Endurfjármögnun nýrrar jarðgerðarstöðvar lokið 10. febrúar 2010 12:37 Sitjandi frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri í Hörgarbyggð og formaður stjórnar Moltu, Rúnar Þór Sigursteinsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka á Akureyri, og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri og formaður stjórnar Flokkunar.
Endurfjármögnun byggingar jarðgerðarstöðvar Moltu e.hf. í Eyjafirði er nú lokið með samstilltu átaki eigenda fyrirtækisins annars vegnar og Íslandsbanka og hins finnska seljanda vélbúnaðarins hins vegar. Í tilkynningu segir að sveitarfélögin í Eyjafirði eru meirihlutaeigendur í Moltu og auk fulltrúa þeirra sitja nú í stjórn fyrirtækisins fulltrúar Norðlenska, Tækifæris og Preseco, sem er framleiðandi og seljandi vélbúnaðarins. Verksmiðjan framleiðir moltu úr um 10.000 tonnum af lífrænum úrgangi á ári. Fram að þessu hefur sláturúrgangur verið uppistaðan í hráefni hennar en á þessu ári mun m.a. lífrænn heimilisúrgangur bætast þar við eftir því sem söfnun hans fer í gang hjá sveitarfélögunum í Eyjafirði. Í upphafi ársins 2008 hófst bygging jarðgerðarstöðvar Moltu ehf. á Þveráreyrum í Eyjafirði fyrir sláturúrgang og annan lífrænan úrgang. Við upphaf framkvæmdanna hafði verið gengið frá fjármögnun hennar til fulls og þar var eiginfjárhlutfall hærra en oftast er í slíkum tilfellum, til að unnt væri að bregðast við ófyrirséðum kostnaði. Við hrun íslensku krónunnnar á árinu 2008 breyttust forsendur mjög til hins verra og þegar framkvæmdum var lokið í ágúst 2009 og starfsemin komin í gang var ljóst að endurfjármagna þyrfti talsverðan hluta framkvæmdakostnaðarins. Með undirritun lánssamninga við Íslandsbanka nú í dag er lokið fjármögnun verkefnisins. Jarðgerðarstöðin á Þveráreyrum er ein af grunnstoðum þess að meðhöndlun úrgangs í Eyjafirði uppfylli allar nútíma kröfur og mikil samstaða er hjá öllum viðkomandi aðilum um að halda áfram að gera alla meðhöndlun úrgangs í héraðinu þannig úr garði að til fyrirmyndar verði, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira