Fleiri fréttir

Coral fagnar á Faktorý

Coral sendi nýverið frá sér breiðskífu Leopard Songs og fagnar útgáfunni með tónleikum á Faktorý í kvöld. Platan inniheldur meðal annars lagið The Underwhelmer, sem hefur heyrst á öldum ljósvakans.

Verður áfram tískutímarit

„Þetta var mjög óvænt og bar skyndilega að,“ segir Þóra Tómasdóttir, nýráðinn ritstjóri tímaritsins Nýs lífs.

Kennir túristum á Íslendinga

"Markmið sýningarinnar er að kenna útlendingum að vera Íslendingar,“ segir leikarinn Bjarni Haukur Þórsson og hlær.

Björn fyllir skarð Gísla í mynd Nilla

„Björn Thors og Gísli Örn eru með glæsilegri leikurum sem Ísland hefur upp á að bjóða í dag,“ segir sjónvarpsmaðurinn Níels Thibaud Girerd, best þekktur sem Nilli.

Timberlake er dóni

Justin Timberlake er að sögn aðdáenda og annara orðinn heldur góður með sig og ásamt því að neita að gefa eiginhandaráritanir er hann nú einnig dónalegur við starfsfólk veitingastaða.

Fyrsta poppstjarna dubstep-kynslóðarinnar

Á meðal þeirra sem eru tilnefndir til Mercury-verðlaunanna í ár er breska söngkonan Katy B, en fyrsta platan hennar, On a Mission, hefur selst vel og fengið frábæra dóma. Trausti Júlíusson skoðaði Katy.

Tvöfaldur pakki frá Radiohead

Tvöfaldur geisladiskur mun vera á leiðinni frá hljómsveitinni Radiohead í næsta mánuði. Á disknum verður að finna nítján endurhljóðblandanir á lögum sveitarinnar af plötunni The King Of Limbs sem kom út fyrr á árinu.

Kennedy var fyrirmyndin

„Þetta er bara ég við skrifborðið heima og bókasafnið mitt á bak við,“ segir Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og laganemi.

Baldwin stefnir á embætti borgarstjóra í New York

Alec Baldwin hefur viðurkennt að hann beri með sér í brjósti draum um að verða borgarstjóri í New York. Baldwin kveðst þó ekki ætla fram árið 2013 en hyggst nýta tímann fram að næstu kosningum vel til undirbúnings.

Lohan meinaður aðgangur baksviðs

Vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan eyddi allri síðustu helgi í að elta bassaleikara Coldplay, Guy Berryman, á röndum. Lohan hefur, að sögn slúðurmiðla vestanhafs, fengið augastað á bassaleikaranum og eyddi allri helginni í að flakka á milli tónleika í Chicago með systur sinni Ali.

Á bak við stærstu plötur Bubba

"Þetta er afskaplega merkilegt,“ segir bloggarinn og tónlistarspekingurinn Jens Guð. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Bubbi Morthens selt um 320 þúsund sólóplötur frá því að Ísbjarnarblús kom út árið 1980. Þrjár mest seldu plöturnar, Dögun, frá 1987, Frelsi til sölu, frá 1986 og Kona, frá 1985, hafa samtals selst í tæplega 50 þúsund eintökum. Þá eiga þær sameiginlegt að Jens Guð sá um markaðssetningu þeirra allra ásamt því að hanna umslögin að mestu eða öllu leyti.

Stjörnurnar eru sjúkar í þetta munstur

Stjörnumunstraða haustlína Domenico Dolce og Stefano Gabbana er að gera allt vitlaust í Hollywood. Barnshafandi leikkonan Jessica Alba, sem skoða má í myndasafni, vakti lukku þegar hún klæddist stórglæsilegum síðkjól með fyrrnefndum stjörnum á rauða dreglinum. Í myndasafni má sjá ýmsar útfærslur á stjörnumunstruðum flíkum á tískusýningu Dolce & Gabbana fyrir haustið 2011.

