Fleiri fréttir Töldu öll Deloitte hafa vottað viðskiptin Fyrri degi aðalmeðferðar í Exista-máli sérstaks saksóknara er nú lokið. Vitnaleiðslum verður fram haldið í fyrramálið og að því loknu tekur málflutningur saksóknara og verjenda við. 6.5.2013 17:17 Ágúst: Kom ekki að þessu á neinn hátt Ágúst Guðmundsson, sem var annar aðaleigenda Bakkavarar og Existu ásamt Lýði bróður sínum, bar nú eftir hádegi vitni í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði og lögmanninum Bjarnfreði Ólafssyni. Þeir eru ákærðir fyrir brot á hlutafélagalögum þegar hlutafé Existu var aukið um 50 milljarða í desember 2008 en einungis einn milljarður greiddur fyrir, sem að auki var fenginn að láni frá Lýsingu, dótturfélagi Existu. 6.5.2013 15:44 Deloitte kvartaði til Logos Forsvarsmenn endurskoðunarfyrirtæksins Deloitte sendu kvörtunarbréf til lögmannsstofunnar Logos þegar þeim varð ljóst að skýrsla sem endurskoðendur fyrirtækisins höfðu unnið um hlutafjáraukningu Existu hefði verið notuð til að koma henni í gegn hjá Fyrirtækjaskrá. Frá þessu greindu bæði Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, og endurskoðandinn Hilmar Alfreðsson frá fyrir dómi nú eftir hádegi. 6.5.2013 15:06 Valitor vísitalan hækkaði um 4,8% milli ára í apríl Í apríl varð heildarveltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum um 4,8% ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Notkun innanlands jókst um 5,6% en erlendis var veltuaukningin 0,8%. 6.5.2013 14:45 Hagsjá: Krónan styrktist um 3,5% í apríl Krónan hélt áfram að styrkjast í apríl og stóð gengi krónunnar á móti evru í 153 kr. í lok mánaðarins. Krónan styrktist um 3,5% frá marslokum og hefur styrkst um 10,3% frá áramótum þegar hún stóð í um 167 kr. 6.5.2013 13:45 Stefnir á orðið tæplega 15,8% í Icelandair Stefnir hf., fyrir hönd sjóða í rekstri félagsins, á orðið tæplega 15,8% hlut í Icelandair. Þetta kemur fram í flöggun í Kauphöllinni. 6.5.2013 13:12 Ræða þróaðar aðferðir tölvuþrjóta á ráðstefnu Tölvuárásir á notendur Twitter sýna að tölvuþrjótar beita sífellt þróaðri og flóknari aðferðum en áður, ekki síst gegn fyrirtækjum, en um slíkt verður m.a. fjallað á morgunverðarráðstefnu Nýherja næsta miðvikudag. 6.5.2013 12:55 Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert við hlutafjáraukninguna í Existu fyrr en hálfu ári eftir að hún var um garð genginn. Þeim var þó fullkunnugt um að einungis hefði einn milljarður verið greiddur fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu. 6.5.2013 12:52 Met í apríl: Ferðamönnum fjölgaði um 21% milli ára Alls fóru 45.800 erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í apríl sl., sem er 8.100 fleiri en þeir voru í apríl í fyrra. Nemur fjölgunin á milli ára rúmlega 21%, og er hér um fjölmennasta aprílmánuð frá upphafi að ræða hvað erlenda ferðamenn varðar. 6.5.2013 12:31 Turner hefur sett 4,5 milljarða í Latabæ Tökur á fjórðu þáttaröð Latabæjar eru nýhafnar í Garðabæ. Þrettán þættir verða teknir upp og að sögn Hallgríms Kristinssonar, yfirmanns kynningarmála og viðskiptaþróunar hjá Latabæ, er allt komið á blússandi siglingu. 6.5.2013 12:00 FME: Landsbankinn má gefa út sérvarin skuldabréf Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Landsbankanum leyfi til útgáfu á sértryggðum skuldabréfum. Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsins. 6.5.2013 11:47 Bjarnfreður var fullur efasemda Bjarnfreður Ólafsson, lögfræðingur á Logos, segir að hann og aðrir starfsmenn Logos hafa verið fulla efasemda um að það mundi standast að greiða einungis einn milljarð fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu í Existu, eins og Lýður og Ágúst Guðmundssynir gerðu í desember 2008. 