Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hollendingar segja Íslendinga víst hafa logið - sýna bréf til sönnunar Hollenski vefmiðillin RTLZ birti í gær bréfasamskipti á milli viðskiptaráðuneytisins á Íslandi við breska fjármálaráðuneytið og telur greinarhöfundur bréfin sýna fram á að Ísland hafi logið fram á síðasta dag um raunverulega stöðu mála og styðji því við fullyrðingar Nout Wellink, seðlabankastjóra Hollands og Arnolds Schilder, yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins um meinar lygar íslenska ríkisins. 12.2.2010 10:11
Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaráls 200 milljónir á dag Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem jafngildir um 74 milljörðum íslenskra króna, miðað við núverandi gengi. Flutt voru út rúmlega 349 þúsund tonn af hreinu áli, álblöndum og álvírum. Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega 1,4 milljörðum króna á viku, eða rúmlega 200 milljónum króna á dag. 12.2.2010 09:09
Viðsnúningur upp á rúma 14 milljarða hjá Landsneti Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.471 milljónum kr. fyrir árið 2009 samanborið við tap að fjárhæð tæpa 12,8 milljarða kr. á árinu 2008. Betri afkoma stafar aðallega af mun minna gengistapi en á fyrra ári auk þess sem tekjur af raforkuflutningi hafa aukist. 12.2.2010 08:59
Hagnaður RARIK tæpar 700 milljónir í fyrra Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður RARIK í fyrra 697 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.843 milljónir króna eða 32,7% af veltu tímabilsins. Hefur EBITDA félagsins hækkað um rúm 50% frá árinu 2008. Handbært fé frá rekstri var 1.847 milljónir króna. 12.2.2010 08:51
Velta kreditkorta jókst um 15,1% milli ára í janúar Heildarvelta kreditkorta í janúarmánuði var 28,8 milljarða kr. samanborið við 24,5 milljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 15,1% aukning milli ára. 12.2.2010 08:07
Meðalverð á fiskmörkuðum hækkaði umtalsvert mili ára Meðalverð á fiskmörkuðum í janúar var fjörutíu og þremur prósentum hærra en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt reiknistofu fiskmarkaða. Það var nú tæpar 285 krónur, en var 199 krónur í janúar í fyrra. Fisksalar kaupa fisk í verslanir sínar á fiskmörkuðunum og skýrir það sjálfsagt ört hækkandi fiskverð. 12.2.2010 07:58
Magnús Geir Þórðarson viðskiptafræðingur ársins Matvöruverslunin Fjarðarkaup hlaut Íslensku þekkingarverðlaunin í kvöld, en þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. 11.2.2010 20:10
40 milljarða kröfur og engar eignir Kröfur í þrotabú Styrks Invest, sem var að stærstum hluta í eigu Gaums, félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, og Kaldbaks, fjárfestingararms Samherja, nema nú um fjörutíu milljörðum. Félagið er eignalaust, og því fæst líklega ekkert upp í kröfurnar. 11.2.2010 18:59
Landsbankinn eignast Icelandic Group Eignarhaldsfélagið Vestia ehf., dótturfyrirtæki Landsbankans, hefur tekið yfir eignarhald á móðurfélagi Icelandic Group. 11.2.2010 19:52
Skilanefndin orðin einn stærsti kráareigandi Bretlands Skilanefnd Kaupþings er orðin einn stærsti kráaeigandi í Bretlandi, en fyrirtækið eignaðist öldurhúsin vegna skulda bresk-íranska viðskiptajöfursins Robert Tchenguiz við Kaupþing. Skilanefndin hefur nú kyrrsett yfir 100 milljónir punda á reikningum Tchenguiz. 11.2.2010 18:00
Hlutabréf Össurar hreyfðust ein í dag Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 0,61 prósent í Kauphöllinni i dag. Það hækkaði hins vegar 0,71 prósent á hlutabréfamarkaði í Kaupmannahöfn á sama tíma. 11.2.2010 16:44
Mesta veltan í óverðtryggðum skuldabréfum í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 10,5 milljarða kr. viðskiptum. Viðskiptin voru að mestu í óverðtryggðum ríkisbréfum eða 9,76 milljarðar kr. 11.2.2010 15:41
H.F. Verðbréf viðurkenndur ráðgjafi í Kauphöllinni Kauphöllin hefur samþykkt að H.F. Verðbréf verði viðurkenndur ráðgjafi ( Certified Adviser) á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum á markaðnum. 11.2.2010 15:09
Iceland Express semur við stóra markaðsskrifstofu Iceland Express hefur gert samstarfssamning við öfluga sölu- og markaðsskrifstofu, AVIAREPS Group, í Bandaríkjunum og Póllandi. Er þetta gert til að efla markaðsstarf á þessum svæðum, því eins og kunnugt er mun Iceland Express hefja flug til New York og Winnipeg í Kanada í júníbyrjun. Þá mun félagið fljúga til þriggja staða í Póllandi í sumar til Varsjár, Kraká og Gdansk. 11.2.2010 13:40
Hilmar Veigar Pétursson nýr formaður SUT Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP er nýr formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) og tekur við af Þórólfi Árnasyni. 11.2.2010 13:29
Kröfur á Kjalar afskrifaðar í efnahagsreikningi Arion banka Skuldir Kjalars við Arion banka hafa verið afskrifaðar að nánast öllu leyti í bókum Arion banka en fyrirtækið skuldaði bankanum 88 milljarða króna á núvirði. 11.2.2010 12:05
Skilanefnd Glitnis sendi fimm mál til FME og saksóknara Skilanefnd Glitnis hefur hingað til sent fimm mál sem tengjast viðskiptum gamla bankans til Fjármálaeftirlitsins (FME) og sérstaks saksóknara til frekari rannsóknar. Skilanefnd Kaupþings og Landsbankans hafa jafnframt sent gögn og mál frá sér. 11.2.2010 12:00
Landsbanki og Kaupþing áttu megnið af ástarbréfunum Stærstur hluti þeirra skuldabréfa sem íslenska ríkið situr uppi með vegna veðlánaviðskipta Seðlabanka Íslands voru útgefin af Landsbanka Íslands. Viðskiptin hafa gengið undir nafninu ástarbréfin. 11.2.2010 11:21
Skuldabréf Atorku tekin úr viðskiptum Kauphöllin hefur ákveðið að taka skuldabréf Atorku Group hf. úr viðskiptum þar sem héraðsdómur hefur staðfest nauðasamning félagsins. 11.2.2010 10:56
Segir sláandi mótsögn í aðgerðum Seðlabankans. "Þetta er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að Seðlabanki Íslands er að soga til sín allt lausafé á íslenskum markaði í þeim tilgangi að halda vöxtum hér háum. Sem sagt, þá vill Seðlabanki fá til landsins erlent lánsfjármagn og erlenda fjárfesta á sama tíma og hann sogar til sín allt íslenskt lausafé svo að tryggt sé að því verði örugglega ekki fjárfest á Íslandi. Er ekki einhver sláandi mótsögn í þessum aðgerðum?" 11.2.2010 10:40
Skuldabréf Landsbankans hafa tvöfaldast í verði Skuldabréf Landsbankans halda áfram að hækka og eru í dag skráð á 8% af nafnverði á viðskiptavefnum Keldan.is. Þau hafa því tvöfaldast í verði frá því að forseti Íslands ákvað að vísa Icesave málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 11.2.2010 10:28
Peningastefnunefnd: Minnkandi aðhald í ríkisfjármálum „Einnig var lýst yfir áhyggjum af minna aðhaldi í ríkisfjármálum miðað við það sem áður var gert ráð fyrir og hugsanlegum áhrifum af sjálfbærni ríkisfjármála á gengi krónunnar og verðstöðugleika til lengri tíma litið." 11.2.2010 08:37
