Fleiri fréttir

Victoria dælir myndum á Twitter

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá myndir sem Victoria Beckham hefur sett á Twitter síðuna sína en hún hefur verið dugleg að setja inn myndir af sér sem teknar voru í Hong kong...

Kraftasport í sautján ár

„Við höfum verið með þáttaröðina hvert einasta sumar síðan 1996. Þetta er því í sautjánda skipti sem hún fer af stað, sem gerir hana líklega að einni elstu þáttaröð landsins,“ segir Hjalti Úrsus Árnason, stjórnandi kraftaþáttarins Kraftasport á Stöð 2 Sport.

Húðflúrveisla í sjöunda sinn

„Það verður hægt að fá allar mögulegar gerðir af flúrum á hátíðinni. Ef það á að líkja þessu við fatabúð væri um að ræða búð með öllum gerðum af fötum sem hægt er að ímynda sér,“ segir Össur Hafþórsson, annar eigandi Reyjavík Ink og skipuleggjandi The Icelandic Tattoo Convention sem haldin verður á Bar 11 um næstu helgi.

Hertogaynjan stelur senunni enn og aftur

Þrítuga Kate Middleton hertogaynjan af Cambridge var rauðklædd eins og sjá má í myndasafni þegar hún mætti ásamt prinsinum sínum, Vilhjálmi, í Lundúnarborg í gær til að fagna farsælum ferli Elísabetar Bretadrottningar sem núverandi drottning breska konungsveldisins. Þá má sjá Charles prins og eiginkonu hans Camillu sem var ekki síðri klæddí ljósa dragt með hatt í sama lit sem fór henni einstaklega vel.

Erfið vika fyrir Bieber: Kærður, missti meðvitund og skók Noreg

Ungstirnið Justin Bieber á erfiða viku að baki. Hann var meðal annars kærður fyrir líkamsárás af ljósmyndara og gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. Norskir aðdáendur söngvarans slösuðust lítillega þegar Bieber tróð upp í Ósló og voru 49 fluttir á spítala.

Stutthærð Anne Hathaway

Leikkonan Anne Hathaway, 29 ára, og unnusti hennar Adam Shulman nutu sólarinnar í Brooklyn í New York í gærdag. Eins og sjá má var leikkonan sem er nýbúin að klippa sig stutt í fatla með hatt á höfði og heilsudrykk...

Uppgjör fyrirliðanna

Fjórir nafntogaðir menn mættust á golfvellinum fyrir skemmstu og tóku einn hring á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ. Það heyrir kannski ekki alltaf til tíðinda nema að í þetta skiptið tókust á tveir fyrrum fyrirliðar íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Þar var annars vegar Ásgeir Sigurvinsson, sem lék með Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara, og hins vegar Ellert B. Schram, sem lék með blaðaljósmyndaranum góðkunna Gunnari V. Andréssyni. Skemmst frá að segja hafði Ellert betur gegn Ásgeiri í uppgjörinu, þar sem hann og Gunnar sigruðu bæði í holu- og punktakeppni.

Vinsæl hið vestra

Danssveitin Steed Lord sendi frá sér nýtt tónlistarmyndband í gær. Myndbandið var tekið upp á tónleikum sem sveitin hélt á skemmtistað sem eitt sinn var í eigu tónlistarmannsins Prince í Los Angeles. Þá var fjallað um sveitina á vefsíðu Magnetic Magazine og segist blaðamaður hafa hlustað á nýjasta lag Steed Lord í sífellu frá því það kom út. Magnetic Magazine var stofnað árið 1995 og einblínir á umfjöllun um raftónlist.

Íslenskur „hafmaður“ afhjúpaður

„Það voru tveir myndlistarmenn sem báðu mig um að gera þetta. Þeir áttu tölvugerða mynd af þessari styttu og hún leit út alveg eins og ég,“ segir Hákon Huegemann. Hann sat fyrir þegar listamannnadúóið Elmgreen & Dragset bjó til karlkyns útgáfu af Litlu Hafmeyjunni. Styttan verður afhjúpuð í dag í bænum Elsinore á Sjálandi í Danmörku.

Vill hanna skemmtigarð

Rapparinn Kanye West hyggst ekki takmarka sig við tónlist og hefur þannig sent frá sér tvær fatalínur sem sýndar voru á tískuvikunni í París, leikstýrt kvikmynd og vill nú hanna skemmtigarð.

