Fleiri fréttir

Southgate: Við sýndum karakter

Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, er ánægður með karakterinn sem lið hans sýndi í grannaslagnum gegn Newcastle í dag. Tvisvar í leiknum komst Newcastle yfir en í bæði skiptin náðu heimamenn að jafna.

Heil umferð í kvöld

Í kvöld verða allir fimm leikirnir í 14. umferð Landsbankadeildar karla á dagskrá. Fjórir leikir hefjast klukkan 18 en þar á meðal er viðureign Fylkis og FH sem verður í beinni á Sýn. Klukkan 20:00 mætast Fram og HK á Laugardalsvelli.

Meistararnir byrja á jafntefli

Sjö leikir fóru fram í fyrstu umferð ítölsku Serie-A deildarinnar í dag. Ítalíumeistararnir í Inter hefja tímabilið á jafntefli gegn Udinese 1-1 á heimavelli þar sem Dejan Stankovic kom Inter yfir en Udinese jafnaði í lok leiksins.

Jafntefli hjá Boro og Newcastle

Nú er leikur Middlesbrough og Newcastle búinn en hann endaði með jafntefli 2-2. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur. Mark Viduka kom Newcastle yfir gegn sínum fyrrum samherjum í seinni hálfleik en þremur mínútum síðar jafnaði Julio Arca og þar við sat.

Ashton stefnir á landsliðið

Dean Ashton, sóknarmaður West Ham, er ákveðinn í að ná að spila með enska landsliðinu. Hann ökklabrotnaði á landsliðsæfingu fyrir rúmu ári síðan og hefur ekki spilað heilan leik síðan þá.

Massa hrósaði sigri í Tyrklandi

Felipe Massa, ökuþór Ferrari, kom fyrstur í mark í tyrkneska Formúlu-1 kappakstrinum sem lauk fyrir skömmu. Lewis Hamilton, efsti maður stigalistans, hafnaði í fimmta sæti.

Tvö mörk komin á Riverside

Það er hálfleikur í leik Middlesbrough og Newcastle á Riverside vellinum en þar er staðan jöfn 1-1. Charles N'Zogbia kom Newcastle yfir á 22. mínútu en egypski sóknarmaðurinn Mido jafnaði metin fyrir Middlesbrough á 28. mínútu.

Spáð í spilin: Man Utd. - Tottenham

Það er athyglisverður leikur á dagskrá klukkan 15:00 á Old Trafford þar sem Manchester United og Tottenham eigast við. Bæði þessi lið hafa ollið vonbrigðum það sem af er tímabili.

Deco til Chelsea í janúar?

Spænska blaðið DiarioSport þykist hafa heimildir fyrir því að Deco, miðjumaður Barcelona, gangi til liðs við enska stórliðið Chelsea í janúar. Óvíst er hvort Deco muni eiga fast sæti í byrjunarliði Börsunga á tímabilinu.

Paletta seldur til Boca

Liverpool hefur selt argentínska varnarmanninn Gabriel Paletta til Boca Juniors í heimalandi hans. Þessi 21. árs leikmaður kom til Anfield sumarið 2006 eftir að hafa vakið mikla athygli á Heimsmeistaramóti unglingalandsliða árið á undan.

Ástand Puerta alvarlegt

Spænski landsliðsmaðurinn Antonio Puerta er á sjúkrahúsi þar sem ástand hans er talið alvarlegt. Puerta hneig niður í leik með liði sínu Sevilla gegn Getafe í gær og svo aftur í búningsklefa liðsins.

Þriggja ára samningur á borðinu

Arsenal vonast til þess að knattspyrnustjórinn Arsene Wenger skrifi undir nýjan samning sem fyrst en þriggja ára samningur bíður á borðinu. Samningur Wengers rennur út eftir yfirstandandi tímabil.

Carragher og Hyypia á meiðslalistann

Varnarmennirnir Jamie Carragher og Sami Hyypia munu líklega missa af seinni leik Liverpool gegn franska liðinu Toulouse í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn verður á þriðjudaginn.

Byrjunarliðið gegn Slóveníu

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið kvennalandsliðsins er mætir Slóvenum í riðlakeppni fyrir EM 2009 í Finnlandi í dag. Leikurinn hefst kl. 15:00.

Spáð í spilin: Middlesbrough - Newcastle

Tveir leikir eru í ensku úrvalsdeildinni í dag en sá fyrri verður klukkan 12:30. Það er nágrannaslagur milli Middlesbrough og Newcastle sem fram fer á Riverside vellinum.

