Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Miðstöð Boltavaktarinnar | N1-deildin Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. 6.12.2012 19:15
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Rúmenía 19-22 | Annað tap hjá stelpunum Íslenska kvennalandsliðið tapaði með þremur mörkum á móti Rúmeníu, 19-22, í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í handbolta í Serbíu. Íslenska liðið spilar lokaleik sinn í riðlinum á móti Rússlandi á föstudaginn en á enn möguleika á því að komast áfram með sigri í þeim leik. 5.12.2012 14:34
Karen: Þurfum að mæta með íslenska hjartað á móti Rússum "Það var eitthvað sem sagði mér að við ættum ekki að vinna þennan leik. Við gerðum allof mikið af aulamistökum en ef við lítum á það góða við þennan leik þá var þetta frábær framför á sólarhring," sagði Karen Knútsdóttir eftir tapið á móti Rúmeníu á EM kvenna í hansdolta í Serbíu í kvöld. Íslenska liðið tapaði leiknum 19-22 og þarf að vinna Rússa í lokaleiknum til þess að komast í milliriðilinn. 5.12.2012 22:36
Ólafur með flottan leik fyrir Flensburg Ólafur Gústafsson og félagar í Flensburg vippuðu sér í þriðja sætið í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld er liðið vann öruggan sigur, 35-29, á Melsungen. 5.12.2012 20:47
Berlin valtaði yfir Hamburg Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin komust upp í þriðja sætið í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld er þeir unnu öruggan heimasigur, 37-27, á Hamburg. 5.12.2012 19:35
Svartfjallaland ekki í miklum vandræðum með Rússland Svartfjallaland er með fullt hús á toppi okkar riðils eftir þriggja marka sigur á Rússlandi, 30-27, í fyrri leik dagsins í Vrsac á EM kvenna í handbolta í Serbíu. Svartfjallaland hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína sannfærandi en liðið vann Ísland 26-16 í gær. 5.12.2012 18:27
Stelpurnar mæta líka háværum rúmenskum stuðningsmönnum Seinni leikur okkar riðils á EM í handbolta kvenna í Serbíu í gær var á milli Rússlands og Rúmeníu sem endaði með 21-21 jafntefli eftir frábæra endurkomu rússneska liðsins. Það var gríðarleg stemmning í höllinni enda fjölmenntu Rúmenar á leikinn. 5.12.2012 17:30
Geta enn gert betur en karlalandsliðið Íslenska kvennalandsliðið tapaði í gær fyrir Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum á EM í Serbíu. Liðið tapaði einnig öllum þremur leikjum sínum á EM fyrir tveimur árum og á því enn eftir að vinna leik í úrslitakeppni Evrópumótsins. 5.12.2012 16:00
Fjögur og hálft ár síðan stelpurnar mættu Rúmeníu Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Rúmeníu í kvöld í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Serbíu en íslenska liðið tapaði illa fyrir sterku liði Svartfjallalands í gær. 5.12.2012 15:15
Hrafnhildur: Það var virkilega erfitt að vera til í gærkvöldi Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, átti eins og fleiri í liðinu erfitt með að sofna eftir skellinn á móti Svartfjallalandi í gær. Stelpurnar ætla að koma sterkar til baka á móti Rúmeníu í kvöld. 5.12.2012 14:38
Ágúst: Anna er karakter og verður öflug á móti Rúmeníu Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, þurfti að horfa upp á marga leikmenn liðsins spila undir getu í tíu marka tapi fyrir Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins á EM í Serbíu. 5.12.2012 14:30
Þær rúmensku eru þungar og líkamlega sterkar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Rúmeníu í kvöld í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Serbíu. Liðið tapaði með tíu mörkum á móti Svartfjallalandi í gær og þarf því nauðsynlega að fá eitthvað út úr leik kvöldsins. 5.12.2012 13:15
Landsliðið fékk myndir frá Vísi og Fréttablaðinu Íslenska kvennalandsliðið í handbolta þarf nú að beita öllum ráðum til þess að rífa sig upp eftir slæmt tap á móti Svartfjallalandi í fyrsta leik á Evrópumótinu í Serbíu. Stelpurnar mæta Rúmeníu í kvöld og ein leið þjálfaranna að endurkomunni er að setja saman stemmningsmyndband. 5.12.2012 13:00
Allar komu við sögu nema Jóna og Dröfn - Jenný og Þórey spiluðu mest Jóna Margrét Ragnarsdóttir og varamarkvörðurinn Dröfn Haraldsdóttir eru báðar að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti en þær fengu ekki að fara inn á í tapinu á móti Svartfjallalandi í fyrsta leik íslenska liðsins á EM í Serbíu í gær. 5.12.2012 12:30
Karen: Vorum eins og spagetti Karen Knútsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu þurfa að sýna miklu betri leik á móti Rúmeníu í kvöld en þær gerðu á móti Svartfjallalandi í gærkvöldi. Íslenska liðið verður helst að fá eitthvað út úr leiknum í kvöld ætli liðið sér að komast áfram upp úr riðlinum. 5.12.2012 12:00