Hættur í bransanum

Leikstjórinn George Lucas hyggst draga sig í hlé frá kvikmyndabransanum og ætlar þess í stað að sinna áhugamáli sínu; áhugakvikmyndagerð.

Tökur hefjast við Mývatn í haust

„Það er nokkurn veginn búið að ákveða að þau komi í haust aftur,“ segir Snorri Þórisson hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus. Þriðja þáttaröð af miðaldafantasíunni Game of Thrones verður að hluta til tekin upp hér á landi. Aðilar frá bandarísku sjónvarpsþáttunum komu hingað fyrripartinn í maí og skoðuðu tökustaði í samvinnu við Pegasus. Þeim leist vel á Norðurland og þá sérstaklega Mývatnssvæðið. „Þetta verður einhvers staðar þar en það er ekki búið að negla það alveg niður. Það eru margir staðir sem koma til greina. Menn þekkja Suðurlandið og það getur vel verið að það verði eitthvað þar líka. En það eru ekki endilega jöklar sem þeir vilja mynda núna,“ segir Snorri.

Hunsar athyglina

Rihanna kveðst hafa lært að hunsa athyglina sem fylgir frægðinni og lifir nú lífi sínu án þess að hafa áhyggjur af umtali. Þetta kemur fram í nýju viðtali við söngkonuna í tímaritinu Esquire. „Ég hef lært að hunsa athyglina sem ég fæ. Þetta er mitt starf. Ég lifi lífi mínu og svo er það skrásett. Það er margt sem fólk veit um mig sem ég kæri mig ekki um að það viti, en svona er þetta bara,“ sagði söngkonan sem hefur verið í sviðsljósinu frá fimmtán ára aldri.

Tilbúinn í fleiri börn

Fótboltakappinn og fyrirsætan David Beckham vill eignast fleiri börn. Hann á nú þegar fjögur með eiginkonu sinni Victoriu, eða synina Brooklyn, Romeo, Cruz og dótturina Harper, sem er tíu mánaða.

Hressir hæfileikamenn

Það er greinilegt að Frakkinn Yann Tiersen á sér nokkuð marga aðdáendur á Íslandi. Það var löngu uppselt á tónleikana hans í Norðurljósasal Hörpu á fimmtudagskvöldið og hann fékk mjög góðar viðtökur í stöppuðum salnum.

Takast á við vandamál

Söngkonan Gwen Stefani og eiginmaður hennar, söngvarinn Gavin Rossdale, eiga í hjónabandserfiðleikum ef marka má frétt The Irish Independent. Parið kynntist á tónleikaferðalagi árið 1995 og gifti sig sjö árum síðar.

Hamingjusöm og glöð

Fatahönnuðurinn Victoria Beckham segist skilja vel að fólk haldi að hún sé fúllynd, enda brosi hún örsjaldan á myndum. „Ég skapaði þessa persónu þegar ég var meðlimur í Spice Girls, en ég er ekkert eins og hún. Ég er hamingjusöm og glaðvær manneskja en mér finnst ég ekki þurfa að auglýsa það fyrir umheiminum.

Volæðið tekur enda

Breskar volæðismyndir eru ekki allra og Tyrannosaur er sú grimmasta og grámyglulegasta sem ég hef séð lengi. Segir hún frá ekklinum Joseph, drykkfelldum ofbeldishrotta sem meiðir bæði menn og dýr, en hann álpast dag einn inn í verslun sem selur notuð föt. Þar vinnur hin góða og afar guðhrædda Hannah, en smám saman tekst með þeim vinátta þó ólík séu.

Sótti um í Baywatch

Leikarinn Leonardo DiCaprio fór í áheyrnarprufu fyrir hlutverk í sjónvarpsþáttunum Baywatch en á endanum hlaut Jeremy Jackson rulluna. Þetta segir David Hasselhoff, sem lék strandvörðurinn Mitch Buchannon. DiCaprio hefði leikið son hans í þáttunum en ekkert varð af því.

