Fleiri fréttir

Erik Moen: Íslensk félög hafa það betra en þau norsku

Norðmaðurinn Tor Erik Moen, sem kom til Grindvíkinga frá Haugesund síðasta sumar og spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni, upplýsir í viðtali við norska dagblaðið Namdalsavisa að hann sé í viðræðum við félagið um nýjan eins árs samning.

Ingvar Þór: Kom mér dálítið í opna skjöldu

Ljóst er að reynsluboltinn Ingvar Þór Ólason mun ekki leika með Fram næsta sumar. Samnningur Ingvars Þórs við Fram átti að renna út um áramótin en félagið hefur tilkynnt að það muni ekki bjóða honum nýjan samning.

Arsenal með ungan Ítala undir smásjánni

U-21 árs landsliðsmaðurinn Angelo Ogbonna sem leikur með ítalska b-deildarfélaginu Torino er eftirsóttur þessa dagana en varnarmaðurinn hefur til að mynda verið orðaður við Inter og Juventus undanfarið.

Jökull og Högni semja við Breiðablik

Pepsi-deildarlið Breiðabliks hefur fengið liðsstyrk þar sem liðið samdi við þá Jökul I. Elísabetarson og Högna Helgason í dag en samningar beggja leikmanna eru til þriggja ára.

Auðun Helgason til Grindavíkur

Varnarmaðurinn Auðun Helgason er þessa stundina staddur í Grindavík þar sem hann skrifar undir samning við Pepsi-deildarlið Grindavíkur.

Atli á leið til Stjörnunnar

Miðjumaðurinn Atli Jóhannsson verður væntanlega orðinn leikmaður Stjörnunnar á næstu klukkutímum. Þetta fékk Vísir staðfest fyrr í dag.

Eyjamenn hafa rætt við Atla - mál Gunnars Heiðars enn í frosti

Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, viðurkennir að félagið hafi sett sig í samband við Atla Jóhannsson en tilkynnt var formlega á heimasíðu KR í gær að leikmaðurinn myndi ekki skrifa undir nýjan samning við Vesturbæjarliðið.

Atli yfirgefur herbúðir KR

Eyjamaðurinn Atli Jóhannsson verður ekki áfram hjá KR en fregnirnar voru staðfestar á heimasíðu KR í kvöld. Atli kom til KR frá ÍBV fyrir tímabilið árið 2007 og hefur leikið alls 72 leiki og skorað 6 mörk fyrir Vesturbæjarliðið síðan þá.

Fyrsti leikur Gunnleifs verður gegn HK

FH mun mæta HK í æfingaleik nú um helgina og verður því fyrsti leikur Gunnleifs Gunnleifsson með FH-ingum gegn sínu gömlu félögum úr HK.

Daði Lárusson til Hauka

Daði Lárusson skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka nú í hádeginu en hann var áður í röðum FH í fjórtán ár.

Tryggvi: Er stoltur að fá að taka þátt í þessu verkefni

„Ég hef oft hugsað um að snúa aftur heim til Vestmannaeyja og núna kom þetta upp og gekk nokkuð fljótt fyrir sig bara. Þetta er virkilega spennandi því ég hef alltaf fylgst vel með því hvað hefur verið að gerast hjá ÍBV og núna finnst mér eins og menn séu að setja stefnuna hátt og jafnvel hærra en síðustu ár og það er sannur heiður að þeir hafi leitað til mín.

Ásgeir Aron líka til ÍBV

Ásgeir Aron Ásgeirsson hefur komist að samkomulagi við ÍBV um að leika með félaginu næsta árið.

Tryggvi Guðmundsson til ÍBV

Tryggvi Guðmundsson hefur gengið til liðs við ÍBV samkvæmt heimildum Vísis. Þetta verður tilkynnt á blaðamannafundi síðar í dag.

Þór/KA fær liðsstyrk - Podovac komin frá Fylki

Þór/KA náði sínum besta árangri í sögu félagsins í efstu deild kvenna í fótbolta í sumar þegar Norðanstúlkur enduðu í þriðja sæti í Pepsi-deildinni en Þór/KA er strax byrjað að styrkja sig fyrir átökin næsta sumar.

Rúnar Már genginn í raðir Valsmanna

Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson skrifaði í dag formlega undir þriggja ára samning við Pepsi-deildarlið Vals en hann kemur frá 1. deildarliði HK.

Tómas í raðir Framara

Tómas Leifsson gekk í dag í raðir Fram frá Fjölni. Tómas kemur til félagsins án greiðslu en hann var samningslaus.