Juventus byrjar með glans

Keppni er hafin á Ítalíu en augu flestra beindust að viðureign Juventus og Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir árs veru í B-deildinni. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann Livorno 5-1 þar sem David Trezeguet skoraði þrennu.

Sneijder með sigurmark Real Madrid

Keppni í spænsku deildinni hófst í kvöld með opnunarleik Real Madrid og Atletico Madrid. Það voru meistararnir í Real Madrid sem unnu leikinn 2-1 en sigurmarkið skoraði hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder.

Byrjun West Ham undir væntingum

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, er ekki sáttur við byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur fjögur stig eftir þrjá leiki en í dag gerði það 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Wigan.

Lampard gerði gæfumuninn

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, segir að Frank Lampard hafi gert gæfumuninn fyrir Chelsea í leik liðana í dag. Eftir leiki dagsins situr Chelsea í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en það var Lampard sem skoraði eina markið í umræddum leik.

Jafntefli á Goodison Park

Everton og Blackburn gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Jöfnunarmark James McFadden á 78. mínútu kom í veg fyrir sigur Blackburn en Roque Santa Cruz hafði komið þeim yfir í leiknum.

Grindavík endurheimti toppsætið

Lokaleikur 17. umferðar 1. deildar karla fór fram í dag. Grindvíkingar endurheimtu toppsætið með því að vinna Þór Akureyri örugglega 3-0 á heimavelli sínum. Orri Freyr Hjaltalín, Andri Steinn Birgisson og Eysteinn Hauksson skoruðu mörkin.

Sammy Lee: Mikill gleðidagur

Sæti Sammy Lee, knattspyrnustjóra Bolton, kólnaði til muna í dag þegar liðið vann stórsigur á Reading 3-0. Þetta eru fyrstu stig Bolton á tímabilinu en Sammy Lee var að vonum hæstánægður með sigurinn.

Ísland tapaði í Finnlandi

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði í dag fyrir Finnum í B-deild Evrópukeppni landsliða 85-66 en leikurinn fór fram í Finnlandi. Íslenska liðið átti ágæta spretti í leiknum en það dugði þó ekki til gegn sterku liði Finna.

Wenger: Vissi að við myndum skora

Cesc Fabregas varð fyrstur til að ná að skora á móti Manchester City. Hann skoraði eina markið þegar Arsenal vann 1-0 heimasigur gegn City í dag en Lundúnaliðið er nú komið með sjö stig í deildinni. Fyrir leikinn hafði City unnið alla þrjá leiki sína.

Sir Alex: Við vinnum á morgun

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er viss um að sínir menn nái að leggja Tottenham á morgun. „Gæðin í okkar leik munu verða til þess að við fáum öll stigin á sunnudag," sagði Ferguson en leikurinn verður á Old Trafford.

Grótta og Víðir í góðum málum

Úrslitakeppnin í 3. deild karla fór af stað í dag en fimm lið komast upp í 2. deildina í ár vegna fjölgunar í landsdeildum Íslandsmótsins. Átta lið keppa í úrslitakeppnninni og komast sigurliðin úr átta liða úrslitunum beint upp en tapliðin leika aukalega um hitt lausa sætið í 2. deild.

Þriðji sigur Bayern í röð

Bayern München fer vel af stað í þýsku Bundesligunni en liðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína. Liðið lagði Hannover að velli 3-0 í dag en mörkin skoruðu Luca Toni, Mark van Bommel og Hamit Altintop.

Úrslitin úr enska boltanum

Það var skorað í öllum þeim leikjum sem lokið er í ensku úrvalsdeildinni. Sammy Lee, knattspyrnustjóri Bolton, getur farið að anda aðeins léttar því liðið vann sín fyrstu stig í deildinni þegar það sigraði Íslendingaliðið Reading 3-0.

Keane: Liverpool getur unnið deildina

Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland, segir að Liverpool eigi góða möguleika á að hampa enska meistaratitlinum í ár. Liverpool hefur aldrei orðið meistari síðan enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar en Keane segir að nú gæti orðið breyting á.

Neyðist Tottenham til að selja Defoe?

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að félagið gæti neyðst til að selja sóknarmanninn Jermain Defoe ef hann skrifar ekki undir nýjan samning við félagið. Núverandi samningur Defoe rennur út sumarið 2008.

Spáð í spilin: Everton - Blackburn

Leikur Everton og Blackburn er lokaleikur dagsins í enska boltanum en hann hefst klukkan 16:15 og verður í beinni útsendingu á Sýn 2. Everton hefur byrjað tímabilið ágætlega og er í fjórða sæti með sex stig eftir þrjá leiki.

