Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fulham og Sunderland sýna Sölva áhuga Varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen er enn eina ferðina orðaður við lið á Englandi og að þessu sinni við lið í ensku úrvalsdeildinni. 8.12.2009 09:13
Evans og O'Shea frá þar til í janúar Þeir Jonny Evans og John O'Shea, leikmenn Manchester United, verða báðir frá vegna meiðsla þar til í næsta mánuði. 7.12.2009 23:16
Hiddink ætlar ekki að stýra liði á HM Guus Hiddink hefur útilokað að hann muni taka að sér að stýra liði á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem fer fram í Suður-Afríku næsta sumar. 7.12.2009 21:15
Smith ætlar að vinna hjá Rangers án samnings Walter Smith ætlar að halda áfram að vinna hjá Rangers eftir að samningur hans við félagið rennur út í næsta mánuði. 7.12.2009 20:30
Terry getur líklega spilað á morgun Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, á von á því að fyrirliðinn og varnaramaðurinn John Terry verði orðinn leikfær fyrir leik liðsins gegn Apoel Nicosia í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. 7.12.2009 19:45
Benitez sannfærður um að Reina verði áfram Rafa Benitez hefur ekki áhyggjur af því að hann muni missa Pepe Reina markvörð á næstunni og telur að hann muni fljótlega skrifa undir nýjan samning við Liverpool. 7.12.2009 19:00
Stoke mun rannsaka meint slagsmál Pulis og Beattie Knattspyrnufélagið Stoke ætlar að rannsaka meint slagsmál knattspyrnustjórans Tony Pulis og James Beattie í búningsklefa liðsins eftir leik liðsins gegn Arsenal um helgina. 7.12.2009 18:15
Reading og Esbjerg hafa komist að samkomulagi Enska B-deildarliðið Reading og Esbjerg frá Danmörku hafa komist að samkomulagi um að Gunnar Heiðar Þorvaldsson fari á láni til Reading frá og með næstu áramótum. 7.12.2009 17:45
Þrír frá Barca og tveir frá Real tilnefndir Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið út hvaða fimm leikmenn fengu flest atkvæði í kjöri landsliðsþjálfara og -fyrirliða á leikmanni ársins sem nú er að líða. 7.12.2009 17:16
Palacios rifbeinsbrotinn Wilson Palacios, leikmaður Tottenham, er rifbeinsbrotinn eftir leik liðsins gegn Everton í gær en leiknum lauk með 2-2 jafntefli. 7.12.2009 16:45
Zlatan vill ekki spila í vináttulandsleikjum Zlatan Ibrahimovic segir að hann muni ekki gefa kost á sér í sænska landsliðinu á næstunni þar sem að því mistókst að koma sér á HM í knattspyrnu. 7.12.2009 16:15
Mourinho rekinn ef Inter tapar gegn Rubin Kazan Gamla Inter-goðsögnin, Sandro Mazzola, trúir því að Jose Mourinho verði rekinn sem þjálfari Inter ef liðinu tekst ekki að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar. 7.12.2009 15:00
Arsenal talið vera á eftir Krkic Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Arsenal sé að íhuga tilboð í framherjann unga, Bojan Krkic, sem leikur með Barcelona. 7.12.2009 14:30
De Jong: Sjálfstraustið komið aftur Hollendingurinn Nigel De Jong, leikmaður Man. City, segir að sjálfstraust leikmanna Man. City sé í hæstu hæðum eftir sigurinn glæsilega gegn Chelsea um helgina. 7.12.2009 14:30
Gattuso líklega á förum í janúar Harðjaxlinn Gennaro Gattuso íhugar það alvarlega þessa dagana að hafa vistaskipti í janúar. Tækifærin hafa verið af skornum skammti hjá AC Milan í vetur og því íhugar Gattuso að fara annað. 7.12.2009 14:00
Giggs vill að Scholes haldi áfram Ryan Giggs vill að félagi hans hjá Man. Utd, Paul Scholes, haldi áfram að spila með liðinu eftir þessa leiktíð. Scholes gaf það í skyn í síðustu viku að hann myndi hugsanlega leggja skóna á hilluna eftir þessa leiktíð. 7.12.2009 13:00
Kaká: Erum ekki að skemmta áhorfendum Brasilíumaðurinn Kaká er einn af þeim leikmönnum Real Madrid sem hefur verið gagnrýndur fyrir að standa ekki undir væntingum í vetur. 7.12.2009 12:30
Fjölskyldustemning lykillinn að árangri Milan Brasilíumaðurinn Alexandre Pato hjá AC Milan hefur greint frá ástæðu þess að Milan komst á beinu brautina eftir brösótt gengi í upphafi tímabils. 7.12.2009 12:00
Vidic ekki með gegn Wolfsburg Vandræði varnarmannsins Nemanja Vidic, leikmanns Man. Utd, halda áfram en nú er ljóst að hann leikur ekki með liðinu gegn Wolfsburg í Meistaradeildinni á morgun. 7.12.2009 11:30
