Handbolti

Ágúst: Ég held að þessi riðill geti orðið mjög jafn

Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar
Ágúst Þór Jóhannsson.
Ágúst Þór Jóhannsson. Mynd/Stefán
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, segist vera búinn að undirbúa íslenska liðið vel fyrir EM í Serbíu sem hefst með leik á móti Svartfjallalandi í kvöld.

„Þetta lítur alveg ágætlega út. Við erum loksins komin hingað á keppnisstaðinn og lýst bara vel á allar aðstæður hérna. Það er tilhlökkun í hópnum. Það er búin að vera pínu keyrsla en við höfum verið að reyna að koma liðinu í gírinn og það er búinn að vera ágætis stígandi í leik liðsins," segir Ágúst.

Liðið endaði á tveimur leikjum við Tékka og svo léttum leik við Serba þar sem leiktíminn var bara tvisvar sinnum 20 mínútur.

„Fyrri leikurinn var Tékka ekki alltof góður en seinni leikurinn var virkilega góður. Varnarleikurinn var mjög góður í þeim seinni og sama má segja um sóknarleikinn því við skoruðum 30 mörk og spilum á köflum virkilega vel," segir Ágúst.

Mótherji kvöldsins er silfurlið síðustu Ólympíuleika en liðið mætir reyndar til leiks án hinnar frábæru Bojönu Popovic sem hefur verið ein besta handboltakona heims síðustu ár.

„Þær eru gríðarlega sterkar. Popovic er hætt og verður að öllum líkingum ekki með en maður veit aldrei upp á hverju þeir taka. Við gerum ekki ráð fyrir henni og þá breytast aðeins áherslurnar hjá þeim. Við undirbúum okkur eins vel og við getum fyrir þann leik," segir Ágúst en Rúmenía og Rússland eru einnig með í þessum riðli og mætast í seinni leik kvöldsins.

„Ég held að þessi riðill geti orðið mjög jafn og það getur margt gerst. Markmiðið er klárlega að fara áfram en eins og hefur komið fram þá erum við í sterkum riðli og þurfum því að leika gríðarlega vel til þess að komast áfram. Liðið hefur sýnt stöðugleika síðasta árið og ég hef fulla trú á því að við getum náð okkur markmiðum," segir Ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×