Mikill skellur fyrir óháðar plötuútgáfur

Óeirðirnar í London gætu komið við kaunin á tónlistaráhugafólki eftir að stórt vöruhús í Norður-London brann aðfaranótt þriðjudags. Í vöruhúsinu var allur lager PIAS UK-fyrirtækisins sem sér um dreifingu á plötum fyrir yfir 150 óháðar plötuútgáfur. Meðal þeirra plötuútgáfa sem misstu lager sinn voru XL/Beggars, Warp, Rough Trade, Domino, 4AD, Sub Pop, Secretly Canadian, Jagjaguwar, Drag City, Thrill Jockey, FatCat, Kompakt, Mute, Ninja Tune, Vice og Soul Jazz, að því er fram kemur í frétt á Pitchfork.com.

Nei nú gengur þú of langt

Eins og meðfylgjandi myndir sýna gægðust geirvörtur söngkonunnar Kelly Rowland út á meðan hún dansaði og söng...

Þægileg og grípandi lög

Wait for Fate er fyrsta plata Hafnfirðingsins Jóns Jónssonar, en hann er eldri bróðir Friðriks Dórs sem vakti mikla athygli fyrir sína frumsmíð á síðasta ári. Jón semur sjálfur flest lög og texta á plötunni og syngur og spilar á kassagítar. Hægri hönd hans er upptökustjórinn og hljómborðsleikarinn Kristján Sturla Bjarnason. Auk þeirra spila nokkrir aðrir hljóðfæraleikarar á Wait for Fate og Anna María Björnsdóttir syngur bakraddir.

Ekkert kynlíf fyrir mót

"Mánudagur mátti (stunda kynlíf) en eftir það nei," segir Baldur Jónsson í meðfylgjandi myndskeiði þegar talið berst að kynlífi fyrir Íslandsmótið í Angry Birds símaleiknum sem fram fer á morgun í Smáralind.

Sumartískan 2012 í Kaupmannahöfn

Hönnuðir og innkaupafólk frá öllum heimshornum sótti Kaupmannahöfn heim um helgina þar sem farið var yfir strauma og stefnur sumarsins 2012. Það er gaman að sjá að litadýrð sumarsins heldur áfram næsta sumar. Bleikur og myntugrænn voru ríkjandi á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem og ljósgrár og auðvitað hvítur, sem allajafna kemur sterkur inn í fataskápinn á sumrin.

Eitthvað er greinilega að í herbúðum Kings of Leon

Óvissa ríkir um framtíð Kings of Leon, eina stærstu hljómsveit heims. Ofþreyta er sögð vera ástæðan fyrir því að hljómsveitin hætti við restina af tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin, en vandamálin eru sögð miklu djúpstæðari en það.

Hjónasvipur með íslensku merkjunum í Kaupmannahöfn

"Við fundum fyrir mjög miklum áhuga og erum því sátt við helgina,“ segir Brynhildur Þórðardóttir fatahönnuður um helgina á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Brynhildur hannar fyrir merkið Lúka Art & Design og var að fara á Tískuvikuna í Kaupmannahöfn í fyrsta sinn en þangað fóru einnig Kron by KronKron, Diza by Alprjón, Farmers Market og Andersen & Lauth.

Lygarar sem segjast ekki geta létt sig

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leikkonuna Milu Kunis, 27 ára, sem lék ballerínu í Óskarsverðlaunamyndinni Black Swan. Hún er ekki að skafa ofan af því í nýjasta tölublaði breska Glamour þegar kemur að megrunartali. Mila, sem létti sig um 10 kíló fyrir ballerínuhlutverkið, er handviss um að allir geti létt sig en aðeins ef viljinn er fyrir hendi. Ég gerði mér aldrei almennilega grein fyrir því hvað mannslíkaminn er í rauninni fær um að gera. Ég trúði því að ég væri fær um að gera allt. Ekki í eina sekúndu efaðist ég um að ég gæti ekki framkvæmt það sem ég þráði. Ef þú leggur þig virkilega fram þá nærðu árangri," sagði Mila sem trúir á vinnusemi og algjöra sjálfstjórn. Ég elska mat og þegar fólk segist ekki geta grennst þá er það einfaldlega að ljúga. Ég segi nei, nei nei þú getur það! Líkami þinn getur gert allt en þú verður bara að vilja það.