Hálfleikstölur í enska boltanum

Nú er kominn hálfleikur í þeim leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem hófust klukkan 14. Chelsea er yfir gegn Portsmouth eftir mark frá Frank Lampard en markalaust er í leik Arsenal og Manchester City.

Endurkoma Juventus í kvöld

Keppni í efstu deildinni á Ítalíu hefst í kvöld með tveimur leikjum. Margir bíða spenntir eftir því að sjá hvernig Juventus mun vegna gegn Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir ársdvöl í næstefstu deild.

Albert Luque á leið til Ajax

Newcastle hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við Ajax um sölu á spænska sóknarmanninum Albert Luque. Árið 2005 gekk Luque til liðs við Newcastle frá Deportivo La Coruna.

Liverpool lagði Sunderland

Liverpool er komið með sjö stig eftir þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni en liðið vann Sunderland í dag. Leikurinn á Stadium of Light fór 2-0 fyrir gestunum. Momo Sissoko skoraði í fyrri hálfleik og Andriy Voronin gerði síðan út um leikinn í þeim síðari.

Anelka vill toppbaráttu

Nicolas Anelka, sóknarmaður Bolton, er að hugsa sér til hreyfings. Lið hans hefur byrjað deildina mjög illa og tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa. Í sumar var Anelka, sem er 28 ára, orðaður við fjölda liða.

Massa fremstur á morgun

Það var líf og fjör í Tyrklandi fyrr í dag þegar tímatökur fóru fram fyrir Formúlu-1 kappaksturinn í Istanbúl. Það verður Ferrari ökumaðurinn Felipe Massa sem verður á ráspól á morgun eftir spennandi tímatökur. Lewis Hamilton varð rétt á eftir Massa.

Spáð í spilin: West Ham - Wigan

West Ham tekur á móti Wigan sem hefur komið á óvart með góðri frammistöðu það sem af er móti. Íslendingaliðið West Ham er í 15. sæti með þrjú stig úr tveimur leikjum en liðið sigraði Birmingham um síðustu helgi.

Spáð í spilin: Derby - Birmingham

Derby tekur á móti Birmingham í nýliðaslag. Þessi lið komust bæði úr fyrstu deildinni síðastliðið vor og ætti slagurinn að verða jafn. Liðin verma 18. og 19. sæti deildarinnar með eitt stig hvort eftir þrjá leiki.

Spáð í spilin: Chelsea - Portsmouth

Chelsea tekur á móti Portsmouth á Stamford Bridge. Chelsea er í öðru sæti deildarinar með sjö stig eftir þrjá leiki. Liðið hefur ekki ennþá tapað leik en hefur lent undir í öllum þremur leikjum sínum.

Spáð í spilin: Bolton - Reading

Það verður Íslendingaslagur þegar Bolton tekur á móti Reading klukkan 14. Sammy Lee hefur farið hræðilega af stað með Bolton liðið eftir að hafa fengið tólf nýja leikmenn til liðsins, en liðið hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni og situr á botninum.

Liverpool yfir í hálfleik

Liverpool hefur verðskuldaða forystu gegn Sunderland í hálfleik en staðan er 1-0. Leikurinn fer fram á heimavelli Sunderland. Momo Sissoko skoraði eina mark fyrri hálfleiksins eftir fallega sókn Liverpool en þetta er fyrsta mark hans fyrir félagið.

Adriano til City?

Sven Göran Eriksson, knattspyrnustjóri Manchester City, hringdi í Roberto Mancini til að spyrjast fyrir um brasilíska sóknarmanninn Adriano. Mancini er núverandi stjóri Ítalíumeistara Inter en hann var á sínum tíma aðstoðarmaður Eriksson hjá Lazio.

Spáð í spilin: Aston Villa - Fulham

Aston Villa tekur á móti Fulham í dag. Villa hefur aðeins nælt sér í eitt stig af sex mögulegum það sem af er tímabils, en liðið tapaði fyrir Liverpool á Villa Park í fyrstu umferðinni og gerði svo marklaust jafntefli við Newcastle á útivelli. Fulham hefur heldur ekki staðið sig vel en liðið er með þrjú stig af níu mögulegum.

Spáð í spilin: Arsenal - Man. City

Það verður ansi athyglisverður leikur á Emirates vellinum klukkan tvö þegar Arsenal tekur á móti toppliði Manchester City. Arsenal var ekki spáð mjög góðu gengi fyrir tímabilið eftir að hafa selt Thierry Henry til Barcelona í sumar.

Sjá næstu 50 fréttir