Fleiri fréttir

Vanilla Ice handtekinn fyrir heimilisofbeldi

Rapparinn fyrrverandi, Vanilla Ice, sem réttu nafni heitir Robert Matthew Van Winkle var handtekinn á heimili sínu í gær eftir stympingar við eiginkonuna. Samkvæmt heimildum TMZ lenti rapparinn í rifrildi við eiginkonu sína, Lauru, og hrinti henni. Hann mun dvelja í fangelsinu þangað til síðar í dag þar til hann kemur fyrir dómara.

Hlustendaverðlaunin aldrei flottari

„Þetta kostar margar milljónir,“ segir Brynjar Már Valdimarsson, tónlistarstjóri FM957. Hinn 3. maí verða Hlustendaverðlaun FM957 veitt við hátíðlega athöfn í Háskólabíói.

Þursaflokkurinn flýgur norður með einkaþotu

Það hafa fleiri en ráðherrar ríkisstjórnarinnar stokkið á hugmyndina um einkaþotur til að spara tíma. Þursaflokkurinn heldur norður til Akureyrar á einni slíkri nú um helgina.

Merzedes myndbandið er auglýsing fyrir Símann

Svonefnt kynþokkafyllsta myndband heims, Meira frelsi þeirra Merzedes Club liða, er auglýsing fyrir Frelsi, fyrirframgreidda símaþjónstu Símans. Fyrsta sjónvarpsauglýsingin unnin upp úr myndbandinu fer í birtingu í kvöld.

114 þúsund manns horfðu á Mannaveiðar

Íslenska spennuþáttaröðin Mannaveiðar voru vinsælasta sjónvarpsefnið í síðustu viku, en um 114 þúsund manns á aldrinum 12-80 ára horfðu á þáttinn.

Tónleikar til styrktar Dagbjörtu

Tónleikar verðar haldnir til styrktar Dagbjörtu Rós Halldórsdóttur þann 15. maí á skemmtistaðnum Nasa. Eins og greint hefur verið frá í ýmsum fjölmiðlum stendur Dagbjört í harðvítugri forræðisdeilu við bandarískan barnsföður sinn.

Pete fær engar heimsóknir í fangelsið

Pete Doherty var hent í steininn á þriðjudag fyrir að hafa ítrekað hunsað tilmæli dómara sem dæmdu hann til áfengismeðferðar vegna ítrekaðra fíkniefnalagabrota. Rokkarinn hefur líklega búist við að vinir hans sýndu aðstæðum hans samúð, en það virðist djúpt á henni.

Íslensk hljómsveit sigraði í stórri lagasmíðakeppni

Íslenska unglingasveitin Soundspell sigraði í unglingaflokki einnar stærstu lagasmíðakeppni í heimi, „International Songwriting Contest" með lag sitt Pound. Það voru engar smákanónur meðal dómara í keppninni, en þar má nefna Jerry Lee Lewis, Tom Waits, Frank Black úr Pixies og Robert Smith úr The Cure.

Ástfangin uppfyrir haus

Öllum að óvörum virðist samband Parísar Hilton og rokkarans Benji Madden ætla að endast. Hótelerfinginn alræmdi er nú á tónleikaferðalagi með hljómsveit Benjis, Good Charlotte.

Merzedes-myndband það tíunda vinsælasta á YouTube

Myndbandið við lag Merzedes Club, Meira frelsi, situr nú í tíunda sæti yfir vinsælustu tónlistamyndböndin á YouTube. Listann skreyta aðrar kanónur úr tónlistaheiminum á borð við Madonnu, Kelly Rowland og Idol keppanda eða fimm.

This is My Life meðal vinsælustu Júróvisjónlaganna

Erkifjandi íslendinga, Charlotte Pernelli hin sænska, hefur tekið afgerandi forystu í kosningu um besta Eurovisionlagið þetta árið, þegar átta landsdeildir OGAE, stærsta Evróvisjónaðdáendaklúbbsins, hafa gefið lögunum í keppninni einkunn.

