Ef allt klikkar þá fer ég bara aftur í lögfræðina 10. ágúst 2011 06:15 Hugi Halldórsson stýrir nýju framleiðslufyrirtæki sem vakið hefur athygli fyrir verk sín. Fréttablaðið/HAG „
Við erum lítið fyrirtæki og höfum hugsað okkur að vera það áfram. Við einbeitum okkur að fáum verkefnum og viljum meina að við framleiðum ódýrt sjónvarpsefni vel,“ segir Hugi Halldórsson framleiðandi. Hugi stofnaði fyrr á árinu framleiðslufyrirtækið Stórveldið og á skömmum tíma hefur fyrirtækið vakið þó nokkra athygli. Meðal sjónvarpsþátta sem fyrirtækið hefur framleitt eru Mannasiðir Gillz og Andri á flandri. Fram undan eru svo nýir matreiðsluþættir Rikku og Týnda kynslóðin sem báðir hefja göngu sína á Stöð 2 á næstunni. „Stórveldið er reyndar búið að vera til lengi. Þetta er eldgamalt fyrirtæki sem ég stofnaði utan um vinnuna mína þegar ég var í sjónvarpinu. Þá fannst mér voða fyndið að eins manns fyrirtæki héti Stórveldið,“ segir Hugi sem hefur síðustu sex ár starfað hjá Saga Film. Hugi á og rekur Stórveldið og er framleiðandi þess. Kristófer Dignus er framleiðslustjórinn og þriðji maðurinn er Lúlli klippari. Hugi segist hafa verið ánægður í starfi hjá Saga Film þar sem hann vann við gerð auglýsinga. Tækifærið til að fá að vinna við gerð sjónvarpsefnis hafi þó reynst of freistandi. „Það getur verið lýjandi að vinna við auglýsingar, það þarf allt að gerast svo hratt. Sjónvarpið tekur lengri tíma og er rólegra. Ætli ég hafi ekki bara unnið yfir mig í auglýsingum.“ Þó að Hugi hafi starfað sem framleiðandi um árabil muna flestir eftir honum sem Ofurhuga úr sjónvarpsþáttunum 70 mínútum. „Ég er náttúrulega æskuvinur Audda af Króknum og honum fannst tilvalið að fá mig inn í hugmyndavinnuna í 70 mínútum. Svo þróaðist það út í að ég fór að taka þátt í falinni myndavél og úr því varð Ofurhugi til. Ég hætti sem sagt í lögfræðinni til þess að leika í falinni myndavél fyrir Audda. Ef allt um þrýtur með þetta núna þá fer ég bara aftur í lögfræðina.“ Stofnun Stórveldisins er þó ekki það eina sem drifið hefur á daga Huga nýlega. Hann og kærastan, Ástrós Gunnlaugsdóttir, eignuðust sitt fyrsta barn í síðasta mánuði. „Svo er konan nýbúin að skila stjórnarskrárfrumvarpi svo það er nóg að gera.“ hdm@frettabladid.is
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira