Lífið

Húðflúrveisla í sjöunda sinn

Össur segir vera mikla breidd í flúrurunum á hátíðinni í ár og að í boði verði allar gerðir af húðflúrum sem fólk getur ímyndað sér.
Össur segir vera mikla breidd í flúrurunum á hátíðinni í ár og að í boði verði allar gerðir af húðflúrum sem fólk getur ímyndað sér.
„Það verður hægt að fá allar mögulegar gerðir af flúrum á hátíðinni. Ef það á að líkja þessu við fatabúð væri um að ræða búð með öllum gerðum af fötum sem hægt er að ímynda sér,“ segir Össur Hafþórsson, annar eigandi Reyjavík Ink og skipuleggjandi The Icelandic Tattoo Convention sem haldin verður á Bar 11 um næstu helgi.

Þetta er í sjöunda árið sem Össur og kona hans Linda Mjöll Þorsteinsdóttir setja upp hátíðina og verður hún að sögn Össurar vinsælli með hverju árinu.

„Þetta er búið að þróast mikið í gegnum árin og nú er til dæmis farið að koma sífellt meira af erlendum ferðamönnum til landsins til að mæta á hátíðina,“ segir hann. Mikil breidd af flúrurum verður á hátíðinni og koma þeir víða frá. „Hér verða að sjálfsögðu íslenskir flúrarar en líka frá Þýskalandi, Danmörku, Bandaríkjunum og Ítalíu svo eitthvað sé nefnt,“ segir Össur. Hver sem er getur fengið sér flúr á hátíðinni og fara tímapantanir fram á staðnum.

„Þetta er bara stærsta tattústofa landsins með flúrara á heimsmælikvarða,“ bætir Össur við.

Hátíðin hefst á fimmtudaginn og stendur út laugardag og verður sem áður segir haldin á Bar 11 og í tjaldi sem reist verður á bílastæðinu fyrir aftan hann. Hún hefst klukkan 12 á hádegi alla dagana og stendur fram eftir kvöldi. Þar á eftir verða svo tónleikar öll kvöld þar sem meðal annars stíga á svið hljómsveitirnar Sykur og Sólstafir. Auk þess verður boðið upp á glæsilega bílasýningu í kjallara bílastæðahússins á Hverfisgötu á laugardaginn. -trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.