Fólk í miklum vanskilum skemmir bílana Vanskil einstaklinga og fyrirtækja með bíla í rekstrarleigu hafa aukist milli ára. Dæmi eru um að viðskiptavinir skemmi bíla og taki vélarhluta úr þeim áður en þeim er skilað. 11.2.2010 08:10
Ræða seðlabankastjóra vekur athygli erlendis "Regluverk Evrópusambandsins um starfsemi banka yfir landamæri var stórgallað þar sem það heimilaði frjálst flæði fjármagns og bankaþjónustu með innlend öryggisnet og áfallastjórnun." Vefritið CentralBanking.com tekur upp þessi orð Más Guðmundssonar seðlabankastjóra í frétt, en þau viðhafði hann í Bergen í Noregi í janúarbyrjun. 11.2.2010 08:06
Bakkavör andmælir ákvörðun Kauphallarinnar. Bakkavör Group hf. telur ákvörðun Kauphallar sem birt var í gær ekki á rökum reista, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. 11.2.2010 08:03
Kauphöllin sektar Bakkavör um 3 milljónir fyrir brot á upplýsingaskyldu Kauphöllinn áminnti í dag Bakkavör og beitti fyrirtækið þriggja milljóna króna sekt fyrir brot á upplýsingaskyldu við Kauphöllina. Ástæða sektarinnar eru brot Bakkavarar á upplýsingaskyldu. 10.2.2010 19:39
Arion ætlar að ganga að ábyrgðum 1998 Litlar sem engar eignir eru inni í þeim félögum sem ábyrgðust lán til 1998 ehf. fyrrverandi móðurfélags Haga. Arion banki ætlar að ganga að þessum ábyrgðum og keyra félögin í þrot, óvíst er samt hvenær það gerist. 10.2.2010 19:15
Gengi Færeyjabanka hækkaði um 1,39 prósent Gengi hlutabréfa Færeyjabanka hækkaði um 1,39 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Össurar, sem hækkaði um 0,92 prósent, og Marels, sem fór upp um 0,33 prósent. 10.2.2010 18:01
Tveir greiddu atkvæði gegn vaxtalækkun Tveir úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu seðlabankastjóra að lækka stýrivexti um 0,5 prósentur. Þrír greiddu hins vegar atkvæði með tillögunni. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar sem birt var síðdegis. 10.2.2010 16:38
GBI vísitalan hækkar áfram Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 13,2 milljarða viðskiptum. Þar af námu viðskipti með íbúðabréf tæpum 8 milljörðum kr. 10.2.2010 15:55
Nær helmingur telur skattabreytingar fækka starfsfólki 45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% fyrirtækja í verslun að breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks og í iðnaði er talan um 47%. 10.2.2010 15:12
Veisla hjá loðdýrabændum, seldu fyrir 150 milljónir Íslenskir loðdýrabændur seldu minkaskinn fyrir um 150 milljónir kr. á uppboði hjá Kopenhagen Fur í vikunni. Verð á minkaskinnum á uppboðinu hækkaði um 13% frá uppboðinu í desember en þá hækkaði verðið um 36%. 10.2.2010 14:15
Háskólanemar á Framadögum Um 30 fyrirtæki taka þátt í Framadögum í Háskólabíói í dag, en markmiðið með deginum er að skapa vettvang fyrir fyrirtæki til þess að komast í persónuleg kynni við ungt og metnaðarfullt háskólafólk og tilvonandi starfskrafta sína. Fyrstu Framadagarnir voru haldnir árið 1995 og þetta er því í 16 sinn sem slík dagskrá er haldin. 10.2.2010 14:06
Endurfjármögnun nýrrar jarðgerðarstöðvar lokið Endurfjármögnun byggingar jarðgerðarstöðvar Moltu e.hf. í Eyjafirði er nú lokið með samstilltu átaki eigenda fyrirtækisins annars vegnar og Íslandsbanka og hins finnska seljanda vélbúnaðarins hins vegar. 10.2.2010 12:37