Krabbameinsmeðferð Swayze gengur framar vonum

Lyfjameðferð sem leikarinn Patrick Swayze gengst undir vegna krabbameins í brisi gengur framar björtustu vonum, að sögn lækna hans. Swayze og eiginkona hans sögðu í viðtali við People tímaritið að þau væru í skýjunum vegna fréttanna, og þökkuðu aðdáendum fyrir bænirnar og fallegu hugsanirnar.

Uppselt á James Blunt í forsölu

Kreppan hefur greinilega ekki mikil áhrif á tónleikaferðir landans enn sem komið er. Forsala miða á tónleika hjartaknúsarans James Blunt hófst með látum í morgun, og kláruðust þeir sjöhundruð miðar sem í boði voru á örskotsstundu.

Magni í krísu

Rock-Star hetjan Magni Ásgeirsson hefur vart undan að feta í fótspor stórstjarna í rokkheiminum.

"Kynþokkafyllsta myndband heims" komið á netið

,,Ég lofaði kynþokkafyllsta myndbandi í heimi, og nú getur fólk bara séð það,” segir Egill “Gillz” Einarsson, einn meðlima vöðvasveitarinnar Merzedes club. Myndbandið við lag sveitarinnar, Meira frelsi, er nú komið á netið.

Mikilmenni við útför „fimmta Bítilsins“

Yoko Ono, meðlimir hljómsveitarinnar the Who og Bítlaframleiðandinn George Martin voru viðstödd jarðaför Neil Aspinall sem gjarnan var nefndur „fimmti Bítillinn.“ Neil sem var vinur Bítlanna til langs tíma og fyrrverandi framkvæmdastjóri var jarðsettur í viðurvist 250 vina og ættingja í St Mary The Virgin kirkjunni í Twickenham í vesturhluta London.

Naomi bannað að fljúga með BA

Naomi Campbell hefur verið bannað að fljúga með British Airways eftir deilu um týndan farangur. Talsmaður fyrirsætunnar sagði að hún vonaðist til að hægt væri að leysa deiluna við BA á vingjarnlega hátt. Talsmaður flugfélagsins vildi ekki gefa upplýsingar um einstaka farþega.

Kylie: Mér var sagt að ég væri heilbrigð

Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur hvatt konur til að fá annað álit lækna gruni þær að þær séu veikar. Í viðtali við bandarísku sjónvarpskonuna Ellen DeGeneres sagði söngkonan að fyrsti læknirinn sem hún hafi leitað til vegna brjóstakrabbameins hefði sagt að hún væri heilbrigð.

Síðustu tónleikar Pavarotti sviðsettir

Luciano Pavarotti lék eftir eigin söng á síðustu tónleikum sínum á vetrarólympíuleikunum í Turin árið 2006. Leone Magiera stjórnandi tónleikanna hefur viðurkennt að flutningur hans á laginu Nessun Dorma hafi verið tekinn upp fyrir tónleikana. Raunverulegur flutningur hefði verið „of áhættusamur.“

Tónlistarhátíð á sjö, níu 13

Allar helstu vonarstjörnur íslenska tónlistariðnaðarins munu koma saman og sprengja þakið á skemmtistaðnum sjö, níu, 13 laugardagskvöldið 12. apríl.

Pamela mað eigin raunveruleikaþátt

Fyrrum strandvörðurinn Pamela Anderson bætist bráðlega í hóp raunveruleikastjarna. Hún fær sinn eigin þátt á sjónvarpsstöðinni E! sem mun bera heitið, Pamela.

Námskeið í vínsmökkun

Við tölum oft um vínþrúgur, vínhéruð, eik - en hvernig er best að smakka vín? Er nauðsynlegt að vera sérfræðingur til að læra vínsmökkun? Hvaða eiginleikar víns líkar okkur og hvaða eiginleikar geðjast okkur ekki - og af hverju?

Geri Halliwell ástfangin á ný

Kryddstúlkan Geri Halliwell frumsýndi nýja kærastann sinn við upptökur á Idol Gives Back, á sunnudagskvöld. Hinn heppni er Ivan FilipZ Valez og er eldheitur dansari.

Madonna vill indverskt barn

Madonna ætlar að ættleiða indverskt barn, samkvæmt heimildum Sun blaðsins. Söngkonan, sem ættleiddi lítinn dreng frá Malaví fyrir tveimur árum, hafði í hyggju að ættleiða stúlku þar, en gafst upp á pappírsvinnunni í kringum ættleiðinguna.