Ágúst: Við erum ekkert hætt Það fór ekki vel í íslensku stelpurnar að vera barðar eins og harðfiskur í leiknum á móti Svartfjallalandi í gær. Leikmenn Svartfjallalands voru í hefndarhug og létu heldur betur finna fyrir sér og það hjálpaði ekki íslenska liðinu að hvít-rússnesku dómararnir tóku ekki hart á framgöngu Svartfellinga. 5.12.2012 11:45
Kúabjöllur Norðmanna bannvara á EM í Serbíu Evrópumeistaralið Noregs, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, hóf titilvörnina á Evrópumeistaramóti kvenna í handbolta í Serbíu í gær með 28-26 sigri gegn gestjöfunum frá Serbíu. Norðmenn voru með fimm marka forskot í hálfleik en heimaliðið náði að jafna metin þegar átta mínútur voru eftir af leiknum. Katrine Lunde Haraldsen markvörðu norska liðsins bjargaði málunum fyrir Noreg á lokamínútum leiksins. 5.12.2012 08:45
HSÍ vill að Ísland eignist besta markvörð í heimi Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hefur hafið átak er varðar markmannsþjálfun hérlendis. Gísli Rúnar Guðmundsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Guðmundur Hrafnkelsson og Roland Eradze mynda fjögurra manna markmannsþjálfarateymi sem vinna munu með markvörðum yngri landsliða. 5.12.2012 08:00
Rússar björguðu stigi gegn Rúmenum Rússar og Rúmenar skildu jafnir í síðari leik D-riðils á Evrópumóti kvennalandsliða í handbolta. Liðin eru í riðli með Íslendingum og Svartfellingum. 4.12.2012 21:57
Ágúst: Nú fer maður og talar við þær - Við getum betur en þetta Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari, var að sjálfsögðu ekki ánægður eftir tíu marka tap á móti Svartfjallalandi í kvöld, 16-26, í fyrsta leik Íslands á EM kvenna í handbolta í Serbíu. 4.12.2012 19:39
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Svartfjallaland 16-26 Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fékk skell í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Serbíu þegar liðið tapaði með tíu marka mun fyrir sterku liði Svartfjallalands, 16-26, liðinu sem vann silfur á Ólympíuleikunum í London í ágúst og er til alls líklegt á EM. 4.12.2012 16:30
Hrafnhildur alltaf atkvæðamikil á móti Svartfellingum Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur átt flotta leiki á móti Svartfjallalandi undanfarin ár. Þjóðirnar hafa mæst þrisvar sinnum á síðustu tveimur árum og Hrafnhildur er búin að vera markahæst eða næstmarkahæst í þeim öllum. 4.12.2012 15:23
Ágúst: Ég held að þessi riðill geti orðið mjög jafn Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, segist vera búinn að undirbúa íslenska liðið vel fyrir EM í Serbíu sem hefst með leik á móti Svartfjallalandi í kvöld. 4.12.2012 15:15
Rakel Dögg: Þurfum að vera með brjálaða vörn Rakel Dögg Bragadóttir er komin aftur inn í íslenska kvennalandsliðið í handbolta eftir tæplega árs fjarveru vegna meiðsla. Hún segir íslenska liðið koma vel undirbúið til leiks á EM í Serbíu en fyrsti leikurinn er á móti Svartfjallalandi í kvöld. 4.12.2012 14:30
Leikmaður Svartfjallalands: Bætum fyrir tapið í Brasilíu Jovanka Radicevic, hægri hornamaður Svartfjallalands, var í viðtali á heimasíðu EM fyrir leikinn á móti Íslandi í kvöld. Hún býst við því að öll liðin í riðlinum óttist Svartfellinga. 4.12.2012 13:30
Stella: Farnar að kannast aðeins við þær Stella Sigurðardóttir, skytta íslenska kvennaliðsins í handbolta, er klár í fyrsta leikinn við Svartfjallaland í kvöld en íslenska liðið hefur þá leik í sínum riðli á EM í handbolta kvenna í Serbíu. 4.12.2012 13:00
Þjálfari Svartfellinga: Ísland er lið á uppleið Dragan Adzic, þjálfari Svartfjallalands, hrósaði íslenska landsliðinu á blaðamannafundi fyrir leik þjóðanna á EM kvenna í handbolta í Serbíu í kvöld. Íslenska liðið vann Svartfjallaland á HM í Brasilíu í fyrra en síðan þá hefur lið Svartfjallalands farið á Ólympíuleikana í London og unnið silfur. 4.12.2012 12:00
Gústaf ætlar að labba upp á hótel tapist leikurinn í kvöld Gústaf Adolf Björnsson, aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta sagði í viðtali við heimasíðu EM í Serbíu að hann ætlaði að labba heim á hótel tapi íslenska liðið á móti Svarfjallalandi í kvöld. 4.12.2012 11:30
Hrafnhildur: Búin að hlakka til rosalega lengi Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, verður í stóru hlutverki í kvöld þegar stelpurnar mæta Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum á EM í handbolta í Serbíu. Hún segir sig og stelpurnar vita miklu betur í dag hvað þær eru að fara út í en þegar þær stigu sín fyrstu spor fyrir tveimur árum. 4.12.2012 11:00