Ballack hefur ekki áhyggjur af tapinu um helgina Þjóðverjinn Michael Ballack, leikmaður Chelsea, hefur ekki stórar áhyggjur þó svo Chelsea hafi tapað gegn Man. City um helgina. 7.12.2009 10:30
Arsenal ekki á eftir Nistelrooy Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hlær að þeim sögusögnum að hann ætli sér að kaupa Hollendinginn Ruud Van Nistelrooy í janúarglugganum. 7.12.2009 10:00
Rooney svaf meðan dregið var í riðla á HM Wayne Rooney var ekki eins spenntur og margir þegar dregið var í riðla fyrir HM í Suður-Afríku. Hann svaf nefnilega eins og ungabarn þegar dregið var í riðlana og vissi ekki hvernig drátturinn fór fyrr en fimm tímum síðar. 7.12.2009 09:30
Tony Pulis og James Beattie slógust eftir Arsenal-leikinn Tony Pulis, stjóri Stoke og leikmaður liðsins, James Beattie, lentu í hörku rifildi eftir 0-2 tap Stoke fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Það þurfti á endanum að skilja þá í sundur þegar þeir voru farnir að slást. Þetta kemur fram í frétt hjá Guardian. 7.12.2009 06:00
Carlos Tevez: Hrifnari af Wayne Rooney en Messi Carlos Tevez segir að Wayne Rooney sé besti leikmaður sem hann hefur spilað með og sé þar með betri en Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem hafa verið kosnir knattspyrnumenn Evrópu tvö síðustu ár. 6.12.2009 23:30
Eggert Gunnþór skoraði og lenti í átökum eftir leik Eggert Gunnþór Jónsson skoraði eina mark Hearts í 1-2 tapi fyrir Hamilton í skosku úrvalsdeildinni í dag. Eggert minnkaði muninn í lok fyrri hálfleiks en Hearts lék manni færri frá 49. mínútu og voru síðan aðeins níu síðustu níu mínútur leiksins. 6.12.2009 23:00
Tim Howard: Louis Saha gaf mér góð ráð fyrir vítið Tim Howard, bandaríski markvörðurinn í Everton, tryggði sínum mönnum eitt stig á móti Tottenham í dag þegar hann varði vítaspyrnu frá Jermain Defoe í uppbótartíma. 6.12.2009 20:30
Harry Redknapp: Leikurinn átti að vera búinn í stöðunni 2-0 Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var skiljanlega mjög ósáttur með að lið hans tapaði niður tveggja marka forskoti í 2-2 jafntefli á móti Everton á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni í dag. 6.12.2009 19:43
Gunnar Heiðar: 90 prósent líkur á að ég semji við Reading í vikunni Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Íþróttadeild Stöðvar 2 í kvöld að það séu 90 prósent líkur á að hann verði leikmaður Reading á næstu dögum. Gunnar Heiðar yrði þá fjórði Íslendingurinn í liðinu en fyrir eru Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. 6.12.2009 19:15
Viðræður Mascherano og Liverpool ganga vel Rafael Benitez, stjóri Liverpool, segir að viðræður félagsins við Argentínumanninn Javier Mascherano gangi vel en Mascherano hefur verið orðaður við Barcelona-liðið að undanförnu. 6.12.2009 19:00
Tottenham missti niður tveggja marka forskot á móti Everton Tottenham mistókst að endurheimta þriðja sætið í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir 2-2 jafntefli við Everton á Goodison Park. Tottenham komst í 2-0 í upphafi seinni hálfleiks en Everton jafnaði með tveimur mörkum á síðustu tólf mínútum leiksins. Jermain Defoe gat tryggt Tottenham sigurinn í uppbótartíma en lét Tim Howard verja frá sér vítaspyrnu. 6.12.2009 17:59
Ancelotti: Frank Lampard mun taka næstu vítaspyrnu okkar Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, ætlar ekki að skipta um vítaskyttu hjá Chelsea þrátt fyrir að Frank Lampard hafi látið Shay Given, markvörð Manchester City, verja frá sér í leik liðanna í gærkvöldi. Klúðrið hans Lampard kostaði Chelsea stig í leiknum. 6.12.2009 17:30
Sigurmark Bobby Zamora kom Fulham upp í 8. sæti Fulham komst upp í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Sunderland í dag. Það var Bobby Zamora sem skoraði eina mark leiksins strax á 7. mínútu. 6.12.2009 16:35
Meiðslalisti Arsenal lengist enn - Rosicky meiddur á nára Tomas Rosicky meiddist á nára í sigri Arsenal á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í gær og verður væntanlega frá í einhvern tíma. Hann er enn einn leikmaðurinn sem Arsene Wenger horfir á eftir á meiðslalistann hjá Lundúnafélaginu. 6.12.2009 16:30
