Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Hafði leigu­tekjur af hús­næði krúnunnar

Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn.

Lífið
Fréttamynd

Hita­met í maí slegið í Bret­landi

Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands.

Erlent
Fréttamynd

„Auð­veldara hér að vera bara eins og maður er“

„London er þannig borg að maður sér eitthvað undarlegt nánast daglega,“ segir vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir sem hefur verið búsett í stórborginni í fjórtán ár og hefur vakið athygli og lukku fyrir eigin hönnunarlínu. Theodóra er fædd árið 1986 og hefur alla tíð verið skapandi. Hún ræddi við blaðamann um lífið úti og listina.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Til­kynntu ó­vart dauða konungsins

Breska útvarpsstöðin Radio Caroline, sem útvarpar til Miðhéraðanna og Suður-Englands, rauf spilun „What's Up“ með 4 Non Blondes til að greina ranglega frá dauða Karls III Bretakonungs, spila „God Save the King“ og minnast hans með fimmtán mínútna þögn

Lífið
Fréttamynd

„Bret­land var gert fyrir lofts­lag sem heyrir sögunni til“

Sérfræðingar segja stjórnvöld á Bretlandseyjum munu þurfa að koma upp loftkælingu á öllum umönnunarheimilum og sjúkrahúsum á næstu tíu árum og í skólum á næstu 25 árum. Þeir segja hlýnun muni leiða til þess að úrræði á borð við að opna glugga, draga fyrir og rækta tré til að búa til skugga ekki lengur munu duga til.

Erlent
Fréttamynd

Lammy segir ekkert farar­snið á Starmer

David Lammy, dómsmálaráðherra Bretlands, segir forsætisráðherrann Keir Starmer ekki hafa í hyggju að segja af sér né leggja fram drög að áætlun um að víkja. Lammy, sem er varaforsætisráðherra og einn nánasti bandamaður Starmer, hefur hvatt flokkssystkin sín til að hætta að hugsa um mögulegt leiðtogakjör og segir umræðuna um það „sjálfsmark“.

Erlent
Fréttamynd

Streeting segir af sér úr ríkis­stjórn Starmer

Wes Streeting hefur sagt af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands þar sem hann hefur misst trú á forsætisráðherranum Keir Starmer, formanni Verkamannaflokksins. Streeting segir að það væri óheiðarlegt og óábyrgt af sér að halda sæti sínu í ríkisstjórninni.

Erlent
Fréttamynd

Bíður þetta böl lands og þjóðar?

Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan.

Lífið
Fréttamynd

Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni

Bandamenn Wes Streeting, heilbrigðisráðherra Bretlands, segja hann hyggjast segja af sér í vikunni og skora forsætisráðherrann Keir Starmer á hólm. Pólitísk framtíð Starmer hangir á bláþræði eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningum á dögunum, þar sem flokkurinn tapaði nærri 1.500 sætum og embættum út um allt land.

Erlent
Fréttamynd

Enn eykst þrýstingur á Starmer

Vandræði Keir Starmers forsætisráðherra Breta aukast með hverjum deginum. Nú er svo komið að stór hópur þingmanna hans í Verkamannaflokknum, eða að minnsta kosti 72 þingmenn, hafa hvatt hann til að segja af sér og innanríkisráðherrann Shabana Mahmood hefur hvatt hann til þess að hefja undirbúning að leiðtogaskiptum í flokknum.

Erlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi ráð­herra vill þvinga fram leiðtogakjör

Taumhald Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands á Verkamannaflokkinum virðist ætla að renna honum úr greipum og stemningin innanbúðar nálgast suðupunkt eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum í vikunni. Fyrrverandi ráðherra hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og skorað á Starmer að víkja.

Erlent
Fréttamynd

Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu

Niðurstöður sveitastjórnarkosninga sem fóru fram víða um Bretland fyrir helgi komu fáum á óvart þó þær séu til marks um grundvallarbreytingar í breskum stjórnmálum. Umbótaflokkur Nigels Farage bætti rúmlega sextánfalt við sig en stólparnir tveir í breskum stjórnmálum til rúmlega hundrað ára guldu afhroð.

Erlent
Fréttamynd

Fögnuðu aldar­af­mæli með pompi og prakt

Það má segja að afmæli aldarinnar hafi gengið í garð í dag en fjölmiðlamaðurinn, náttúrufræðingurinn og goðsögnin David Attenborough fagnar í dag hundrað ára afmæli með veglegri veislu í Royal Albert Hall þar sem Íslendingar munu setja mark sitt á kvöldið. Einnig var blásið til veislu á hjúkrunarheimili Hrafnistu honum til heiðurs.

Lífið
Fréttamynd

Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn

Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim.

Lífið