Ef allt klikkar þá fer ég bara aftur í lögfræðina

„Við erum lítið fyrirtæki og höfum hugsað okkur að vera það áfram. Við einbeitum okkur að fáum verkefnum og viljum meina að við framleiðum ódýrt sjónvarpsefni vel,“ segir Hugi Halldórsson framleiðandi.

Aftur til vinnu

Miranda Kerr var á meðal þeirra fyrirsæta sem sýndu fatnað í tengslum við tískuvikuna í Ástralíu á dögunum. Þetta var í fyrsta sinn sem hún gekk eftir sýningarpalli eftir fæðingu sonar hennar og leikarans Orlando Bloom.

Gjörbreytt vægast sagt

Írska söngkonan Sinead O'Connor, 44 ára, hefur skyndilega komið upp á yfirborðið og í þetta sinn er hún nánast óþekkjanleg frá því hún gerði það gott fyrir 20 árum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum...

Sumir hafa breyst geðveikt mikið

Meðfylgjandi má sjá breytinguna sem orðið hefur á leikkonunni Katie Holmes, 32 ára, í gegnum tíðina. Gamla myndin af Katie var tekin árið 2000 áður en hún kynntist eiginmanni sínum, leikaranum Tom Cruise, en þá átti hún í ástarsambandi við American Pie stjörnuna Chris Klein. Skoða má Katie stilla sér upp í Holmes & Yang kjól og Alexandre Birman skóm á rauða dreglinum og á hlaupum klædd í gallabuxur. Katie sló í gegn eftir að hún landaði hlutverki í sjónvarpsþáttunum Dawson Creek árið 1998.

Ert þú líka að hverfa stelpa?

American Idol sigurvegarinn Jordin Sparks, 21 árs, var aðeins 17 ára þegar hún bustaði hina keppendurna og stóð uppi sem sigurvegari. Stelpan hefur misst 15 kíló síðan þá með því að leggja áherslu á holla fæðu samhliða daglegri hreyfingu. Ég borða það sama og áður. Ef mig langar í brauð þá fæ ég mér brauð en ef mig langar í kartöfluflögur þá borða ég epli í staðinn fyrir heilan poka af flögum. Þannig hef ég breytt matarvenjunum.Í meðfylgjandi myndasafni má sjá breytinguna sem orðið hefur á American Idol söngkonunni Jordin Sparks, 21 árs, sem var aðeins 17 ára þegar hún bustaði hina keppendurna og stóð uppi sem sigurvegari. Stelpan hefur misst 15 kíló síðan þá með því að leggja áherslu á holla fæðu samhliða daglegri hreyfingu. "Ég borða það sama og áður. Ef mig langar í brauð þá fæ ég mér brauð en ef mig langar í kartöfluflögur þá borða ég epli í staðinn fyrir heilan poka af flögum. Þannig hef ég breytt matarvenjunum. Ef mig langar í köku þá fæ ég mér köku en passa mig á magninu. Ég borða minni skammta og oftar," sagði Jordin. Jógúrt, kjúklingur, ávextir og Toblerone súkkulaði eru í uppáhaldi hjá Jordin. Ef mig langar í köku þá fæ ég mér köku en passa mig á magninu. Ég borða minni skammta og oftar. Jógúrt, kjúklingur, ávextir og Toblerone súkkulaði eru í uppáhaldi hjá söngkonunni.

Týnda kynslóðin - Leikir sem enginn skilur

Eins og kom fram í sýnishorninu fyrir Týndu kynslóðina sem var sett í loftið fyrir helgi eru leikir sem enginn skilur meðal þess sem þáttastjórnendurnir Björn Bragi og Þórunn Antonía hafa velt fyrir sér. Hér fá Rikka, Simmi og Jói að kenna á þessarri fúlu hugmynd þeirra Björns og Þórunnar.

Heyrðu hún hraunar yfir prinsessuna

Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood, 70 ára, svaraði aðspurð um útlit eiginkonu Vilhjálms Bretaprins, Kate Middleton, að hún mætti alveg slaka á í augnmálningunni. Ég held hún eigi í vandræðum með augnmálninguna. Skarpa línan sem hún málar í kringum augun lætur hana líta út fyrir að vera grimmari en hún er. Hún ætti annað hvort að mýkja augnförðunina eða sleppa henni alveg, sagði Vivienne. Fleira tískulið í Bretlandi virðist vera sammála Vivienne varðandi augnmálningu prinsessunnar og gagnrýnir prinsessuna endalaust í fjölmiðlum þar í landi fyrir að mála sig of mikið og borða of lítið.