6.5.2013 11:26 Lýður kannast ekki við varnaðarorð Deloitte Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, kannast ekki við það að endurskoðandi félagsins hjá Deloitte hafi tjáð honum að 50 milljarða hlutafjáraukning Existu stæðist ekki lög og Deloitte gæti aldrei skrifað upp á hana. Hann sagðist fyrir dómi fyrr í morgun ekki muna til þess að það hafi komið fram í símtali hans og endurskoðandans Hilmars Alfreðssonar. 6.5.2013 10:54 Framtakssjóður selur í Icelandair fyrir 3,3 milljarða Framtakssjóður Íslands hefur selt 250 milljón hluti í Icelandair og er verðmæti þeirra um 3,3 milljarðar kr. miðað við gengi þeirra í Kauphöllinni en það stendur í rúmum 13 kr. á hlut í augnablikinu. 6.5.2013 09:34 Samkomulag við Landsvirkjun um kolefnislosun Landsvirkjun og Kolviður-sjóður skrifuðu undir samkomulag fyrir helgina um að jafna alla kolefnislosun vegna notkunar Landsvirkjunar á bensíni og dísilolíu á bifreiðar og tæki, vegna flugferða starfsmanna bæði innanlands og milli landa og loks vegna förgunar úrgangs. Alls var þessi losun um 1.000 tonnCO2-ígilda á síðastliðnu ári. 6.5.2013 09:20 HH skora á FMÍ að stöðva allar innheimtur á gengislánum Hagsmunasamtök heimilanna (HH) skora á Fjármálaeftirlitið (FMÍ) að stöðva allar innheimtur á gengistryggðum lánum þar til lánastofnanir geta sannað að lánin séu reiknuð með réttarhagsmuni skuldara að leiðarljósi. 6.5.2013 09:05 Aðalmeðferð hefst í dag í málinu gegn Lýði og Bjarnfreði Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Bjarnfreði Ólafssyni verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 6.5.2013 08:50 Já í tilraunir með þrívíddarkort Upplýsingaveitan Já, sem rekur meðal annars vefinn já.is, hefur í dag tilraunaverkefni sem miðar að því að gera þrívíddarmyndir af íslenskum vegum aðgengilegar á kortavefum fyrirtækisins. Þessi þjónusta yrði að erlendri fyrirmynd, en tæknirisinn býður upp á Google Street View á kortavef sínum þar sem sjónarhorn notanda er frá götunni. Sú þjónusta Google er ekki í boði á Íslandi sem stendur. 6.5.2013 08:00 Hótel Brú gjaldþrota Eigandi mannvirkjanna tekur við rekstrinum tímabundið. 3.5.2013 13:40 Hagnaður KEA 279 milljónir í fyrra Hagnaður KEA á síðasta ári nam 279 milljónum króna eftir skatta en var 161 milljón króna árið áður. 3.5.2013 12:19 Afkoma Ísafjarðar jákvæð um 47 milljónir í fyrra Afkoma Ísafjarðarbæjar á síðasta ári var jákvæða um 47 milljónir kr. (A og B hluti). Þetta er töluvert yfir áætlunum sem gerðu ráð fyrir 4 milljóna kr. afgangi á árinu. 3.5.2013 11:46 Meniga hlut Vaxtarsprotann í ár Fyrirtækið Meniga ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar milli áranna 2011 og 2012. Fyrirtækin Controlant, Nox Medical og Iceconsult fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt. 3.5.2013 11:37 Hæstiréttur dæmir erlent lán Byggðastofnunnar löglegt Hæstiréttur hefur dæmt að lán sem Byggðastofnun veitti í erlendri mynt, það er japönskum jenum, væri löglegt. 3.5.2013 11:20 Fasteignaviðskipti eru að stærstum hluta milli einstaklinga Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 73% viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á milli einstaklinga, eða samtals 984 kaupsamningar af þeim 1.341 kaupsamningum sem gerðir voru á tímabilinu í heildina. 