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs heldur áfram að lækka Skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands hefur lækkað nokkuð síðustu daga. Nú í morgun var álagið til 5 ára 615 punktar (6,15%), en það stóð í 675 punktum í byrjun síðustu viku. 10.2.2010 12:31
Atvinnuleysið mældist 9% í janúar Skráð atvinnuleysi í janúar 2010 var 9% eða að meðaltali 14.705 manns og eykst atvinnuleysi um 6,7% að meðaltali frá desember eða um 929 manns. Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, eða 10.456 manns að jafnaði. 10.2.2010 12:12
Erlendir aðilar eiga 246 milljarða í ríkisbréfum og víxlum Erlendir aðilar eiga tæplega 246 milljarða kr. í íslenskum ríkisbréfum og ríkisvíxlum í lok síðastliðins árs. Kemur þetta fram í gögnum sem Lánamál ríkisins birtu í morgun. 10.2.2010 12:08
Vodafone semur um afnota af ljósleiðara NATO Samningur um afnot Vodafone af ljósleiðarasþræði Varnarmálastofnunar, sem áður var rekinn af NATÓ og kom í hlut íslenska ríkisins við brottför Varnarliðsins frá Íslandi, hefur verið undirritaður. 10.2.2010 11:59
Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um 31 milljarð í desember Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.794 milljarðar kr. í lok desember síðastliðins og jókst um 31 milljarð kr. í mánuðinum samkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti í gær. Þar af jókst innlend verðbréfaeign um 24,2 milljarða kr. og erlend verðbréfaeign um 14,3 milljarða kr. Sjóðir og bankainnistæður lækkuðu hins vegar um 4,3 milljarða kr. í mánuðinum. 10.2.2010 10:44
Rætt um að ríkissjóður standi undir bændalífeyri Innan stjórnkerfisins eru nú hugmyndir um að ríkissjóður greiði beint mótframlag sitt til lífeyrisgreiðslna bænda í stað þess að framlagið sé ákveðið á fjárlögum hverju sinni. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku en þar lagði fjármálaráðherra fram minnisblað um lífeyrissjóð bænda. 10.2.2010 10:30
Kauphöllin íhugar að fella niður viðskipti vegna mistaka Kauphöllin hefur til skoðunar viðskipti með skuldabréf HFF150914 vegna mikilla verðbreytinga. Kauphöllin íhugar niðurfellingar á grundvelli greinar 6.7.3 í aðildarreglum NASDAQ OMX Nordic. 10.2.2010 10:10
Sólon lánaði fyrir Landsbanka vegna þrýstings Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans, segist hafa veitt lán til kaupa á Landasbankanum undir miklum þrýstingi. Upphaflega hafi hann neitað að lána Björgólfsfeðgum fyrir kaupum í Landsbankanum þegar fyrst var eftir því leitað árið 2003. 10.2.2010 00:01
Farþegum fjölgaði um 13% Farþegum á vegum Icelandair fjölgaði um 13% í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuði í fyrra. Þeir voru um 95 þúsund talsins nú í janúar en um 84 þúsund í janúar í fyrra. Þetta kemur fram í mánaðalegum flutningatölum sem Icelandair sendir Kauphöllinni. 9.2.2010 21:37
Hörður Arnarson með 74 milljónir í laun hjá Marel Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, var með 74 milljónir króna, eða 420 þúsund evru, í laun og hlunnindi hjá Marel á árinu 2009, samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins sem var birtur í dag. 9.2.2010 19:49
Smáragarður endurfjármagnaði tíu milljarða afborgun Smáragarður, fasteignafélag Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, stóð frammi fyrir því að þurfa að greiða tíu milljarða í afborganir af lánum á þessu ári. Félaginu hefur tekist að endurfjármagna þá afborgun með langtímalánum. Fyrirtækið á 138 þúsund fermetra af verslunarhúsnæði, en stór hluti þess er veðsettur Arion banka. 9.2.2010 18:45