Ásgeir pimpar Austur upp

„Það er verið að pimpa aðeins dæmið,“ segir Ásgeir Kolbeinsson, einn af eigendum skemmti- og veitingastaðarins Austurs.

Valsarinn aumur í rassinum eftir KR-æfingu

„Þeir hefðu ekki getað sett mig í ljótari búning. Þetta var alveg ferlegt,“ segir Breki Logason fréttamaður um það að þurfa að eyða öllum laugardeginum í KR-búningi.

Leið eins og ég væri stödd í póstkorti

„Þessi ferð fór fram úr öllum mínum björtustu vonum og var frábær í alla staði,“ segir Lára Rúnarsdóttir söngkona, sem er nýlent á Íslandi eftir tveggja vikna tónleikaferðlag um Evrópu.

Íslenskar konur láta gott af sér leiða

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar UN Women á Íslandi kynnti taupoka sem hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur hönnuðu undir merkinu Royal Extreme. Hlutverk UN Women á Íslandi er að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks. Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women. Pokarnir eru sumarlegir og henta bæði konum og körlum við öll tækifæri. Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri. Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka. Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Woman á Laugavegi 42 , í síma 552-6200 eða á heimasíðu félagsins Unwomen.is.

Þú ert ekki síðri svona ómáluð

Leikkonan Kate Hudson, 33 ára, var mynduð ómáluð í andliti ásamt eldri syni sínum, Ryder Robinson, sem var á leiðinni í karate tíma. Eins og sjá má í myndasafni er leikkonan ekki síður glæsileg án andlitsförðunar en stífmáluð aðeins mánuði eftir að hún eignaðist sitt annað barn, drenginn Bingham Hawn Bellamy.

United-menn þurfa tvo staði

„Einn staður er ekki nóg fyrir stærsta stuðningsmannaklúbbinn á Íslandi,“ segir Steinn Ólason, formaður Manchester United-klúbbins.

Úlfur Úlfur sýnir sitt fyrsta myndband

Rappsveitin Úlfur Úlfur hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið Lupus Lupus. Úlfur Úlfur er þriggja manna sveit sem hefur verið mjög virk þrátt fyrir stuttan starfsferil. Bæði hefur hún sent frá sér nokkur lög og komið fram á fjölmörgum tónleikum.

Víst er Tom Cruise rómantískur

Leikarahjónin Tom Cruise, 49 ára, og Katie Holmes, 32 ára, leiddust brosandi þegar þau yfirgáfu tónleika sönkonunnar Katy Perry í gær í Los Angeles. Þá má einnig sjá Tom í myndasafni æfa sig á svölunum í sumarhúsi þeirra fyrir nýju myndina hans, Rock of Ages, og kæla sig við sundlaugarbakkann með Katie og dóttur þeirra Suri.

Myndasyrpa af Gay Pride

Sólin skein í miðborg Reykjavíkur þegar árleg gleðiganga hinsegin daga fór fram. Ljósmyndari Fréttablaðsins var á staðnum og fangaði stemninguna.

Glænýtt sýnishorn úr myndinni Á annan veg

Íslenska gamanmyndin Á annan veg verður frumsýnd 2. september. Nýtt sýnishorn úr myndinni er frumsýnt á Vísi í dag og er hægt að horfa á það hér með greininni.

Nýja gellan hans Gogga er með sixpakk

George Clooney, 50 ára, er byrjaður að hitta nýja konu eftir að hann endaði sambandið við ítölsku sjónvarpsstjörnuna og fyrirsætuna Elisabettu Canalis. Nýja leikfangið hans er fyrirsætan og leikkonan Stacy Keibler, 31 árs. Hún lét fara vel um sig í sólinni með þetta líka vel þjálfaða magavöðva eins og greinilega sjá má í myndasafni. Stacey eyddi tíma með George í húsinu hans á Ítalíu í júlí.

Sjá næstu 50 fréttir