netagerðarmaður, er látinn, 95 ára að aldri. Inga Sæland, dóttir hans og mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá andláti Ástvaldar í hjartnæmu myndbandi á Facebook fyrr í dag. Innlent 15. maí 2026 14:51