3.5.2013 10:53 Krefjast þess að vöruverð lækki í samræmi við styrkingu krónunnar Neytendasamtökin krefjast þess að framleiðendur, innflytjendur og seljendur séu sjálfum sér samkvæmir og lækki vöruverð þegar gengi krónunnar styrkist. Á þessu hafi verið mikill misbrestur það sem af er árinu. 3.5.2013 10:27 Fyrirtækjaskattur lægstur á Íslandi af Norðurlöndunum Í nýrri úttekt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, kemur fram að fyrirtækjaskattur á Íslandi er lægstur á Norðurlöndunum. 3.5.2013 09:19 Eurostat: Skattar eru langlægstir á Íslandi af Norðurlöndunum Skattbyrðin á Íslandi er sú langlægsta á öllum Norðurlöndunum, mæld sem hlutfall af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í nýrri úttekt frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Úttektin nær yfir árið 2011 og þá voru skattar á Íslandi 35,9% af landsframleiðslu. 3.5.2013 07:40 Hlutur í Landsvirkjun seldur of lágu verði Kaupverð ríkisins á 46 prósenta hlut í Landsvirkjun árið 2006 var allt of lágt. Þetta fullyrðir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Í skýrslu úttektarnefndar á stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar, sem kynnt var í gær, eru rök færð fyrir hinu sama. 3.5.2013 07:00 Mikil tækifæri í Kína fyrir þá þolinmóðu Mikil tækifæri bíða íslenskra útflutningsfyrirtækja í Kína eftir að fríverslunarsamningur Íslands við Kína tekur gildi. Þetta sagði Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, í erindi sínu á kynningarfundi sem Íslensk-kínverska verslunarráðið stóð fyrir í gær. Þolinmæði sé þó nauðsynleg. 3.5.2013 07:00 Kaupa þrjá sumarbústaði af slitastjórn Landsbankans Þingvallanefnd hefur keypt þrjá sumarbústaði af LBI, slitastjórn gamla Landsbankans, sem staðsettir eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Samningar um þetta voru undirritaðir 29. apríl síðastliðinn en kaupverð var 34,5 milljónir króna. 2.5.2013 19:48 Viðskipti í Kauphöllinni jukust um 527% milli ára í apríl Viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni aprílmánuði námu 1.356 milljónum kr. á dag, sem er 527% hækkun á milli ára, samanborið við 216 milljóna króna veltu á dag í apríl 2012. Þetta er 85% hækkun frá fyrri mánuði, en viðskipti með hlutabréf í marsmánuði námu 732 milljónum kr. á dag. 2.5.2013 14:46 Ný stjórn kjörin í MP banka Á aðalfundi MP banka sem haldinn var 30. apríl var kjörin ný stjórn bankans. Í aðalstjórn sitja Þorsteinn Pálsson (stjórnarformaður), lögfræðingur, Skúli Mogensen (varaformaður stjórnar), fjárfestir og forstjóri Wow air, Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma, Inga Björg Hjaltadóttir, lögmaður & meðeigandi Acta lögmannsstofu & Attentus mannauður og ráðgjöf, og Mario Espinosa, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, að því er segir í tilkynningu. 2.5.2013 14:17 Dramatísk breyting á fáum árum Á fimm árum hefur hlutur kvenna í stjórnum skráðra fyrirtækja farið úr tíundaparti í nærri helming. Í haust taka gildi ný lög um kynjahlutföll. Áhersla á jafnan hlut stuðlar að faglegri vinnubrögðum við skipan stjórna. 2.5.2013 14:00 Erlendir gestir á Fanfest Eve eyddu 400 milljónum Erlendir gestir á Fanfest EVE tölvuleiksins eyddu yfir 400 milljónum króna á hátíðinni. Rúmlega 280.000 manns fylgdist með beinni útsendingu úr Hörpu meðan á hátíðinni stóð nýlega. Alls mættu rúmlega 4.000 manns á hátíðina í ár. 2.5.2013 13:56 FT: Kröfuhafar tilbúnir til samninga við íslensk stjórnvöld Financial Times greinir frá því í dag að erlendir kröfuhafar þrotabúa gömlu bankanna hafi vaxandi áhuga á því að ganga til samninga við íslensk stjórnvöld. Þeir séu jafnframt viðbúnir því að þurfa að gefa afslátt af kröfum sínum. 2.5.2013 13:22 Björgólfur á sextíu milljarða hlut í Actavis Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á sextíu milljarða hlut í Actavis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor þar sem greint er frá því að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson - nú Actavis - hafi gengið frá lokagreiðslu vegna kaupanna á Actavis fyrir ári. Árangurstengd greiðsla vegna kaupanna verði greidd að fullu, alls 5,5 milljónir bréfa í hinu sameinaða félagi. 2.5.2013 13:11 Krónan styrkist í útboðum Seðlabankans Töluverð breyting varð á útboðsgengi krónu í gjaldeyrisútboði Seðlabankans síðastliðinn þriðjudag. Hefur gengi krónu gagnvart evru ekki verið sterkara í útboði síðan gjaldeyrisútboðunum var fyrst hleypt af stokkunum vorið 2011. Á heildina litið má segja að útboðið hafi verið ágætlega heppnað, en þar skiptu tæplega 29 milljónir evra um hendur fyrir 6 milljarða kr. 2.5.2013 12:50 Aukin umsvif hjá Isavia, hagnaðurinn 738 milljónir í fyrra Umtalsverð aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári. Tekjur félagsins jukust um 11,4% og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 3,8 milljarðar króna eða um 20% af tekjum. Hagnaður eftir skatta var um 738 milljónir króna. 2.5.2013 11:55 Optima opnar söluskrifstofu á Akureyri Optima hefur opnað söluskrifstofu á Akureyri. Jafnframt hefur Sigurður Aðils verið ráðinn svæðisstjóri fyrirtækisins fyrir Norður- og Austurland. Fyrirtækið var stofnað 1953 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. 2.5.2013 11:46 Öryrki segir Gildi lífeyrissjóð hafa haft af sér pening Margrét Ingibjörg Marelsdóttir, öryrki, hefur stefnt Gildi lífeyrissjóði fyrir ólögmæta skerðingu á lífeyrisgreiðslum til hennar. Hún telur skerðingu sjóðsins í andstöðu við lög og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar auk þess að brjóta í bága við reglur og yfirlýsingar sjóðsins. Margrét krefst þess að Gildi lífeyrissjóður endurgreiði þá fjármuni sem hún telur að sjóðurinn hafi haft af henni með ólögmætum hætti. 2.5.2013 11:23 Fyrsta konan í fimmtán ár til að stýra skráðu fyrirtæki Sigrún Ragna Ólafsdóttir varð á dögunum fyrsta konan í fimmtán ár og sú önnur alls til að stýra skráðu fyrirtæki á Íslandi þegar viðskipti hófust með hlutabréf í VÍS í Kauphöllinni. Markaðurinn ræddi við Sigrúnu í tilefni af skráningunni. 2.5.2013 09:00 Gagnrýndi vaxtastefnu SÍ harkalega Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Íslandsstofu, gagnrýndi vaxtastefnu Seðlabanka Íslands (SÍ) í ræðu sinni á ársfundi stofunnar og sagði stjórnvöld í raun ráðalaus gagnvart henni. 2.5.2013 09:00 Haraldur vann Webby-verðlaun "Ég er húrrandi glaður,“ segir vefhönnuðurinn Haraldur Þorleifsson. Hann vann ein Webby-verðlaun og tvenn People"s Choice-verðlaun, sem eru hluti af Webby-verðlaununum, fyrir hönnun kynningarsíðu fyrir Google maps. 2.5.2013 09:00 Afkoma ríkissjóðs versnar milli ára Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri dróst saman miðað við sama tímabil í fyrra og var neikvætt um 11 milljarða kr. en var neikvætt um 7,3 milljarða kr. á sama tímabili í fyrra. 2.5.2013 08:03 Air Atlanta tekur fyrstu Airbus A330 vél sína í notkun Air Atlanta er um þessar mundir að taka í notkun Airbus A330 í fyrsta sinn, en nýverið tók félagið Airbus A340 í notkun sem er fyrsta skrefið í innleiðingaferli þessara tveggja tegunda. 2.5.2013 07:51 Sjá næstu 50 fréttir