Gullit: Robin Van Persie getur komið til baka og átt flotta HM Ruud Gullit, fyrrum fyrirliði Evrópumeistaraliðs Hollands, trúir því að Robin van Persie eigi eftir að koma sterkur til baka eftir meiðslin og eiga flotta HM í Suður-Afríku næsta sumar. Van Persie verður frá keppni næstu fimm mánuði eftir að hafa meiðst á liðböndum í ökkla í vináttulandsleik á móti Ítölum. 6.12.2009 16:00
Figo: Englendingar eru ekki meðal þeirra sigurstranglegustu á HM Portúgalinn Luis Figo, fyrrum leikmaður Inter, Barcelona og Real Madrid, hefur ekki mikla trú á enska landsliðinu á HM í Suður-Afríku næsta sumar. Englendingar eru bjartsýnir fyrir keppnina eftir glæsilega undankeppni en Figo hefur mesta trú á Spáni og meiri trú á afrísku þjóðunum en Englendingum. 6.12.2009 15:00
Richard Dunne segir samúðarverðlaun FIFA vera algjört grín Richard Dunne, landsliðsmaður Íra, segir umræðu um sérstök samúðarverðlaun FIFA vera algjört grín og mógðun við írska landsliðið. FIFA er að plana það að veita Írum sérstök verðlaun vegna þess að þeir sátu efir í umspilinu á meðan Frakkar komust á HM á ólöglegu marki. 6.12.2009 14:30
Manchester United viðurkennir áhuga á Edin Dzeko Mike Phelan,aðstoðarþjálfari Manchester United hefur viðurkennt að félagið hafi áhuga á að kaupa Edin Dzeko, framherja þýska liðsins Wolfsburg, í janúar. Bosníumaðurinn hefur verið orðaður við mörg stórlið eftir frábæra frammistöðu í bundesligunni en hann er aðeins 23 ára gamall. 6.12.2009 14:00
Mourinho strunsaði í burtu eftir tap Inter á móti Juventus Jose Mourinho, þjálfari Inter, gaf ekki kost á neinum viðtölum eftir 1-2 tap Inter Milan á móti Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Samkvæmt heimildum SkySport þá strunsaði Mourinho burtu skömmu eftir leik, fór framhjá blaðamönnunum og beint upp í liðsrútuna. 6.12.2009 13:15
Stuttgart búið að reka Markus Babbel Markus Babbel var í dag rekinn frá þýska úrvalsdeildarliðinu Stuttgart en liðið hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum. Babbel sem er fyrrum leikmaður Bayern Munchen og Liverpool, hefur verið þjálfari Stuttgart síðan í nóvember 2008. 6.12.2009 12:29
Martin O'Neill: James Milner á að fara á HM Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, var ánægður með frammistöðu James Milner í 3-0 sigri liðsins á Hull í ensku úrvalsdeildinni í gær. Sigurinn kom Aston Villa upp fyrir Liverpool og í 5.sætið með jafnmörk stig og Tottenham en með lakari markatölu. 6.12.2009 10:00
Cristiano Ronaldo bað félaga sína afsökunar eftir leikinn Cristiano Ronaldo var fullur iðrunar eftir 4-2 sigurleik Real Madrid á Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Ronaldo var lykilmaður í að Real kom til baka eftir að hafa lent 1-2 undir en hann lét síðan reka sig útaf í lok leiksins. Ronaldo lét líka verja frá sér víti sem hann fékk sjálfur. 6.12.2009 08:00
Arsene Wenger: Arshavin átti að skora þrennu Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sá lærisveina sína enda þriggja leikja taphrinu með því að vinna 2-0 sigur á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í gær. Rússinn Andrey Arshavin átti flottan leik, skoraði eitt, lagði upp annað og fiskaði víti sem Cesc Fabregas lét Thomas Sorensen verja frá sér. 6.12.2009 08:00
Barcelona og Real Madrid ætla bæði að bjóða í Fabregas í janúar Barcelona og Real Madrid keppa ekki bara um spænska meistaratitilinn í vetur því þau ætla í annarskonar keppni þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar nefnilega kapphlaupið um að ná að kaupa Cesc Fabregas frá Arsenal. Spænska blaðið Marca segir að fyrirliði Arsenal sé þegar búinn að ákveða það að fara frá Lundúnaliðinu eftir tímabilið. 6.12.2009 07:00
Lionel Messi skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Barcelona Tvö mörk frá Lionel Messi og eitt frá Zlatan Ibrahimovic tryggðu Barcelona dýrmætan útisigur á Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Messi kom Barcelona tvisvar yfir í leiknum og Zlatan innsiglaði síðan sigurinn í blálokin. 5.12.2009 22:50
AC Milan skoraði þrjú mörk á fyrstu 23 mínútunum AC Milan vann sinn fimmta leik í röð í ítölsku deildinni í dag þegar liðið van 3-0 heimasigur á Sampdoria. Marco Borriello, Clarence Seedorf og Alexandre Pato skoruðu mörkin á fyrstu 23 mínútum leiksins. 5.12.2009 22:00