Síðasti séns að kjósa Garðar

Á morgun er síðasti dagurinn sem hægt er að kjósa Garðar Thór Cortes til verðlauna á Classical Brit Awards. Björk er eini íslendingurinn sem hefur verið tilnefnd til Brit verðlaunanna en hún er líka sú eina sem hefur unnið verðlaunin til þessa.

Beckham gefur tengdó hús

Knattspyrnugoðið David Beckham hefur gefið tengdarforeldrum sínum hús sem hann keypti í Dubai árið 2002. Húsið er á manngerðri eyju sem var látin líta út eins og pálmatré.

Charlton Heston látinn

Bandaríski leikarinn Charlton Heston er látinn, áttatíu og fjögurra ára að aldri. Hann var áratugum saman einn af vinsælustu leikurum heims og lék hlutverk í stórmyndum um allt frá Móses til Michaelangelos.

Paul Simon til Íslands

Tónlistarmaðurinn heimskunni Paul Simon bætist í hóp Íslandsvina í sumar, en hann verður með tónleika í Laugardalshöll fyrsta júlí. (LUM) Simon sló gegn á sjöunda áratugnum með félaga sínum Art Garfunkel. Paul Simon samdi margar tónlistarperlur sem lifa góðu lífi, lög eins og Sounds of Silence, Missis Robinson og Bridge over troubled water, svo fáein séu nefnd.

Þorsteinn ánægður með fyrsta Svalbarðaþáttinn

"Þetta gekk bara mjög vel," segir Þorsteinn Guðmundsson um fyrsta þáttinn af Svalbarða sem sýndur var í gær. "Við lærum vonandi af fyrsta þættinum, það eru einhver smáatriði sem við viljum bæta en við erum mjög hamingjusöm," bætir hann við.

Valtýr Björn á Rúv

Íþróttafréttamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson hefur sagt upp störfum hjá 365 miðlum og mun hefja störf sem íþróttafréttamaður hjá Ríkisútvarpinu innan skamms.

Dylan á fullu í 46 ár

Fyrsta plata Dylans kom út árið 1962 og hans nýjasta plata, MODERN TIMES, kom út 29. ágúst 2006 og sló strax rækilega í gegn.

Bubbi sendi Hjálmar heim

Hjálmar Már Kristinsson var útilokaður frá þátttöku í Bandinu hans Bubba í kvöld. Hjálmar og Thelma Hafþórsdóttir enduðu neðst í vali áhorfenda og þurftu að syngja aftur.

Fékk ekki milljarðamæringafílinginn

Reffileg einkaþota lenti á Reykjavíkurflugvelli um sexleytið í dag með þau Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og föruneyti þeirra um borð.

Gluggagægjur í sunnudagsbíltúrnum

Áhugi á fasteignum á Hæðinni hefur aukist töluvert í kjölfar samnefnds þáttar á Stöð 2. „Við finnum klárlega fyrir meðbyr, og höfum verið að selja fleiri eignir núna en fyrir mánuði," segir Jón Grétar Jónsson, framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Húsakaupa, sem hefur stóran hluta hverfisins til sölu.

Skjár einn skoðar Ásdísarþátt

Þetta er ekkert sem okkur hefur boðist ennþá, en við höfum hugsað um þetta, segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri Skjás Eins.

From Oakland to Iceland frumsýnd á Skjaldborg

Það hefur nú verið staðfest að heimildamyndin From Oakland to Iceland: A Hip-Hop Homecoming verður frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni nú í maí næstkomandi. Myndin fjallar um heimkomu íslenska plötusnúðsins Illuga, sem hefur búið í Oakland í Kaliforníu frá barnsaldri og getið sér gott orð þar.

Naomi sleppt úr haldi

Fyrirsætunni geðvondu, Naomi Campbell var sleppt úr fangelsi í nótt, eftir yfirheyrslur. Hún var handtekin á Heathrow flugvelli í gær eftir að henni var vísað frá borði Brititsh Airways flugvélar á leið til Los Angeles.

Sjá næstu 50 fréttir