Fríkaði út í flugvélinni

Sonur leikkonunnar Charlize Theron, Jackson, „fríkaði út“ þegar hann fór í sína fyrstu flugferð með hefðbundnu flugfélagi. Hinn sex mánaða Jackson hafði áður flogið til fjölmargra landa með móður sinni í einkaþotu en virtist ekki alls kostar ánægður með þennan nýja farkost.

Sér um allt skipulag

Justin Timberlake hefur verið önnum kafinn við að skipuleggja brúðkaup sitt og leikkonunnar Jessicu Biel. Brúðkaupið mun að öllum líkindum fara fram í október á Palazzo Margherita hótelinu á Ítalíu, sem er í eigu leikstjórans Francis Ford Coppola. „Justin vill að brúðkaupið fari fram á Ítalíu því þau eru bæði afskaplega hrifin af landinu. Þau fara þangað gjarnan í frí og eiga mikið af góðum minningum þaðan,“ var haft eftir heimildarmanni. Timberlake er einnig sagður sjá að mestu um allt skipulag í kringum stóra daginn og hefur gaman af.

Hlaupatrúboðar breiða út boðskapinn í hlaupabók

"Hlaup eru svo hentug fyrir upptekið fólk sem vill vera í góðu formi, eina sem þarf eru góðir hlaupaskór og síðan má hlaupa hvaðan sem er og hvenær sem er,“ segja þær Elísabet Margeirsdóttir, næringarfræðingur og veðurfréttakona og Karen Kjartansdóttur, bókmenntafræðingur og fréttakona á Stöð 2.

Vill sinna syninum

Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr velur verkefni sín af kostgæfni eftir að hún eignaðist soninn Flynn. Þetta gerir hún svo hún geti eytt meiri tíma með fjölskyldu sinni.

Pink kát á sjúkrahúsi

Söngkonan Pink lenti á sjúkrahúsi á fimmtudag vegna slæmrar magakveisu. Hún var þó ekki veikari en það að hún sendi aðdáendum sínum Twitter-skilaboð þaðan sem hún lá í sjúkrarúmi sínu.

Fimm milljónir á fingri

Leikkonan Keira Knightley trúlofaðist tónlistarmanninum James Righton fyrir skemmstu. Að sögn talsmanns leikkonunnar játaði hún Righton eftir fimmtán mánaða samband.

Með nýtt lífsmottó

Leikarinn Robert Pattinson segist vera orðinn þreyttur á persónunni Edward Cullen í nýju viðtali við Shortlist Magazine. Hann segist einnig eiga sér lífsspeki sem hann lifir eftir.

Fékk heilahristing baksviðs

Popparinn Justin Bieber fékk heilahristing eftir að hann datt baksviðs á tónleikum í París. Í viðtali við vefsíðuna Tmz.com sagðist Bieber hafa dottið á glervegg, orðið ringlaður en náð að klára síðasta lagið áður en hann fór aftur baksviðs og missti meðvitund í fimmtán sekúndur. Skömmu síðar skrifaði Bieber á Twitter: „Rak höfuðið í og þurfti smá vatn. Allt í góðu samt. Ég er frá Kanada og við erum hörð í horn að taka. Sýningin verður að halda áfram.“

Ekki jafn góð og Alien

Stórmyndin Prometheus verður frumsýnd í Bretlandi um helgina og eru gagnrýnendur þegar farnir að leggja sitt mat á nýjasta verk leikstjórans Ridleys Scott.

Bobbi er skynsöm

Bobby Brown, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Whitney Houston, telur að dóttir þeirra, Bobbi Kristina, sé nógu skynsöm til að feta ekki í fótspor foreldra sinna hvað vímuefnanotkun varðar. Einhverjir hafa haldið því fram að hún noti ólögleg vímuefni og hefur hún þurft að neita því opinberlega.

Hlustendaverðlaun FM957 í beinni á Vísi

Hlustendaverðlaun FM957 verða í beinni útsendingu á Vísi í kvöld. Hátíðin, sem verður haldin í Hörpu, hefst klukkan hálf níu í kvöld. Fjölmörg skemmtiatriði verða á boðstólnum, meðal annars mun Jón Jónsson stíga á svið auk þess sem Björn Bragi úr Týndu kynslóðinni mun verða kynnir.