Ahlm á förum frá Kiel Einn besti línumaður heims undanfarin ár, Svíinn Marcus Ahlm, er á förum frá Evrópu- og Þýskalandsmeisturum Kiel næsta sumar. Félagið hefur tilkynnt þessa breytingu á liðinu. 4.12.2012 10:30
Anna Úrsúla: Komin spenna í fingurgómana og í tærnar Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lætur ekki tannbrot og heilahristing stoppa sig því hún verður í miðju íslensku varnarinnar í kvöld þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum á EM í Serbíu. 4.12.2012 10:00
Jólagjöfin hennar Önnu Úrsúlu er fundin Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, lykilmaður í vörn íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, fékk slæmt högg í æfingaleik á móti Tékkum á föstudaginn. 4.12.2012 06:00
Bandbrjálaður rútubílstjóri keyrði íslensku stelpurnar | Skíthræddar alla leiðina Íslenska kvennalandsliðið kom með látum inn á hótelið sitt í Vrsac í gær eða réttara sagt þá strandaði rútan fyrir framan innganginn. Stelpurnar tóku þessu létt og voru komnar með myndavélarnar fljótt á loft enda fáar rútuferðir sem fá slíkan endi. 4.12.2012 00:01
Myndasyrpa frá æfingu íslenska landsliðsins í Serbíu Íslenska kvennalandsliðið í Serbíu æfði í keppnishöllinni í Vrsac í Serbíu í dag. Létt var yfir stelpunum sem ætla sér stóra hluti gegn Svartfellingum á morgun. 3.12.2012 21:03
Aðalmarkvörður Rúmena missir af leiknum gegn Íslandi Paula Ungureanu, markvörður rúmenska kvennalandsliðsins í handknattleik, verður ekki með landsliði sínu í landsleiknum gegn Íslandi á miðvikudaginn. Þetta kemur fram á Eurohandball.com. 3.12.2012 19:45
Grótta engin fyrirstaða fyrir Hauka | Selfoss skellti Val Bikarmeistarar Hauka í handknattleik karla lögðu Gróttu að velli 26-18 í viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Símabikarsins í kvöld. Fyrir austan fjall gerðu Selfyssingar sér lítið fyrir og lögðu Valsmenn í spennuþrungnum leik. 3.12.2012 18:35
Seferovic leystur undan samningi hjá Val Valsmenn hafa slitið samningi sínum við króatísku skyttuna Adam Seferovic. Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, staðfesti þetta í samtali við Handbolti.org í dag. 3.12.2012 18:04
Hefur ekki áhyggjur af feluleik Svartfellinga Þjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta er búið að skoða vel mótherja íslenska liðsins á Evrópumótinu í Serbíu og landsliðsþjálfarinn hefur ekki miklar áhyggjur af því að Svartfjallaland geti komið liðinu á óvart í fyrsta leik á morgun. 3.12.2012 15:30
Allar með á æfingu í dag | Dagný er hörkutól Stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta ætla að hrista af sér meiðsli og veikindi og verða allar sextán með á æfingu í Vrsac seinna í dag. Íslenska liðið æfir þá í fyrsta sinn í Vrsac þar sem liðið mætir Svartfjallalandi á morgun í fyrsta leik sínum á EM í Serbíu. 3.12.2012 13:45
Rúta stelpnanna strandaði fyrir framan hótelið | myndband Það er óhætt að segja að stelpurnar okkar hafi mætt með látum á hótelið sitt í Vrsac í hádeginu. Þær voru reyndar stilltar og prúðar eins og venjulega en það gekk mikið á hjá rútubílsjóranum. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilar sinn fyrsta leik á EM í Serbíu þegar liðið mætir Svartfjallalandi á morgun 3.12.2012 11:33
Stjarnan, Þróttur og ÍR áfram Stjarnan, Þróttur og ÍR eru komin í átta liða úrslit Símabikars karla í handbolta eftir leiki kvöldsins ásamt Akureyri og FH. 2.12.2012 21:37
Vængbrotið lið Flensburg lagði Montpellier Flensburg gerði sér lítið fyrir og lagði Montpellier í viðureign liðanna í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag en leikið var í Frakklandi. Lokatölurnar urðu 27-25 gestunum frá Þýskalandi í vil. 2.12.2012 19:57
Þórir hafði betur gegn Guðmundi Árna Þórir Ólafsson og félagar hjá Kielce unnu góðan útisigur 34-25 á Bjerringbro-Silkeborg í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. 2.12.2012 18:24
Jicha skoraði 13 mörk í sigri Kiel á Atlético Madrid Kiel vann góðan sigur á Alético Madrid á heimavelli sínum í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag. Kiel vann fjögurra marka sigur 31-.27. 2.12.2012 18:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: HK - FH 22-24 | Símabikarinn í handbolta FH tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum Símabikarsins með því að leggja HK að velli 24-22 í Digranesinu í kvöld. FH var alltaf skrefi á undan í leiknum og var yfir í hálfleik 12-9. 2.12.2012 17:30