Töldu öll Deloitte hafa vottað viðskiptin Fyrri degi aðalmeðferðar í Exista-máli sérstaks saksóknara er nú lokið. Vitnaleiðslum verður fram haldið í fyrramálið og að því loknu tekur málflutningur saksóknara og verjenda við. 6.5.2013 17:17
Ágúst: Kom ekki að þessu á neinn hátt Ágúst Guðmundsson, sem var annar aðaleigenda Bakkavarar og Existu ásamt Lýði bróður sínum, bar nú eftir hádegi vitni í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði og lögmanninum Bjarnfreði Ólafssyni. Þeir eru ákærðir fyrir brot á hlutafélagalögum þegar hlutafé Existu var aukið um 50 milljarða í desember 2008 en einungis einn milljarður greiddur fyrir, sem að auki var fenginn að láni frá Lýsingu, dótturfélagi Existu. 6.5.2013 15:44
Deloitte kvartaði til Logos Forsvarsmenn endurskoðunarfyrirtæksins Deloitte sendu kvörtunarbréf til lögmannsstofunnar Logos þegar þeim varð ljóst að skýrsla sem endurskoðendur fyrirtækisins höfðu unnið um hlutafjáraukningu Existu hefði verið notuð til að koma henni í gegn hjá Fyrirtækjaskrá. Frá þessu greindu bæði Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, og endurskoðandinn Hilmar Alfreðsson frá fyrir dómi nú eftir hádegi. 6.5.2013 15:06
Valitor vísitalan hækkaði um 4,8% milli ára í apríl Í apríl varð heildarveltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum um 4,8% ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Notkun innanlands jókst um 5,6% en erlendis var veltuaukningin 0,8%. 6.5.2013 14:45
Hagsjá: Krónan styrktist um 3,5% í apríl Krónan hélt áfram að styrkjast í apríl og stóð gengi krónunnar á móti evru í 153 kr. í lok mánaðarins. Krónan styrktist um 3,5% frá marslokum og hefur styrkst um 10,3% frá áramótum þegar hún stóð í um 167 kr. 6.5.2013 13:45
Stefnir á orðið tæplega 15,8% í Icelandair Stefnir hf., fyrir hönd sjóða í rekstri félagsins, á orðið tæplega 15,8% hlut í Icelandair. Þetta kemur fram í flöggun í Kauphöllinni. 6.5.2013 13:12
Ræða þróaðar aðferðir tölvuþrjóta á ráðstefnu Tölvuárásir á notendur Twitter sýna að tölvuþrjótar beita sífellt þróaðri og flóknari aðferðum en áður, ekki síst gegn fyrirtækjum, en um slíkt verður m.a. fjallað á morgunverðarráðstefnu Nýherja næsta miðvikudag. 6.5.2013 12:55
Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert við hlutafjáraukninguna í Existu fyrr en hálfu ári eftir að hún var um garð genginn. Þeim var þó fullkunnugt um að einungis hefði einn milljarður verið greiddur fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu. 6.5.2013 12:52
Met í apríl: Ferðamönnum fjölgaði um 21% milli ára Alls fóru 45.800 erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í apríl sl., sem er 8.100 fleiri en þeir voru í apríl í fyrra. Nemur fjölgunin á milli ára rúmlega 21%, og er hér um fjölmennasta aprílmánuð frá upphafi að ræða hvað erlenda ferðamenn varðar. 6.5.2013 12:31
Turner hefur sett 4,5 milljarða í Latabæ Tökur á fjórðu þáttaröð Latabæjar eru nýhafnar í Garðabæ. Þrettán þættir verða teknir upp og að sögn Hallgríms Kristinssonar, yfirmanns kynningarmála og viðskiptaþróunar hjá Latabæ, er allt komið á blússandi siglingu. 6.5.2013 12:00
FME: Landsbankinn má gefa út sérvarin skuldabréf Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Landsbankanum leyfi til útgáfu á sértryggðum skuldabréfum. Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsins. 6.5.2013 11:47