Á toppnum í 15 löndum

Lagið Euphoria með Loreen hefur farið á toppinn í fimmtán löndum eftir sigurinn í Eurovision. Björk er á meðal áhrifavalda sænsku söngkonunnar. Sigurlag Eurovision-keppninnar, Euphoria með sænsku söngkonunni Loreen, hefur farið sigurför um heiminn að undanförnu. Eftir að úrslitin urðu ljós rauk lagið í toppsæti vinsældarlista iTunes í fimmtán löndum, þar á meðal í Bretlandi, Þýskalandi, Danmörku, Grikklandi, Spáni og Eistlandi. Það að lagið skuli hafa náð toppnum í Bretlandi er nokkuð merkilegt því þetta er í fyrsta sinn síðan 1996 sem Eurovision-lag nær þeim árangri. Þá fór hin ástralska Gina G í efsta sætið með hinu grípandi Ooh Aah... Just a Little Bit sem hún söng fyrir hönd Bretlands. "Ég vona að Euphoria verði í hjörtum fólks eins lengi og mögulegt er," sagði Loreen eftir að sigurinn í Eurovision var í höfn.

Bak við tjöldin með Magdalenu Dubik

Deriva Jewels is er fimm ára gamalt skartgripamerki frá Hollandi á hraðri uppleið. Hönnuðurinn Dana Smit ákvað að leita til Íslands fyrir næstkomandi auglýsaherferð sína og er óhætt að segja að hún valið gott fólk til verka...

Borðar ekki rautt kjöt og veit ekki hvað hún skýtur

"Þetta er hluti af áramótaheitinu mínu, sem var að taka eins mörg próf og ég mögulega get á þessu ári,“ segir María Birta Bjarnadóttir, leikkona og verslunareigandi, sem fékk skotveiðileyfi á afmælisdaginn sinn þann 29. maí. María Birta einsetti sér að auka við þekkingu sína á árinu og hefur sannlega staðið við stóru orðin því hún hefur nú þegar klárað fallhlífarstökkspróf og hyggst ljúka kafaraprófi og mótorhjólaprófi í sumar og taka einkaflugmannspróf í haust auk þess sem hún hefur skráð sig á brimbrettanámskeið í júní. "Ég hef unnið í að byggja upp fyrirtækið mitt síðustu sex árin og fannst líf mitt orðið hálf einhæft og langaði að læra eitthvað nýtt,“ bætir hún við.

Fyrirgaf Harris

Glaumgosinn Hugh Hefner er tekinn aftur saman við fyrrum unnustu sína, Playboy kanínuna Crystal Harris. Líkt og frægt er orðið yfirgaf Harris hinn aldraða unnusta sinn síðasta sumar, aðeins viku fyrir fyrirhugað brúðkaup þeirra.

Fassbender vill framhald

Leikarinn Michael Fassbender vonast til að framhald verði gert á spennumyndinni Prometheus, sem var að hluta til tekin upp á Íslandi. Hann lagði sig allan fram við tökurnar. "Mér fannst mikil forréttindi að vera hluti af hópnum. Ég vildi ekki vera veikur hlekkur og vann því heimavinnuna mína eins vel og ég mögulega gat. Þegar ég mætti í vinnuna hafði ég upp á eitthvað að bjóða,“ sagði Fassbender við Digital Spy.

Sumarfagnaður í Turninum

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Inkasso flutti í ný húsakynni á 16. hæð í Turninum Smáratorgi og af því tilefni var viðskiptavinum og velunnurum boðið til sumarfagnaðar. Eins og sjá má var gleðin við völd. Inkasso.is

Dagur í lífi ritstjóra

Hann var afdrifaríkur dagurinn sem ritstjórinn Hrund Þórsdóttir deilir með Lífinu í dag.

Kílóamissir Beyonce

Enn eru uppi vangaveltur um hvort ólétta söngkonunnar Beyonce hafi verið raunveruleg eða hvort hún hafi fengið staðgöngumóður til að ganga með dóttur sína Blue Ivy.

Vildi leika í Titanic

Fyrrum talsmaður leikarans Christians Bale, Harrison Cheung, hefur ritað bók um Bale sem nefnist Christian Bale: The Inside Story of the Darkest Batman og kom út á netinu í gær. Í bókinni kemur meðal annars fram að Leonardo DiCaprio hafi upphaflega átt að fara með hlutverk Patricks Bateman í American Psycho.

Sjá næstu 50 fréttir