Volæðið tekur enda 2. júní 2012 12:45 Sannfærandi Frammistaða Peters Mullan gæti ein og sér haldið myndinni uppi.
Tyrannosaur Leikstjórn: Paddy Considine Leikarar: Peter Mullan, Olivia Colman, Eddie Marsan, Paul Popplewell, Ned Dennehy, Sally Carman, Samuel Bottomley Breskar volæðismyndir eru ekki allra og Tyrannosaur er sú grimmasta og grámyglulegasta sem ég hef séð lengi. Segir hún frá ekklinum Joseph, drykkfelldum ofbeldishrotta sem meiðir bæði menn og dýr, en hann álpast dag einn inn í verslun sem selur notuð föt. Þar vinnur hin góða og afar guðhrædda Hannah, en smám saman tekst með þeim vinátta þó ólík séu. Þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans í fullri lengd og af fyrstu mínútunum að dæma sýndist mér hún stefna beinustu leið í American History X-bunkann, þar sem samviskulausir rugguhestar hætta fíflaskapnum og verða almennilegir á afskaplega ótrúverðugan máta. Fljótlega rann þó upp fyrir mér að meira er spunnið í Tyrannosaur. Considine leikur sér með tilfinningar áhorfandans í garð aðalpersónunnar, en Joseph er margslunginn karakter og maður vill að honum gangi vel. Að sama skapi finnst manni hann eiga skilið að svara fyrir hegðun sína. Peter Mullan er leikari sem ég hef ekki veitt athygli áður, en hann er ótrúlega sannfærandi í hlutverkinu og frammistaðan ein og sér gæti haldið myndinni uppi. Olivia Colman sýnir einnig mögnuð tilþrif og í næstsíðasta atriði myndarinnar tókst henni að framkalla tár á hvarmi undirritaðs. Ned Dennehy er skemmtilegur sem rasistaróninn Tommy og tekst að lífga mann eilítið upp í þeim örfáu senum sem hann birtist í. Þrátt fyrir alla eymdina hressti Tyrannosaur mig við. Mér fór að þykja vænt um Joseph og einnig þótti mér vænt um að sjá mynd úr þessum fyrrnefnda bunka sem gengur upp. Volæðið tekur alltaf enda en hér er það loksins sannfærandi.Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Erfið en hrikalega eftirminnileg.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Sjá meira