Bjarnfreður var fullur efasemda Bjarnfreður Ólafsson, lögfræðingur á Logos, segir að hann og aðrir starfsmenn Logos hafa verið fulla efasemda um að það mundi standast að greiða einungis einn milljarð fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu í Existu, eins og Lýður og Ágúst Guðmundssynir gerðu í desember 2008. 6.5.2013 11:26
Lýður kannast ekki við varnaðarorð Deloitte Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, kannast ekki við það að endurskoðandi félagsins hjá Deloitte hafi tjáð honum að 50 milljarða hlutafjáraukning Existu stæðist ekki lög og Deloitte gæti aldrei skrifað upp á hana. Hann sagðist fyrir dómi fyrr í morgun ekki muna til þess að það hafi komið fram í símtali hans og endurskoðandans Hilmars Alfreðssonar. 6.5.2013 10:54
Framtakssjóður selur í Icelandair fyrir 3,3 milljarða Framtakssjóður Íslands hefur selt 250 milljón hluti í Icelandair og er verðmæti þeirra um 3,3 milljarðar kr. miðað við gengi þeirra í Kauphöllinni en það stendur í rúmum 13 kr. á hlut í augnablikinu. 6.5.2013 09:34
Samkomulag við Landsvirkjun um kolefnislosun Landsvirkjun og Kolviður-sjóður skrifuðu undir samkomulag fyrir helgina um að jafna alla kolefnislosun vegna notkunar Landsvirkjunar á bensíni og dísilolíu á bifreiðar og tæki, vegna flugferða starfsmanna bæði innanlands og milli landa og loks vegna förgunar úrgangs. Alls var þessi losun um 1.000 tonnCO2-ígilda á síðastliðnu ári. 6.5.2013 09:20
HH skora á FMÍ að stöðva allar innheimtur á gengislánum Hagsmunasamtök heimilanna (HH) skora á Fjármálaeftirlitið (FMÍ) að stöðva allar innheimtur á gengistryggðum lánum þar til lánastofnanir geta sannað að lánin séu reiknuð með réttarhagsmuni skuldara að leiðarljósi. 6.5.2013 09:05
Aðalmeðferð hefst í dag í málinu gegn Lýði og Bjarnfreði Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Bjarnfreði Ólafssyni verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 6.5.2013 08:50
Já í tilraunir með þrívíddarkort Upplýsingaveitan Já, sem rekur meðal annars vefinn já.is, hefur í dag tilraunaverkefni sem miðar að því að gera þrívíddarmyndir af íslenskum vegum aðgengilegar á kortavefum fyrirtækisins. Þessi þjónusta yrði að erlendri fyrirmynd, en tæknirisinn býður upp á Google Street View á kortavef sínum þar sem sjónarhorn notanda er frá götunni. Sú þjónusta Google er ekki í boði á Íslandi sem stendur. 6.5.2013 08:00
Hagnaður KEA 279 milljónir í fyrra Hagnaður KEA á síðasta ári nam 279 milljónum króna eftir skatta en var 161 milljón króna árið áður. 3.5.2013 12:19
Afkoma Ísafjarðar jákvæð um 47 milljónir í fyrra Afkoma Ísafjarðarbæjar á síðasta ári var jákvæða um 47 milljónir kr. (A og B hluti). Þetta er töluvert yfir áætlunum sem gerðu ráð fyrir 4 milljóna kr. afgangi á árinu. 3.5.2013 11:46
Meniga hlut Vaxtarsprotann í ár Fyrirtækið Meniga ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar milli áranna 2011 og 2012. Fyrirtækin Controlant, Nox Medical og Iceconsult fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt. 3.5.2013 11:37
Hæstiréttur dæmir erlent lán Byggðastofnunnar löglegt Hæstiréttur hefur dæmt að lán sem Byggðastofnun veitti í erlendri mynt, það er japönskum jenum, væri löglegt. 3.5.2013 11:20
Fasteignaviðskipti eru að stærstum hluta milli einstaklinga Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 73% viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á milli einstaklinga, eða samtals 984 kaupsamningar af þeim 1.341 kaupsamningum sem gerðir voru á tímabilinu í heildina. 3.5.2013 10:53