Skagastrákar semja við Val

Það verður líklega Skagaívaf á Valsliði Skagamannsins Gunnlaugs Jónssonar næsta sumar. Í dag skrifuðu tveir Skagamenn undir samning við Valsmenn.

Guðrún Jóna tekur við KR

Samkvæmt heimildum Vísis verður Guðrún Jóna Kristjánsdóttir næsti þjálfari kvennaliðs KR í fótbolta.

Mwesigwa og Nsumba fara frá ÍBV

Fram kemur á heimasíðu ÍBV í dag að þeir Andrew Mwesigwa og Augustine Nsumba, betur þekktur sem Gústi, hafi verið leystir undan samningi við ÍBV og þeir því væntanlega farnir heim til Úganda.

Daði líklega áfram hjá Fram

Daði Guðmundsson verður mjög líklega áfram í herbúðum Fram en samningur hans við félagið rennur út núna um áramótin.

Arnar líklega á leið til Hauka

Flest bendir til þess að Arnar Gunnlaugsson spili með nýliðum Hauka í Pepsi-deildinni næsta sumar. Þetta staðfesti Arnar við Vísi í dag.

Fram og Keflavík skipta á leikmönnum

Fram og Keflavík hafa ákveðið að skipta á miðjumönnum fyrir næsta tímabil. Jón Gunnar Eysteinsson fer frá Keflavík yfir til Fram og Paul McShane fer úr Safamýri til Keflavíkur.

Veigar Páll: Nancy er ekki staður fyrir mig

Veigar Páll Gunnarsson skoraði eina markið í vináttulandsleik Íslands og Suður-Afríku kvöld. Þetta er annar leikurinn í röð sem hann skorar fyrir landsliðið.

Rúrik: Auðvelt að segja eitthvað sem getur sært

Rúrik Gíslason fékk tvöfaldan sigur í dag. Félagar hans í U21 landsliðinu unnu Norður-Írland í dag og svo átti Rúrik fínan leik fyrir A-landsliðið þegar það lagði Suður-Afríku að velli í kvöld.

Helgi: Er bara í ársfríi frá úrvalsdeildinni

Helgi Sigurðsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við 1. deildarlið Víkings auk þess sem hann mun taka að sér að þjálfunarstarf í nýrri afrekslínu sem félagið er nú að stofna.

Helgi semur við Víking í dag

Helgi Sigurðsson mun í dag ganga frá samningi við Víking sem leikur í 1. deildinni. Hann mun því snúa aftur á æskuslóðir.

Umfjöllun: Vandræðalaust hjá U21 á Laugardalsvellinum

U21 landslið Íslands þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að leggja jafnaldra sína frá San Marínó í undankeppni Evrópumótsins í kvöld. Lokatölurnar urðu 8-0 en getumunurinn milli þessara liða er gríðarlegur eins og tölurnar gefa til kynna.

Helena tekur við Selfossi

Helena Ólafsdóttir var í dag ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 1. deild kvenna og samdi hún við félagið til næstu tveggja ára.

Tommy Nielsen búinn að framlengja

Tommy Nielsen hefur framlengt samning sinn við FH í eitt ár til viðbótar en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2003.

KR hefur ekki áhuga á Bjarna Ólafi

Orðrómur þess efnis að landsliðsbakvörðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson væri á leið frá Val yfir í KR á sér enga stoð í raunveruleikanum. Það staðfesti Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, við Vísi í dag.

Andri: Þurfum að fá tvo mjög sterka leikmenn í viðbót

Haukar tilkynntu á blaðamannafundi í dag að þjálfarinn Andri Marteinsson hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið en Andri hefur verið þjálfari hjá Haukum síðustu átta ár í yngri flokkum til að byrja með og svo meistaraflokki.

Haukar spila á Hlíðarenda - Mete til Hauka

Úrvalsdeildarlið Hauka mun leika hluta heimaleikja sinna í Pepsi-deildinni næsta sumar á Vodafonevellinum að Hlíðarenda. Þessi tíðindi koma nokkuð á óvart enda áttu margir von á því að þeir myndu spila sína heimaleiki í Kaplakrika.

Katrín: Þetta var bara ekki okkar dagur

„Þetta var mjög erfitt og við vissum að við þyrftum að eiga toppleik til þess að komast áfram en það tókst því miður ekki. Við þurftum náttúrulega að taka áhættu og færa liðið framar á völlinn eftir tapið í fyrri leiknum og það bauð hættunni heim og þær ítölsku kunnu að nýta sér það.

Sjá næstu 50 fréttir