Krefjast þess að vöruverð lækki í samræmi við styrkingu krónunnar Neytendasamtökin krefjast þess að framleiðendur, innflytjendur og seljendur séu sjálfum sér samkvæmir og lækki vöruverð þegar gengi krónunnar styrkist. Á þessu hafi verið mikill misbrestur það sem af er árinu. 3.5.2013 10:27
Fyrirtækjaskattur lægstur á Íslandi af Norðurlöndunum Í nýrri úttekt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, kemur fram að fyrirtækjaskattur á Íslandi er lægstur á Norðurlöndunum. 3.5.2013 09:19
Eurostat: Skattar eru langlægstir á Íslandi af Norðurlöndunum Skattbyrðin á Íslandi er sú langlægsta á öllum Norðurlöndunum, mæld sem hlutfall af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í nýrri úttekt frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Úttektin nær yfir árið 2011 og þá voru skattar á Íslandi 35,9% af landsframleiðslu. 3.5.2013 07:40
Hlutur í Landsvirkjun seldur of lágu verði Kaupverð ríkisins á 46 prósenta hlut í Landsvirkjun árið 2006 var allt of lágt. Þetta fullyrðir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Í skýrslu úttektarnefndar á stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar, sem kynnt var í gær, eru rök færð fyrir hinu sama. 3.5.2013 07:00
Mikil tækifæri í Kína fyrir þá þolinmóðu Mikil tækifæri bíða íslenskra útflutningsfyrirtækja í Kína eftir að fríverslunarsamningur Íslands við Kína tekur gildi. Þetta sagði Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, í erindi sínu á kynningarfundi sem Íslensk-kínverska verslunarráðið stóð fyrir í gær. Þolinmæði sé þó nauðsynleg. 3.5.2013 07:00
Kaupa þrjá sumarbústaði af slitastjórn Landsbankans Þingvallanefnd hefur keypt þrjá sumarbústaði af LBI, slitastjórn gamla Landsbankans, sem staðsettir eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Samningar um þetta voru undirritaðir 29. apríl síðastliðinn en kaupverð var 34,5 milljónir króna. 2.5.2013 19:48
Viðskipti í Kauphöllinni jukust um 527% milli ára í apríl Viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni aprílmánuði námu 1.356 milljónum kr. á dag, sem er 527% hækkun á milli ára, samanborið við 216 milljóna króna veltu á dag í apríl 2012. Þetta er 85% hækkun frá fyrri mánuði, en viðskipti með hlutabréf í marsmánuði námu 732 milljónum kr. á dag. 2.5.2013 14:46
Ný stjórn kjörin í MP banka Á aðalfundi MP banka sem haldinn var 30. apríl var kjörin ný stjórn bankans. Í aðalstjórn sitja Þorsteinn Pálsson (stjórnarformaður), lögfræðingur, Skúli Mogensen (varaformaður stjórnar), fjárfestir og forstjóri Wow air, Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma, Inga Björg Hjaltadóttir, lögmaður & meðeigandi Acta lögmannsstofu & Attentus mannauður og ráðgjöf, og Mario Espinosa, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, að því er segir í tilkynningu. 2.5.2013 14:17
Dramatísk breyting á fáum árum Á fimm árum hefur hlutur kvenna í stjórnum skráðra fyrirtækja farið úr tíundaparti í nærri helming. Í haust taka gildi ný lög um kynjahlutföll. Áhersla á jafnan hlut stuðlar að faglegri vinnubrögðum við skipan stjórna. 2.5.2013 14:00
Erlendir gestir á Fanfest Eve eyddu 400 milljónum Erlendir gestir á Fanfest EVE tölvuleiksins eyddu yfir 400 milljónum króna á hátíðinni. Rúmlega 280.000 manns fylgdist með beinni útsendingu úr Hörpu meðan á hátíðinni stóð nýlega. Alls mættu rúmlega 4.000 manns á hátíðina í ár. 2.5.2013 13:56
FT: Kröfuhafar tilbúnir til samninga við íslensk stjórnvöld Financial Times greinir frá því í dag að erlendir kröfuhafar þrotabúa gömlu bankanna hafi vaxandi áhuga á því að ganga til samninga við íslensk stjórnvöld. Þeir séu jafnframt viðbúnir því að þurfa að gefa afslátt af kröfum sínum. 2.5.2013 13:22
Björgólfur á sextíu milljarða hlut í Actavis Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á sextíu milljarða hlut í Actavis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor þar sem greint er frá því að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson - nú Actavis - hafi gengið frá lokagreiðslu vegna kaupanna á Actavis fyrir ári. Árangurstengd greiðsla vegna kaupanna verði greidd að fullu, alls 5,5 milljónir bréfa í hinu sameinaða félagi. 2.5.2013 13:11
Krónan styrkist í útboðum Seðlabankans Töluverð breyting varð á útboðsgengi krónu í gjaldeyrisútboði Seðlabankans síðastliðinn þriðjudag. Hefur gengi krónu gagnvart evru ekki verið sterkara í útboði síðan gjaldeyrisútboðunum var fyrst hleypt af stokkunum vorið 2011. Á heildina litið má segja að útboðið hafi verið ágætlega heppnað, en þar skiptu tæplega 29 milljónir evra um hendur fyrir 6 milljarða kr. 2.5.2013 12:50
Aukin umsvif hjá Isavia, hagnaðurinn 738 milljónir í fyrra Umtalsverð aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári. Tekjur félagsins jukust um 11,4% og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 3,8 milljarðar króna eða um 20% af tekjum. Hagnaður eftir skatta var um 738 milljónir króna. 2.5.2013 11:55
Optima opnar söluskrifstofu á Akureyri Optima hefur opnað söluskrifstofu á Akureyri. Jafnframt hefur Sigurður Aðils verið ráðinn svæðisstjóri fyrirtækisins fyrir Norður- og Austurland. Fyrirtækið var stofnað 1953 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. 2.5.2013 11:46
Öryrki segir Gildi lífeyrissjóð hafa haft af sér pening Margrét Ingibjörg Marelsdóttir, öryrki, hefur stefnt Gildi lífeyrissjóði fyrir ólögmæta skerðingu á lífeyrisgreiðslum til hennar. Hún telur skerðingu sjóðsins í andstöðu við lög og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar auk þess að brjóta í bága við reglur og yfirlýsingar sjóðsins. Margrét krefst þess að Gildi lífeyrissjóður endurgreiði þá fjármuni sem hún telur að sjóðurinn hafi haft af henni með ólögmætum hætti. 2.5.2013 11:23
Fyrsta konan í fimmtán ár til að stýra skráðu fyrirtæki Sigrún Ragna Ólafsdóttir varð á dögunum fyrsta konan í fimmtán ár og sú önnur alls til að stýra skráðu fyrirtæki á Íslandi þegar viðskipti hófust með hlutabréf í VÍS í Kauphöllinni. Markaðurinn ræddi við Sigrúnu í tilefni af skráningunni. 2.5.2013 09:00
Gagnrýndi vaxtastefnu SÍ harkalega Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Íslandsstofu, gagnrýndi vaxtastefnu Seðlabanka Íslands (SÍ) í ræðu sinni á ársfundi stofunnar og sagði stjórnvöld í raun ráðalaus gagnvart henni. 2.5.2013 09:00
Haraldur vann Webby-verðlaun "Ég er húrrandi glaður,“ segir vefhönnuðurinn Haraldur Þorleifsson. Hann vann ein Webby-verðlaun og tvenn People"s Choice-verðlaun, sem eru hluti af Webby-verðlaununum, fyrir hönnun kynningarsíðu fyrir Google maps. 2.5.2013 09:00
Afkoma ríkissjóðs versnar milli ára Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri dróst saman miðað við sama tímabil í fyrra og var neikvætt um 11 milljarða kr. en var neikvætt um 7,3 milljarða kr. á sama tímabili í fyrra. 2.5.2013 08:03
Air Atlanta tekur fyrstu Airbus A330 vél sína í notkun Air Atlanta er um þessar mundir að taka í notkun Airbus A330 í fyrsta sinn, en nýverið tók félagið Airbus A340 í notkun sem er fyrsta skrefið í innleiðingaferli þessara tveggja tegunda. 2.5.2013 07:51